Bubbi og Kobbi á svið með Cornwell Jakob Bjarnar skrifar 12. desember 2014 14:06 Bubbi og Kobbi með manninum sem þeir nánast hafa í guða tölu: Hugh Cornwell. visir/stefán
Sannkölluð goðsögn í lifanda lífi, Hugh Cornwell sem fór fyrir Stranglers þá er frægðarsól þeirrar hljómsveitar var sem mest, er staddur á Íslandi. Hann var staddur í höfuðstöðvum 365 í morgun og ekki orðum aukið að það hafi farið skjálfti um margan manninn; ekki síst þá Bubba Morthens og Jakob Smára Magnússon; en Cornwell er í guða tölu hjá þeim. Tekinn var upp sérstakur viðtalsþáttur sem verður á dagskrá Bylgjunnar innan tíðar en það kom Cornwell á óvart hversu fróður Jakob Smári var um Stranglers; hann gat upplýst hann um þætti úr hljómsveitinni sem Cornwell vissi ekki sjálfur.Sögufræg heimsókn til Íslands Stranglers var í broddi fylkingar þegar pönkið umturnaði öllu og breytti rokksögunni á 8. áratug síðustu aldar. Stranglers komu til Íslands árið 1978 í tilefni útkomu plötunnar Black and White. Ákveðið var að halda 72 tíma fjölmiðlaveislu á hér á landi en á Ísland vart á tónlistarkortinu. En hingað mætti hljómsveitin ásamt troðfullri vél af blaðamönnum og ýmsu fólki tengdu breska tónlistarbransanum. Ferðalagið einkenndist af mikilli drykkju og sjaldan eða aldrei höfðu Íslendingar upplifað annað eins. Bandið var nánast óþekkt hér á landi, samt tókst að fylla Höllina og íslenskt tónlistarlíf tók stakkaskiptum. Nýtt tímabil hófst, pönkið var komið til landsins. Bubbi Morthens kann betur að segja frá því og Hugh Cornwell sem fór fyrir sveitinni: „Halló! Þetta er maðurinn sem kastaði steininum í vatnið og svo erum við hin gárurnar. Það er bara þannig og ekki flóknara en það. Út úr þessu komu Utangarðsmenn, Þeysararnir, Purrkur Pillnikk, Björk og þannig má lengi telja. Jájá, þessi maður hefur haft meiri áhrif á tónlistarbransann á Íslandi en nokkurn grunar,“ staðhæfir Bubbi.Kobbi vissi meira um Cornwell en hann vissi sjálfur Stranglers voru í fararbroddi pönkbylgjunnar ásamt með hljómsveitum á borð við Ramones, Sex Pistols og Clash. Og þú bara eins og krakki í sælgætisverslun, Bubbi? „Ég hafði rosalega gaman að þessu. Við tókum viðtal við hvorn annan, Kobbi bassaleikari, Cornwell og ég. Rifjuðum upp söguna. Þetta var dásamlegt.“En, þið ætlið ekkert að stilla saman strengi ykkar og telja í? „Hann bauð okkur Kobba að koma uppá svið og spila með, ef við vildum. Annað kvöld. Ef ég á heimangengt munum við sennilega taka Get a grip of your self. GET A GRIP OF YOUR SELF. Where the money‘s no good...“ Cornwell hætti í Stranglers árið 1990 og eru margir þeirrar skoðunar, þeirra á meðal Bubbi, að hljómsveitin hefði betur lagt upp laupana þá, svo mikið mark setti hann á sveitina, auk þess að vera einn helsti laga- og textahöfundur hljómsveitarinnar. En, Cornwell mun taka nokkur lög sem Stranglers gerðu þekkt annað kvöld á Gauki á Stöng.
Mest lesið Sláandi hugmyndir íslenskra karla um ofbeldi Innlent Laug að Morgunblaðinu um nýjan KFC-stað Innlent „Vissi að ég var ekki að haga mér eins og venjulegt fólk“ Innlent Stefna á þrjú þúsund hektara en endurheimtu þrettán Innlent Reglur um dvalarleyfi hertar og filippseyskar au pair úr sögunni Innlent Syrgði Sovétríkin og hótaði notkun kjarnorkuvopna Erlent Leggur til að þingmenn verði 85 í stað 63 Innlent Ein matskeið og þá er dauðinn vís Innlent Hvað þýðir sjö í nýju námsmati? Innlent Fær umboðið í fangið fjórum dögum eftir uppgjöf Erlent Fleiri fréttir Geri málið tortryggilegt að neita að svara „Við höfum séð mikla aukningu á því á Íslandi“ Íslensk skólastúlka varð fyrir táragasi í París Laug að Morgunblaðinu um nýjan KFC-stað Stefna á þrjú þúsund hektara en endurheimtu þrettán Ein matskeið og þá er dauðinn vís Beint: Opið málþing um heimilisleysi „Vissi að ég var ekki að haga mér eins og venjulegt fólk“ Lægð suðvestan úr hafi væntanleg til landsins Hvað þýðir sjö í nýju námsmati? Fundu mikið magn vímuefna og peninga við leit Sláandi hugmyndir íslenskra karla um ofbeldi Bjóða út sorphirðu í Breiðholti til sex ára Reglur um dvalarleyfi hertar og filippseyskar au pair úr sögunni Leggur til að þingmenn verði 85 í stað 63 Skipti engu hvort ummælin hafi verið sett fram í kaldhæðni Marco Rubio á leið til Íslands „Dapurlegt pólitískt útspil hjá oddvita Samfylkingar“ Ekki búið að finna nýjan lögreglustjóra hátt í hálfu ári síðar Alvarlega slasaður eftir fall af svölum Árekstur við Hamraborg Engin aðstoð við próftöku og litaðar númeraplötur Uppsagnir hjá Klettabæ Ingó veðurguð hafði betur í Landsrétti Kristrún tilbúin í aðgerðir Inga vildi alls ekki svara spurningum fréttamanns Ákærður fyrir að nauðga sofandi og ölvaðri dóttur sinni Væntingar um útspil tengt gjaldahækkunum Neituðu sök við þingfestingu Straumsvíkurmálsins Kveður svefnlyfin eftir átján ára notkun Sjá meira