Hlutverk NATÓ að breytast vegna ástandsins í Úkraínu Þorbjörn Þórðarson skrifar 18. maí 2014 12:08 Anders Fogh Rasmussen framkvæmdastjóri Atlantshafsbandalagsins, NATÓ.
Hundrað og fimmtíu bandarískir hermenn taka nú þátt í heræfingu í Litháen ásamt litháíska hernum. Bandaríkjamenn hafa sent hermenn til fjögurrra ríkja í Austur-Evrópu eftir að Rússar immlimuðu Krímskaga til að sýna lýðveldum fyrrum Sovétríkjanna stuðning. Hlutverk Atlantshafsbandalagsins, NATÓ, er að breytast vegna ástandsins í Úkraínu. Bandaríkjunum og Atlantshafsbandalaginu, NATÓ, er umhugað að sýna stjórnvöldum í Moskvu að lýðveldi fyrrum Sovétríkjanna njóti verndar þeirra en nú stendur yfir heræfing í vesturhluta Litháen þar sem 150 bandarískir hermenn taka þátt við hlið lítháískra kollega sinna.Reuters greinir frá því að þetta sé aðeins æfing en hún þykir táknræn í ljósi þess óöryggis sem gripið hefur um sig meðal ríkja í Austur-Evrópu eftir að Rússar innlimuðu Krímskaga. Fyrstu viðbrögð Bandaríkjamanna við hernaðaríhlutun Rússa í Úkraínu var að senda 600 hermenn til þriggja baltneskra ríkja, Eistlands, Lettlands og Litháen og jafnframt til Póllands til að taka þátt í heræfingum til að styrkja nærveru NATÓ í Austur-Evrópu.Gjörbreytt staða NATÓ vegna ástandsins í Úkraínu Þrátt fyrir þetta hafa NATÓ-ríkin engin áform enn sem komið er um íhlutun í Úkraínu. Talið er að ástandið í Úkraínu muni hafa meiriháttar áhrif á NATÓ og samband aðildarríkja bandalagsins við Rússland, stefnu bandalagsins og hvernig aðildarríki þess þjálfa heri sína þótt takmarkaður vilji sé til þess meðal ríkjanna að hverfa aftur til hugarfars Kalda stríðsins. Í þessu tilliti er talið að ástandið í Úkraínu leiði til þess að meginmarkmið og áherslur NATÓ verði aftur að verja 28 ríki bandalagsins en á síðustu árum hafa áherslur þess aðallega beinst að Afganistan. Alexander Vershbow aðstoðarframkvæmdastjóri NATÓ segir í samtali við Reuters að NATÓ-ríkin hafi undanfarin 20 ár búið við ástand þar sem engri hernaðarlegri ógn sé til að dreifa úr austri. Þessi staða hafi nú breyst, en Anders Fogh Rasmussen, framkvæmdastjóri NATÓ, hefur kallað ástandið í Úkraínu "game changer." Auk Bandaríkjanna hafa Bretland, Frakkland, Danmörk, Kanada og Þýskaland lofað mannafla í heræfingar NATÓ í baltnesku ríkjunum, Póllandi og Rúmeníu. Ísland er eitt stofnaðila NATÓ sem komið var á fót með Atlantshafssáttmálanum sem var undirritaður í Washington 4. apríl 1949.
Mest lesið Fleiri bílar á vettvangi og hraðakstur til skoðunar Innlent Einn fluttur á slysadeild eftir eld í Holtagörðum Innlent „Ef ég hefði ekki farið upp á heilsugæslu þá hefði ég ekki fengið heilablóðfall“ Lífið Segir af og frá að hann hafi veitt stórfé í Brexit-baráttuna Innlent SÁÁ missir forstjóra og yfirlækni Innlent Öll hin látnu um og undir tvítugu Innlent „Engin orð ná utan um slíkan missi“ Innlent Ungum Pólverja best treyst til forystu í Langanesbyggð Innlent Glæpaforingi dæmdur fyrir morðið á Tupac Erlent Svekktir og reiðir stjórnendur komu saman við Ráðhúsið Innlent Fleiri fréttir Svekktir og reiðir stjórnendur komu saman við Ráðhúsið Komugjald lagt á: „Þetta er auðvitað ekkert annað en skattlagning“ SÁÁ missir forstjóra og yfirlækni Norðausturland fær loks langþráðan veg Tjón vegna skemmdarverka hlaupi á milljónum Rætt við vitni að banaslysinu og eldri borgarar ósáttir með skattahækkun Fleiri bílar á vettvangi og hraðakstur til skoðunar Rún frá Veitum til Þorgerðar Katrínar Einn fluttur á slysadeild eftir eld í Holtagörðum Hlaup af þessari stærðargráðu vel þekkt í Múlakvísl Kviknaði í jeppa á Reykjanesbraut Leggja til að Evrópusambandsumsóknin verði formlega dregin til baka Segir af og frá að hann hafi veitt stórfé í Brexit-baráttuna Sakborningur í Kársnesmáli sóttur til Spánar Sinntu hávaðatilkynningum í heimahúsum „Engin orð ná utan um slíkan missi“ Enn óljóst hvað verður um umsóknina Ungum Pólverja best treyst til forystu í Langanesbyggð Þurfi að hækka laun og fjölga frídögum Öll hin látnu um og undir tvítugu „Við segjum ekki bless, við segjum takk“ Síðasti kvöldfréttatími Sýnar „Ríkið á stóra sök á þessu“ Líka slæmar fréttir fyrir Rúv Á morgun mega hommar gefa blóð Tekjuáætlun verulega undir áætlun „Þetta mun auka enn á vald Ríkisútvarpsins“ Metfjöldi kvartana Ekkert ákveðið á fundinum: „Það væru fráleit viðbrögð við þessari niðurstöðu“ Þrjú ungmenni létust í bílslysinu á Krýsuvíkurvegi Sjá meira