Festast á Kleppi þrátt fyrir að hafa lokið meðferð Þórhildur Þorkelsdóttir skrifar 19. júní 2014 19:00
Algengt er að fólk, sem lokið hefur meðferð og er er tilbúið til útskriftar, sé fast inni á geðdeildum vegna skorts á viðeigandi búsetuúrræðum. Kostnaður við að halda þessu fólki inni á spítalanum hleypur á hundruðum milljónum króna, auk þess sem sjúklingar sem þurfa á meðferð að halda komast ekki að. Búsetumál geðfatlaðra eru í miklum ólestri en ekki hefur bæst við nýtt sértækt búsetuúrræði frá árinu 2010. Í dag eru þrettán einstaklingar á Geðsviði Landspítala sem ekki er unnt að útskrifa vegna skorts á viðunandi búsetuúrræðum. Gunnlaug Thorlacius félagsráðgjafi vinnur náið með þessum hópi og segir stöðuna verða þess valdandi að markmið endurhæfingar og sá bati sem fólk hefur náð sé í hættu. Af þessum þrettán einstaklingum hafa flestir beðið í sex mánuði eða lengur eftir að geðendurhæfingu er lokið, fjórir hafa beðið í meira en ár. Þess má geta að kostnaður samfélagsins við hvern sjúkling sem liggur á geðdeild er varlega áætlaður um hundrað þúsund krónur á dag. Út frá þessum tölum má áætla að kostnaður vegna þessara þrettán einstaklinga sé í kringum 300 milljónir króna. Gunnlaug segir að sértæk búsetuúrræði séu án því efa hagkvæmari kostur fyrir samfélagið en að sjúklingar bíði inni á spítalanum mánuðum saman, auk þess sem þau fela í sér aukin lífsgæði fyrir þá sem glíma við geðsjúkdóma. Í ljósi þessa er mikilvægt að hafa í huga að heildarfjöldi þeirra legurýma sem endurhæfingardeildir hafa yfir að ráða eru um 40 og því óhætt að segja að um þriðjungur þeirra sé tepptur. Á meðan það ástand varir er ekki hægt að taka við öllum þeim sjúklingum sem liggja á bráðageðdeildum og bíða geðendurhæfingar auk þess sem erfiðara er að þjónusta þá sem þurfa á bráðaþjónustu að halda.
Mest lesið Tveir létust í fjögurra bíla árekstri á Austurlandi Innlent Meirihlutinn sprakk eftir fjóra mánuði Innlent Gerðu árás skömmu eftir að Þýskalandskanslari mætti Erlent Höfuðborgarsvæðið skalf Innlent „Auðvitað alltaf erfitt að koma að svona vettvangi“ Innlent „Veit ekki hvort maður á að hlæja eða gráta eða brosa“ Innlent Mennirnir sem létust voru feðgar Erlent Fólk láti reyna á húsráð áður en það leiti á yfirfulla Læknavakt Innlent Fundið brak úr flugvélinni sem týndist á leið frá Bermúda Erlent Katla skelfur Innlent Fleiri fréttir Skólabörn sáu nakinn hótelgest úr skólastofunni Meirihlutinn sprakk eftir fjóra mánuði Ekki eina leiðin til að uppfylla skuldbindingar Íslands „Veit ekki hvort maður á að hlæja eða gráta eða brosa“ Fólk láti reyna á húsráð áður en það leiti á yfirfulla Læknavakt Sveitarstjórnin flytur sig um set vegna myglu Röð skjálfta ekki áhyggjuefni út af fyrir sig Gera þurfi breytingar á þingsköpum til að efla virðingu og traust Arnarnesvegur opnar loks á morgun „Þeir eru að borða gras úr garðinum og snigla“ Skjálfti upp á 3,4 „Auðvitað alltaf erfitt að koma að svona vettvangi“ Banaslys á Austurlandi og barátta upp á líf og dauða Hafði lítil afskipti af veisluhöldum Vítisenglanna Sprengisandur: Pólitíkin, fíknimeðferð og neistinn kveiktur Tveir létust í fjögurra bíla árekstri á Austurlandi Ók bílnum yfir kant og upp á gras en hafnaði að lokum á ljósastaur Höfuðborgarsvæðið skalf Viðbúnaður á slóðum Vítisengla Katla skelfur Salma nýr formaður ungra Miðflokksmanna „Okkur finnst við vera undanskilin“ Viðvörunarmerki fyrir íslenskt samfélag Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Smella af sér bílbeltunum á ógnarhraða og breytingar í Kerlingarfjöllum Gul viðvörun eftir stóra skriðu Illa brugðið en heill á húfi Handtekinn grunaður um að beita piparúða Lýsa eftir Halldóri Inga Sjá meira