Braut á barni sem hann byrlaði smjörsýru 20. maí 2014 15:27 VISIR/HARI
Karlmaður var dæmdur í tveggja ára og níu mánaða fangelsi í Hérðasdómi Reykjaness í dag fyrir að hafa brotið gegn þremur börnum árið 2010. Ákæran á hendur manninum, sem heitir Birkir Már Ingimarsson, var í sjö liðum og játaði hann sök í fimm en héraðsdómur sakfelldi hann fyrir tvo. Í dómnum kemur fram að maðurinn hafi átt sér engar aðrar málsbætur en játanir sínar. Birkir Már var dæmdur fyrir að hafa haft samræði við fjórtan ára stúlku, veitt tveimur börnum á fermingaraldri aðgang að fíkniefnum og aðstoðað þrjú börn við að komast úr umsjón foreldra sinna er hann leyfði þeim að gista á heimili sínu eina nótt. Einnig var hann ákærður fyrir að hafa gefið 14 ára strák fíkniefni og smjörsýru svo að drengnum var ekki sjálfrátt, „farið með hann inn í svefnherbergi sitt, klætt hann úr fötum, strokið og nuddað á honum kynfærin, látið hann gera það sama við sig og nuddað kynfærum sínum og líkama upp við líkama hans.“ Maðurinn áreitti einnig í samstarfi við annan mann 13 ára stúlku kynferðislega er hún var sofandi á þáverandi heimili hans. Flettu þeir niður um hana brjóstahaldara og bol svo sást í bert brjóst hennar og ljósmyndaði maðurinn athæfið. Ákæra í málinu var ekki gefin út fyrr en rúmum tveimur árum síðar eða rúmur þremur árum eftir að umrædd atvik áttu sér stað. Í ljósi þess að dómurinn taldi að málið hafi „dregist úr hófi fram“ þótti honum rétt að fresta fullnustu refsingarinnar og láta hana falla niður að tveimur árum liðnum. Því er allur dómurinn skilorðsbundinn. Var Birki Má gert að greiða börnunum skaðabætur upp á samtals 900 þúsund krónur. Einnig voru gerð upptæk Spire-flakkari, borðtölva, Nokia N92 farsími, sex ljósmyndir og 13 hreyfimyndir sem sýna börn á kynferðislegan og klámfenginn hátt sem voru í eigu hins ákærða.
Mest lesið Skógareldur ógnar byggð í Álasundi Erlent Starfsmaður grunaður um kynferðisbrot á leikskóla Innlent Staðfesta andlát Larijani og Soleimani Erlent Gagnheiðargöng verði sáttaleið Austfirðinga Innlent Yfirheyrslur gætu staðið yfir fram á kvöld Innlent Framtíð Foreldrahúss í óvissu: Nær ekki í Ingu Sæland Innlent Geti ekki starfað undir Bandaríkjaforseta með góðri samvisku Erlent Segir ekkert hérað Rússlands öruggt lengur Erlent Kosningavaktin 2026: Landsmenn kjósa sér sveitarstjórnir Innlent Stefán Þór leiðir jafnaðarmenn í Fjarðabyggð Innlent Fleiri fréttir Stefán Þór leiðir jafnaðarmenn í Fjarðabyggð Starfsmaður grunaður um kynferðisbrot á leikskóla Gagnheiðargöng verði sáttaleið Austfirðinga Framtíð Foreldrahúss í óvissu: Nær ekki í Ingu Sæland Ákvarða stýrivexti í skugga versnandi verðbólguhorfa Hugsanleg veggjöld á Reykjanesbraut og Suðurlandsvegi: „Þessi áform mega ekki ná fram að ganga“ Ekið á skólarútu Viðskiptavinir hafi fengið fjölda svikapósta Aðlögun að ESB sé þegar hluti af daglegu lífi Komu biluðum báti til bjargar Leita til háskólans fyrir íslenskupróf Mesta kvikusöfnun á milli eldgosa frá upphafi eldgosahrinu Niðurrifið á göngubrúnni hafið Vegagerðin hafnaði tilboði Icelandair í Ísafjarðarflugið Leggur til að atkvæðagreiðslunni verði frestað Alvarlegt að svo ill meðferð á dýrum sé metin refsilaus Þorsteinn tekur við formennsku af Fanneyju Birnu Vilja hætta við Borgarlínu en stórefla strætisvagnakerfið Bein útsending: Ársfundur Samorku Atvinnuhúsnæði á Ísafirði rýmt eftir snjóflóð Kviknaði í kaffibrennsluofni Vaxtaákvörðun framundan og snjóflóðahætta fyrir vestan Um 44 prósent hlynnt forgangsröðun í samgönguáætlun Yfirheyrslur gætu staðið yfir fram á kvöld Árekstur við Suðurlandsbraut „Persónulegir þættir koma hér hvergi nærri“ Fyrri umræðu um þjóðaratkvæði lokið Sjö handteknir í tengslum við meiriháttar líkamsárás Eins og ef einhver myndi hella vatni yfir tölvu Ólafsfjarðarmúla lokað vegna snjóflóðs Sjá meira