Ragnar Guðmundsson á Brjánslæk látinn 29. desember 2014 14:21 Ragnar á Brjánslæk í viðtali í sumar fyrir þáttinn "Um land allt". Myndin var tekin við Flókatóftir. Stöð 2/Baldur Hrafnkell.
Ragnar Guðmundsson, fyrrverandi bóndi og hafnarvörður á Brjánslæk, er látinn, 79 ára að aldri. Hann lést á jólanótt vegna hjartaáfalls á Heilbrigðisstofnun Patreksfjarðar en þangað var hann fluttur frá heimili sínu á aðfangadagskvöld eftir að hann kenndi sér meins. Vesturbyggð heiðraði Ragnar fyrir farsæl störf í þágu sveitarfélagsins fyrir tveimur árum þegar hann lét af starfi hafnarvarðar á Brjánslæk. Því starfi hafði hann þá gegnt í 63 ár eða frá árinu 1949. Á Brjánslæk, landmestu jörð Vestfjarða, rak Ragnar eitt af stærri sauðfjárbúum landsins, en hann var jafnframt í forystusveit samtaka bænda í héraðinu og á landsvísu. Þá var hann í hópi þeirra sem stóðu að hvalveiðum og hvalvinnslu frá Brjánslæk og einnig skelveiðum og rækjuveiðum. Fyrir tveimur mánuðum var sýndur þáttur á Stöð 2 frá Brjánslæk þar sem Ragnar var helsti viðmælandi. Þar minnti hann á þýðingu Brjánslækjar og Vatnsfjarðar fyrir sögu þjóðarinnar vegna Hrafna-Flóka, sem nefndi landið Ísland, eftir að hafa gengið þar á fjall og séð hafís. „Þessvegna erum við Íslendingar“ sagði Ragnar. Hér má sjá þáttinn: „Á Brjánslæk urðum við að Íslendingum.“ Ragnar Guðmundsson lætur eftir sig eiginkonu, fimm börn og barnabörn. Útför Ragnars verður gerð frá Brjánslækjarkirkju þann 10. janúar.
Tengdar fréttir Byggðin sem tapaði mestu vegna hvalveiðibannsins Nærri þrjátíu árum eftir að Alþingi féllst á hvalveiðibann hefur samfélagið á Barðaströnd ekki enn náð sér eftir áfallið. 27. október 2014 22:15 Mest lesið Æf vegna ummæla Kristrúnar um falsfréttir: „Þessi skammarlegu, ómaklegu ummæli“ Innlent Segir vopnahlé í höfn Erlent Ísland muni ekki verja fimm prósentum til varnarmála Innlent Flaug í einkaflugi með Støre Innlent Fleiri handteknir í Borgarnesi Innlent Engar stórvirkjanir í Skagafirði en opið að fara í Kjalölduveitu Innlent Telja einhvern hér á landi búa yfir vitneskju um hvað kom fyrir Jón Þröst Innlent Trump þakkar Írönum fyrir að láta vita af sér Erlent Sextán ár fyrir að bana dóttur sinni Innlent Mikill reykur eftir að kviknaði í annarri efnalaug Innlent Fleiri fréttir Æf vegna ummæla Kristrúnar um falsfréttir: „Þessi skammarlegu, ómaklegu ummæli“ Engar stórvirkjanir í Skagafirði en opið að fara í Kjalölduveitu Ísland muni ekki verja fimm prósentum til varnarmála Mikill reykur eftir að kviknaði í annarri efnalaug „Við erum auðvitað ekki komin þangað“ Telja einhvern hér á landi búa yfir vitneskju um hvað kom fyrir Jón Þröst Fleiri handteknir í Borgarnesi Átök breiðast út í Mið-Austurlöndum, virkjanaáform og brúðkaup Bezos Gert að greiða fyrrverandi manni sínum bætur vegna dreifingar á nektarmynd Sextán ár fyrir að bana dóttur sinni Leita fulltingis forseta til að fá upplýsingar um veiðigjöld Lúsmý um allt land en bitmýið einnig árásargjarnt Kona féll í Svöðufoss „Það gengur ekki að þingið sé tekið í gíslingu“ „Landslið barna“ tekið til starfa á Suðurnesjum Grunar að fjárheimildir ætlaðar þjónustu hafi farið í launakostnað „Annars værum við ekki að leggja í þessar miklu aðgerðir“ Flaug í einkaflugi með Støre Réðst á einstakling á sjötugsaldri með hníf Lætur reyna á hvort samræði við þrettán ára sé nauðgun Biðla til foreldra: Barn einungis þrjátíu sekúndur að drukkna Árásum á Íran haldið áfram og enn þráttað um veiðigjöld Neita öll sök í Gufunessmálinu Váleg þróun að ríki telji sig ekki þurfa að færa rök fyrir því að beita hervaldi Hyggst setja RÚV „talsverðar skorður“ í þágu einkarekinna fjölmiðla Handtekinn fyrir að sveifla hamri Sjálfboðaliðar að bugast: Mikil örvænting meðal gæludýraeigenda Kjarnavopnvædd klerkastjórn sé ógn við Norðurlönd Álftapar með fjóra unga við Hótel Rangá vekur athygli Sagt að hann gæti ekki klárað námið en gerði það samt Sjá meira
Byggðin sem tapaði mestu vegna hvalveiðibannsins Nærri þrjátíu árum eftir að Alþingi féllst á hvalveiðibann hefur samfélagið á Barðaströnd ekki enn náð sér eftir áfallið. 27. október 2014 22:15