Hótelstjóri harmar nauðgunarmál Sunna Karen Sigurþórsdóttir skrifar 28. maí 2014 16:53 „
Ég bið ykkur fyrir hönd hótelsins afsökunar á því að vegna uppfærslu á öryggismyndavélakerfi okkar þá hafi ekki verið um neinar myndaupptökur að ræða til að staðfesta frásögnina.“ Þetta segir Guðjón Andri Kárason, hótelstjóri Best Western hótelsins í Reykjavík og beinir svari sínu til konunnar sem varð fyrir nauðgun á hótelinu á síðasta ári. Ekki var hægt að sækja manninn til saka þar sem öryggiskerfi hótelsins lá niðri og því engin haldbær sönnunargögn fyrir hendi. Konan, sem heitir Nataliya Riggs, gagnrýndi hótelið harðlega í frásögn sinni á vefsíðunni. TripAdvisor er afar vinsæl heimasíða þar sem ferðamenn geta gefið einkunn fyrir þjónustu og vöru sem þeir nýta á ferðalögum sínum. „Við erum afar hrygg yfir þeirri hryllilegu lífsreynslu sem þið urðuð fyrir þessa örlagaríku nótt í fríi ykkar hér á landi. Það þarf hugrekki til að opinbera slíka reynslu og það er afar miður að lögreglu hafi ekki auðnast að handsama brotamanninn sem framdi þennan alvarlega glæp,“ segir Guðjón jafnframt. Guðjón segir að vinnulag hótelsins verði tekið til gagngerrar endurskoðunar í ljósi málsins og þegar hafi verið gripið til úrbóta. „Einnig vil ég biðjast afsökunar á því að hafa ekki brugðist betur við þegar málið kom upp. Mér þykir óskaplega leitt ef að fyrstu viðbrögð okkar hafa valdið ykkur vonbrigðum. Ég fullvissa ykkur um að við viljum allt gera til þess að draga lærdóm af málinu og hindra að svona nokkuð geti gerst aftur,“ segir Guðjón að lokum. Nataliya kom ásamt eiginmanni sínum hingað til lands í lok síðasta árs. Hjónin fóru saman út að skemmta sér nóttina örlagaríku og komu þau seint heim. Bæði voru þau vel í glasi og segjast þau ekki hafa haft rænu til þess að opna dyrnar að hótelherberginu sjálf. Starfsmaður hótelsins hafi því opnað fyrir þeim, en í för með þeim var ókunnugur maður Nataliya segir að um leið og eiginmaður hennar sofnaði hafi maðurinn nauðgað henni.
Tengdar fréttir Segir frá því á TripAdvisor þegar henni var nauðgað á Íslandi "Á hótelinu eru öryggismyndavélar. Við héldum að það gæti hjálpað okkur við að ná fram réttlætinu en hótelstjórinn tilkynnti okkur það að öryggiskerfi þeirra virkar ekki.“ 27. maí 2014 22:05 Mest lesið Fólki ráðlagt að fylgjast vel með veðurspám Veður „Svona eldur kviknar ekkert af sjálfu sér“ Innlent Gleði á flöskuborði endaði með ásökun um nauðgun Innlent Níutíu milljóna tjón á nokkrum vikum Innlent Hafni hundruðum þúsunda fyrir frídaga í fyrsta sinn frá 2014 Innlent Trump vill ekki flýta sér Erlent Kvarta til ESA og Umboðsmanns Alþingis vegna milliverðlagningar útgerðarfyrirtækja Innlent Arftaki 757 aftur á teikniborði Boeing Erlent Nauðgaði konu sem hann hitti í körfubolta skömmu áður Innlent „Ekki í lífshættu“ Innlent Fleiri fréttir Nauðgaði konu sem hann hitti í körfubolta skömmu áður Jarðskjálfti við Bárðarbungu í nótt „Svona eldur kviknar ekkert af sjálfu sér“ Kvarta til ESA og Umboðsmanns Alþingis vegna milliverðlagningar útgerðarfyrirtækja Gleði á flöskuborði endaði með ásökun um nauðgun Hafni hundruðum þúsunda fyrir frídaga í fyrsta sinn frá 2014 Níutíu milljóna tjón á nokkrum vikum „Ekki í lífshættu“ Flugáætlun Icelandair hafi fallið á álagsprófi Myndskeið: Leiddur út í járnum eftir sérsveitaraðgerð á Kársnesi Gekk blóðugur í bakarí og sagðist hafa verið skotinn Sérsveitin bregst við „alvarlegu atviki“ á Kársnesi „Hamast í því að koma í veg fyrir að Miðflokkurinn komist að“ „Hvað hafa þau að fela?“ Enn öðru flugi aflýst Lögregluaðgerð á Laugavegi Sprengisandur: Páll stýrir þéttpökkuðum þætti Skjálftahrina úti af Reykjanesi Maðurinn er fundinn „Aulalegasti bófinn í bænum“ Hefja formlegar viðræður og senda væna pillu í leiðinni D og B endurnýja heitin í Fjarðabyggð Tómas tjáir sig um dóminn Á sýklalyfjum í 120 daga: „Þetta er enginn brandari“ Gæti dregið til tíðinda á næstu dögum eða stundum Sérsveitarmenn flugu til Ísafjarðar vegna vopnaðs manns „Einhvers konar toppur á ísjakanum“ Tvö mál ráði úrslitum Icelandair aflýsir fimm brottförum í dag Almennur borgari veitti bílnum eftirför Sjá meira
Segir frá því á TripAdvisor þegar henni var nauðgað á Íslandi "Á hótelinu eru öryggismyndavélar. Við héldum að það gæti hjálpað okkur við að ná fram réttlætinu en hótelstjórinn tilkynnti okkur það að öryggiskerfi þeirra virkar ekki.“ 27. maí 2014 22:05