Boða Glamour í íslenskri útgáfu 20. maí 2014 07:00 Glamour er eitt af leiðandi lífsstílstímaritum í heiminum í dag og verða efnistökin sérsniðin að íslenskum markaði.
365 miðlar og Condé Nast International hafa komist að samkomulagi um útgáfu á íslenskri útgáfu á tímaritinu Glamour. Þetta er sautjánda erlenda útgáfan af tímaritinu vinsæla. „Glamour er eitt af leiðandi lífsstílstímaritum fyrir konur í heiminum í dag,“ segir Jonathan Newshouse, stjórnarformaður og forstjóri útgáfufyrirtækisins Condé Nast International. „Þeir hjá Condé Nast eru ánægðir með að geta komið með þennan vinsæla fjölmiðil til Íslands þar sem markaðurinn lofar góðu.“Ingibjörg Pálmadóttir, stjórnarformaður 365 miðla, tekur í sama streng. „Við erum himinlifandi yfir að hafa náð samningum við Condé Nast um útgáfu Glamour á Íslandi. Þetta verður frábær viðbót í fjölmiðlaflóru landsins og við erum stolt af því að taka þátt í því. Við trúum því að Glamour hafi mikla möguleika sem vörumerki og okkar teymi getur ekki beðið eftir að hefjast handa.“Carol Cornau, forseti Condé Nast International bætir við: „Þetta er í fyrsta sinn sem alþjóðlegur fjölmiðill kemur út í íslenskri útgáfu og þrátt fyrir að Glamour sé nú þegar þekktur og vinsæll miðill meðal íslenskra kvenna, erum við spennt yfir að geta sniðið efnistökin í blaðinu sérstaklega að íslenskum markaði.“ Ísland bætist þar með í góðan hóp sextán landa sem gefa út sínar eigin útgáfur af tímaritinu Glamour, á vef og prenti. Brasilía, Suður-Ameríka (spænsk útgáfa), Búlgaría, Frakkland, Þýskaland, Ungverjaland, Ítalía, Mexíkó, Holland, Pólland, Suður-Afríka, Rúmenía, Rússland, Spánn, Bretland og Bandaríkin. Lesendur blaðsins á heimsvísu er um 11,7 milljónir á mánuði. Nánari dagsetning á útgáfu Glamour á Íslandi verður auglýst síðar. Ingibjörg PálmadóttirEitt stærsta útgáfufyrirtæki í heiminum í dag Condé Nast International er eitt stærsta og virtasta fjölmiðlafyrirtæki í heiminum í dag. CNI er núna starfrækt á 27 mörkuðum, gefur út 126 tímarit, heldur úti nálægt 100 vefsíðum og yfir 200 smáforritur fyrir síma og spjaldtölvur. Undir þeirra hatti má finna virt vörumerki á borð við Vogue, GQ, Glamour, Wired, Condé Nast Traveller, AD og Vanity Fair. Meðal nýjustu útgáfa CNI er Vanity Fair í Frakklandi, Condé Nast Traveller í Kína og í Mið-Austurlöndum, Vogue í Taílandi, Úkraínu og Hollandi, GQ í Tyrklandi, Glamour í Brasilíu, AD á Indlandi og Allure í Rússalandi. Auk hefðbundinnar fjölmiðlaútgáfu hefur CNI staðið að stórum viðburðum í tískuheiminum eins og Vogue´s Fashion Night Out, GQ Men of the Year-verðalaunin og Glamour Women of the Year. Nýlega opnaði CNI sinn eigin skóla í London, the Condé Nast College of Fashion & Design.
Mest lesið Fleiri bílar á vettvangi og hraðakstur til skoðunar Innlent „Ef ég hefði ekki farið upp á heilsugæslu þá hefði ég ekki fengið heilablóðfall“ Lífið Einn fluttur á slysadeild eftir eld í Holtagörðum Innlent Segir af og frá að hann hafi veitt stórfé í Brexit-baráttuna Innlent Öll hin látnu um og undir tvítugu Innlent „Engin orð ná utan um slíkan missi“ Innlent Ungum Pólverja best treyst til forystu í Langanesbyggð Innlent SÁÁ missir forstjóra og yfirlækni Innlent Glæpaforingi dæmdur fyrir morðið á Tupac Erlent Myndasyrpa: Síðasti kvöldfréttatími Sýnar Lífið Fleiri fréttir SÁÁ missir forstjóra og yfirlækni Norðausturland fær loks langþráðan veg Tjón vegna skemmdarverka hlaupi á milljónum Rætt við vitni að banaslysinu og eldri borgarar ósáttir með skattahækkun Fleiri bílar á vettvangi og hraðakstur til skoðunar Rún frá Veitum til Þorgerðar Katrínar Einn fluttur á slysadeild eftir eld í Holtagörðum Hlaup af þessari stærðargráðu vel þekkt í Múlakvísl Kviknaði í jeppa á Reykjanesbraut Leggja til að Evrópusambandsumsóknin verði formlega dregin til baka Segir af og frá að hann hafi veitt stórfé í Brexit-baráttuna Sakborningur í Kársnesmáli sóttur til Spánar Sinntu hávaðatilkynningum í heimahúsum „Engin orð ná utan um slíkan missi“ Enn óljóst hvað verður um umsóknina Ungum Pólverja best treyst til forystu í Langanesbyggð Þurfi að hækka laun og fjölga frídögum Öll hin látnu um og undir tvítugu „Við segjum ekki bless, við segjum takk“ Síðasti kvöldfréttatími Sýnar „Ríkið á stóra sök á þessu“ Líka slæmar fréttir fyrir Rúv Á morgun mega hommar gefa blóð Tekjuáætlun verulega undir áætlun „Þetta mun auka enn á vald Ríkisútvarpsins“ Metfjöldi kvartana Ekkert ákveðið á fundinum: „Það væru fráleit viðbrögð við þessari niðurstöðu“ Þrjú ungmenni létust í bílslysinu á Krýsuvíkurvegi Skora á stjórnvöld að tryggja fasta viðveru þyrlu á Akureyri Reiðarslag fyrir fréttaflutning á Íslandi Sjá meira