Formaður björgunarsveitar furðar sig á úrræðaleysi gagnvart hættulegu húsi Garðar Örn Úlfarsson skrifar 12. desember 2014 07:00 Nágrannar hússins Víkur á Rafnkelsstaðavegi hafa í tvö ára fylgst með fiskineti halda lausum þakplötum í skefjum þegar vindar blása um Garðinn. Farg í fiskikari er notað til að binda stög úr netinu. „
Þetta er bara stórhættulegt,“ segir Oddur Jónsson, formaður björgunarsveitarinnar Ægis í Garði, um íbúðarhúsið Vík þar sem þakplötur eru allar meira og minna lausar og tjaldað hefur verið yfir með neti. Vík hefur verið í niðurníðslu um árabil. Eigendurnir hafa ekki haft efni á viðgerðum. Í hvert skipti sem gerði rok voru björgunarsveitarmenn kallaðir að Vík. Loks kviknaði sú hugmynd að bregða neti yfir húsið svo það væri til friðs og ógnaði ekki nærliggjandi húsum.Bæjarstarfsmenn draga saman lausar þakplötur í fyrradag.Netið byrjað að rifna Oddur segir Ægismenn hafa brugðið nót yfir Víkina með hjálp bæjarstarfsmanna úr Garði fyrir um tveimur árum. „Það hefur virkað vel; við höfum ekki þurft að fara í það síðan. En veturna tvo þar á undan þurftum við að fara í það nokkrum sinnum til þess að festa og binda og herða á spottum,“ segir hann. Óveðrin tvö að undanförnu hafa tekið sinn toll af Vík. Á miðvikudag mættu tveir bæjarstarfsmenn frá Garði til að fiska upp þakplötur og festa stög sem bundin eru við fiskikör með fargi. Það kemur Oddi ekki á óvart. „Ég sá að það var farið að losna í einu horninu og rifna aðeins nótin og aðeins farið að stingast upp úr,“ segir hann. Jafnvel þótt húsið virðist hvorki halda vatni né vindum býr annar eigandinn í því. „Það er timburgólf í húsinu og timburþak og maðurinn býr þarna í kjallaranum. Þannig að ef þetta fellur niður þá veit maður ekki hvar þetta endar,“ segir Oddur sem skilur ekki að maðurinn skuli búa í húsinu við þessar aðstæður og furðar sig á stöðu málsins almennt.Magnús Stefánsson er bæjarstjóri í Garði. Magnús svaraði ekki skilaboðum í gær.Yfirvöld máttlaus gagnvart eigendarétti „Maður áttar sig ekki á hvað yfirvöld og heilbrigðisyfirvöld eru máttlaus gagnvart svona. Eigendarétturinn virðist vera svo sterkur,“ segir formaður Ægis og varar við afleiðingunum. „Ef netið rifnar og allt fer af stað þá eru íbúarnir þarna í kring náttúrlega í hættu.“ Aðspurður segir Oddur að þrátt fyrir ástandið á húsinu hafi ekki orðið slys á fólki eða skemmdir á öðrum húsum vegna fjúkandi braks. „Það hefur sem betur fer sloppið,“ svarar hann. Ekki náðist í eigendur hússins. Fyrrverandi fóstursonur mannsins sem býr í húsinu kveðst sjálfur hafa búið í húsinu þar til fyrir um tveimur árum. Rætt hafi verið um að lagfæra húsið en aldrei orðið neitt úr því. Nágrannar Víkur óttast slys og skemmdir og hafa kvartað undan málinu til sveitarfélagsins. Hvorki Magnús Stefánsson bæjarstjóri né Jón Ben Einarsson byggingarfulltrúi svöruðu skilaboðum Fréttablaðsins í gær.
Mest lesið Bandarískir sendimenn mælist til þess að Trump sé hunsaður Erlent „Aulalegasti bófinn í bænum“ Innlent Skothvellir við Hvíta húsið Erlent Óttast um framtíð dóttur sinnar þegar þau geta ekki lengur hjálpað Innlent Skjálftahrina úti af Reykjanesi Innlent Hefja formlegar viðræður og senda væna pillu í leiðinni Innlent Almennur borgari veitti bílnum eftirför Innlent Maðurinn er fundinn Innlent Tómas tjáir sig um dóminn Innlent Á sýklalyfjum í 120 daga: „Þetta er enginn brandari“ Innlent Fleiri fréttir Meintur byssumaður 21 árs góðkunningi leyniþjónustunnar Skjálftahrina út af Reykjanesi Maðurinn er fundinn „Aulalegasti bófinn í bænum“ Hefja formlegar viðræður og senda væna pillu í leiðinni D og B endurnýja heitin í Fjarðabyggð Tómas tjáir sig um dóminn Á sýklalyfjum í 120 daga: „Þetta er enginn brandari“ Gæti dregið til tíðinda á næstu dögum eða stundum Sérsveitarmenn flugu til Ísafjarðar vegna vopnaðs manns „Einhvers konar toppur á ísjakanum“ Tvö mál ráði úrslitum Icelandair aflýsir fimm brottförum í dag Almennur borgari veitti bílnum eftirför Óttast um framtíð dóttur sinnar þegar þau geta ekki lengur hjálpað Flúðu eftir að hafa ekið á gangandi vegfaranda Tulsi Gabbard lætur af embætti Allt veltur á því hvort handaband teljist handsal Námsbækur barnanna búnar til „löngu áður en mamma og pabbi fæddust“ „Þetta hjól er næstum alltaf tómt“ Íslendingur vann 336 milljónir króna Sektaður fyrir að vera á nagladekkjum Hildur vilji Einar í meirihluta hvernig sem fer Var í geðrofi þegar Vinafélag Íslands-Norður-Kóreu var stofnað Bæjarstjóri Hafnarfjarðar fer yfir dramatíkina Undrandi á að Tómas fengi ekki að verja sig Verðlaunuð fyrir að bjóða unglingum upp á Sveitasælu Nýtt húsnæði ráðuneytis Ingu kostar níu milljónir á mánuði Margrét Helga til Ríkisútvarpsins Nýr meirihluti í Hörgársveit Sjá meira