Fjallað verður um nýsköpun og tækni í velferðarþjónustu Stefán Árni Pálsson skrifar 3. júní 2014 13:18 visir/Vilhelm
Ráðstefnan „Hvar liggja möguleikarnir?“ fer fram í Hófi á Akureyri 4.-5. júní en hún fjallar um nýsköpun og tækni í velferðarþjónustu. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Velferðarráðuneytinu. Ráðstefnan er liður í viðburðum sem efnt er til í tengslum við formennsku Íslands í Norrænu ráðherranefndinni árið 2014. Fram kemur í tilkynningunni að íslenskt samfélag standi á næstu árum og áratugum frammi fyrir krefjandi verkefnum á sviði velferðarþjónustu. Eldri borgurum muni fjölga verulega, nýir notendahópar koma fram á sjónarsviðið og kröfur til þjónustunnar taka á sig fjölbreyttari og víðtækari mynd. Þetta kalli á sérhæfingu með aukinni samþættingu og góðri yfirsýn. Til þess að bregðast við þessum aðstæðum hafa stjórnvöld víða um lönd leitað leiða til nýsköpunar og skoðað á hvern hátt unnt sé í meira mæli að beita tæknilegum lausnum í velferðarþjónustunni. Fram kemur í tilkynningunni frá Velferðarráðuneytinu að meginmarkmið ráðstefnunnar sé að skapa aðstæður og upplifun þar sem ráðstefnugestir komast í snertingu við það sem efst er á baugi í nýsköpun og tækni í velferðarþjónustunni. Jafnframt að þeir geti öðlast vitneskju um hvar hægt sé að leita þekkingar og reynslu til að skapa árangursríkar lausnir í íslenskri velferðarþjónustu. Á ráðstefnunni munu ráðherrar félags- og heilbrigðismála velta fyrir sér tækifærunum í velferðarþjónustunni og hvað þurfi til að nýta þau. Ráðstefnugestir munu fá glöggar upplýsingar um helstu stefnur og strauma í nýsköpun og tækni á Norðurlöndunum og sérstök kynning verður á innleiðingu nýsköpunar og tækni í Noregi.
Mest lesið „Svona eldur kviknar ekkert af sjálfu sér“ Innlent Gleði á flöskuborði endaði með ásökun um nauðgun Innlent Trump vill ekki flýta sér Erlent Níutíu milljóna tjón á nokkrum vikum Innlent Hafni hundruðum þúsunda fyrir frídaga í fyrsta sinn frá 2014 Innlent Kvarta til ESA og Umboðsmanns Alþingis vegna milliverðlagningar útgerðarfyrirtækja Innlent „Ekki í lífshættu“ Innlent Gekk blóðugur í bakarí og sagðist hafa verið skotinn Innlent „Hamast í því að koma í veg fyrir að Miðflokkurinn komist að“ Innlent Myndskeið: Leiddur út í járnum eftir sérsveitaraðgerð á Kársnesi Innlent Fleiri fréttir Jarðskjálfti við Bárðarbungu í nótt „Svona eldur kviknar ekkert af sjálfu sér“ Kvarta til ESA og Umboðsmanns Alþingis vegna milliverðlagningar útgerðarfyrirtækja Gleði á flöskuborði endaði með ásökun um nauðgun Hafni hundruðum þúsunda fyrir frídaga í fyrsta sinn frá 2014 Níutíu milljóna tjón á nokkrum vikum „Ekki í lífshættu“ Flugáætlun Icelandair hafi fallið á álagsprófi Myndskeið: Leiddur út í járnum eftir sérsveitaraðgerð á Kársnesi Gekk blóðugur í bakarí og sagðist hafa verið skotinn Sérsveitin bregst við „alvarlegu atviki“ á Kársnesi „Hamast í því að koma í veg fyrir að Miðflokkurinn komist að“ „Hvað hafa þau að fela?“ Enn öðru flugi aflýst Lögregluaðgerð á Laugavegi Sprengisandur: Páll stýrir þéttpökkuðum þætti Skjálftahrina úti af Reykjanesi Maðurinn er fundinn „Aulalegasti bófinn í bænum“ Hefja formlegar viðræður og senda væna pillu í leiðinni D og B endurnýja heitin í Fjarðabyggð Tómas tjáir sig um dóminn Á sýklalyfjum í 120 daga: „Þetta er enginn brandari“ Gæti dregið til tíðinda á næstu dögum eða stundum Sérsveitarmenn flugu til Ísafjarðar vegna vopnaðs manns „Einhvers konar toppur á ísjakanum“ Tvö mál ráði úrslitum Icelandair aflýsir fimm brottförum í dag Almennur borgari veitti bílnum eftirför Óttast um framtíð dóttur sinnar þegar þau geta ekki lengur hjálpað Sjá meira