Vara við hugsanlegri mengun á tjaldstæði Garðar Örn Úlfarsson skrifar 28. maí 2014 07:00 Hugmynd sem lögð var fyrir bæjarstjórn Fjallabyggðar.
Áform eru nú uppi um að endurskipuleggja Leirutanga á Siglufirði. Tjaldstæði á að vera á norðurhluta tangans næst miðbænum en friðland fugla á sunnanverðri uppfyllingunni. Um er að ræða áfanga í samkomulagi Fjallabyggðar og Rauðku ehf., félags Róberts Guðfinnssonar, sem er umsvifamikill atvinnurekandi og lóðaeigandi á svæðinu. Á fundi með forsvarsmönnum Fjallabyggðar í janúar sagði Róbert við blasa að í óefni stefndi vegna mikillar fjölgunar ferðamanna sem tjaldstæði og svæði fyrir húsbíla önnuðu engan veginn. Ákveðið var að fá Edwin Roald golfvallahönnuð og Ármann Viðar Sigurðsson, byggingafulltrúa Fjallabyggðar, til að leggja fram hugmyndir um nýtingu tangans og innri hafnarinnar annars vegar og um nýtingu miðbæjarins hins vegar.Vernda kríu og aðra fugla Tvímenningarnir segja hugmyndir varðandi miðbæinn enn of óljósar til þess að koma með markvissar tillögur um hann. Varðandi tangann leituðu þeir ráða hjá fuglaáhugamönnum í bænum og hjá Fuglaverndarfélagi Íslands. „Lagt er til að tjaldsvæði verði á norðurhluta tangans, einkum til að draga úr gönguvegalengd til og frá miðbæ Siglufjarðar, og að friðland fugla verði á sunnanverðri uppfyllingunni, þar sem fuglalíf er einna mest í dag. Kría og æðarfugl eru meðal mest áberandi tegunda og er hér gengið út frá því að finna þurfi heppilega og varanlega lausn sem tryggt getur að tjaldsvæðisgestir og krían geti átt samleið á tanganum án þess að úr verði of mikið ónæði,“ segir í umfjöllun Edwins og Ármanns.Róbert Guðfinnsson, athafnamaður á Siglufirði.Fréttablaðið/ArnþórStæði fyrir 120 húsbíla Á tanganum er gert er ráð fyrir um 120 húsbílastæðum. „Afstöðu húsbíla innbyrðis er einnig ætlað að opna sem besta sjónlínu til Hólshyrnunnar,“ segja tvímenningarnir. Þá er gert ráð fyrir útivistarstígum, tjörn og síki. „Hugmyndir hafa komið fram frá Rauðku ehf. um að hluti vatnaleiðar eða síkis geti nýst sem skautasvell á vetrum.“ Sérfræðingarnir vara við að uppfyllingin hafi gegnum árin verið vettvangur margvíslegrar urðunar, meðal annars á heimilissorpi, ýmsum vélum og jarðvegi.Óljós hætta á mengun „Án þess að nokkur áþreifanleg gögn liggi fyrir um slíkt, þá telja undirritaðir ekki hægt að útiloka mengunarhættu vegna þessara fyrri landnota. Eftirgrennslan undirritaðra hefur leitt í ljós að víða þar sem heimilissorp og bílhræ hafa verið urðuð geti orðið vart við mengun af völdum metangass og PCB,“ segir í niðurstöðum Ármanns og Edwins. Bæjarstjórnin hefur samþykkt óbreytta staðsetningu tjaldsvæðis við torgið á Siglufirði næstu tvö ár.
Mest lesið Nauðgaði konu sem hann hitti í körfubolta skömmu áður Innlent Fólki ráðlagt að fylgjast vel með veðurspám Veður „Svona eldur kviknar ekkert af sjálfu sér“ Innlent Sýknaður af nauðgun þótt konan þætti trúverðug Innlent Níutíu milljóna tjón á nokkrum vikum Innlent Hafni hundruðum þúsunda fyrir frídaga í fyrsta sinn frá 2014 Innlent Arftaki 757 aftur á teikniborði Boeing Erlent Trump vill ekki flýta sér Erlent Lögðu hald á skotvopn og maður í gæsluvarðhald Innlent Flutt á sjúkrahús með hraði vegna innvortis fíknefnasmygls Innlent Fleiri fréttir Stórstjörnur tróðu upp í útskriftarveislum Verzlinga Flutt á sjúkrahús með hraði vegna innvortis fíknefnasmygls Lögðu hald á skotvopn og maður í gæsluvarðhald Nauðgaði konu sem hann hitti í körfubolta skömmu áður Jarðskjálfti við Bárðarbungu í nótt „Svona eldur kviknar ekkert af sjálfu sér“ Kvarta til ESA og Umboðsmanns Alþingis vegna milliverðlagningar útgerðarfyrirtækja Sýknaður af nauðgun þótt konan þætti trúverðug Hafni hundruðum þúsunda fyrir frídaga í fyrsta sinn frá 2014 Níutíu milljóna tjón á nokkrum vikum „Ekki í lífshættu“ Flugáætlun Icelandair hafi fallið á álagsprófi Myndskeið: Leiddur út í járnum eftir sérsveitaraðgerð á Kársnesi Gekk blóðugur í bakarí og sagðist hafa verið skotinn Sérsveitin bregst við „alvarlegu atviki“ á Kársnesi „Hamast í því að koma í veg fyrir að Miðflokkurinn komist að“ „Hvað hafa þau að fela?“ Enn öðru flugi aflýst Lögregluaðgerð á Laugavegi Sprengisandur: Páll stýrir þéttpökkuðum þætti Skjálftahrina úti af Reykjanesi Maðurinn er fundinn „Aulalegasti bófinn í bænum“ Hefja formlegar viðræður og senda væna pillu í leiðinni D og B endurnýja heitin í Fjarðabyggð Tómas tjáir sig um dóminn Á sýklalyfjum í 120 daga: „Þetta er enginn brandari“ Gæti dregið til tíðinda á næstu dögum eða stundum Sérsveitarmenn flugu til Ísafjarðar vegna vopnaðs manns „Einhvers konar toppur á ísjakanum“ Sjá meira