Borgin tekur stakkaskiptum á næstu árum Heimir Már Pétursson skrifar 12. nóvember 2014 21:05
Miklar breytingar verða á áberandi svæðum í miðborginni og víðar nái áform meirihlutans í borgarstjórn um byggingu fimm þúsund nýrra íbúða á næstu fimm árum fram að ganga. Borgarstjóri kynnti áformin fyrir fréttamönnum í dag. Uppbyggingin miðar að því að þétta byggð í borginni og nær til fjölda svæða í Vesturbæ og miðborginni, við gömlu höfnina, iðnaðarhverfinu inni í Vogum sem og til nýrri hverfa borgarinnar. Á gamla hafnarsvæðinu verður til að mynda reist ný byggð með 128 íbúðum við svo kallaða Vesturbuggt og í Tryggvagötu á lóð við Borgarbókasafnið verður byggt fjölbýlishús. Ásýnd Ingólfstorgs mun einnig taka nokkrum breytingum. Þá mun fjöldi íbúða rísa við Hverfisgötu og á reitum milli hennar og Laugavegar þannig að fjölmörg rótgróin götuhorn taka stakkaskiptum og byggt verður á baklóðum sem og á bílastæði bakvið byggingu sem áður hýsti Landsbankann á Laugavegi 77. Lýsisreiturinn verður allur annar eftir að fjöldi íbúða verður byggður þar og áður hefur verið greint frá uppbygingu við Hlíðarenda en nýir háskólagarðar munu líka breyta ásýnd Öskjuhlíðar. Mörg svæði í Holtunum svo sem eins og á Hampiðjureitnum munu breytast mikið og sömu sögu má segja um stórt svæði í Vogunum þar sem nú er varla annað en iðnaðarhúsnæði. Þá verður byggt meira í Bryggjuhverfinu og byggð verður þétt til muna í nýrri hverfum í austurborginni, svo eitthvað sé nefnt. Samtals fimm þúsund íbúðir á fimm árum.Hér má skoða nýtt skipulag á myndrænan hátt.
Mest lesið Fólki ráðlagt að fylgjast vel með veðurspám Veður „Svona eldur kviknar ekkert af sjálfu sér“ Innlent Gleði á flöskuborði endaði með ásökun um nauðgun Innlent Nauðgaði konu sem hann hitti í körfubolta skömmu áður Innlent Níutíu milljóna tjón á nokkrum vikum Innlent Hafni hundruðum þúsunda fyrir frídaga í fyrsta sinn frá 2014 Innlent Trump vill ekki flýta sér Erlent Arftaki 757 aftur á teikniborði Boeing Erlent Kvarta til ESA og Umboðsmanns Alþingis vegna milliverðlagningar útgerðarfyrirtækja Innlent „Ekki í lífshættu“ Innlent Fleiri fréttir Nauðgaði konu sem hann hitti í körfubolta skömmu áður Jarðskjálfti við Bárðarbungu í nótt „Svona eldur kviknar ekkert af sjálfu sér“ Kvarta til ESA og Umboðsmanns Alþingis vegna milliverðlagningar útgerðarfyrirtækja Gleði á flöskuborði endaði með ásökun um nauðgun Hafni hundruðum þúsunda fyrir frídaga í fyrsta sinn frá 2014 Níutíu milljóna tjón á nokkrum vikum „Ekki í lífshættu“ Flugáætlun Icelandair hafi fallið á álagsprófi Myndskeið: Leiddur út í járnum eftir sérsveitaraðgerð á Kársnesi Gekk blóðugur í bakarí og sagðist hafa verið skotinn Sérsveitin bregst við „alvarlegu atviki“ á Kársnesi „Hamast í því að koma í veg fyrir að Miðflokkurinn komist að“ „Hvað hafa þau að fela?“ Enn öðru flugi aflýst Lögregluaðgerð á Laugavegi Sprengisandur: Páll stýrir þéttpökkuðum þætti Skjálftahrina úti af Reykjanesi Maðurinn er fundinn „Aulalegasti bófinn í bænum“ Hefja formlegar viðræður og senda væna pillu í leiðinni D og B endurnýja heitin í Fjarðabyggð Tómas tjáir sig um dóminn Á sýklalyfjum í 120 daga: „Þetta er enginn brandari“ Gæti dregið til tíðinda á næstu dögum eða stundum Sérsveitarmenn flugu til Ísafjarðar vegna vopnaðs manns „Einhvers konar toppur á ísjakanum“ Tvö mál ráði úrslitum Icelandair aflýsir fimm brottförum í dag Almennur borgari veitti bílnum eftirför Sjá meira