Rithöfundar fordæma ríkisstjórnina Jakob Bjarnar skrifar 12. desember 2014 14:43 Egill Örn vandar þeim Bjarna og Illuga ekki kveðjurnar og ljóst að þeir tveir eiga ekki uppá pallborðið þar né annars staðar meðal bókafólks.
Hækkun virðisaukaskatts eru gríðarleg vonbrigði, að sögn formanns Félags íslenskra bókaútgefenda. Í hádeginu í dag voru á Alþingi samþykktar breytingar á virðisaukaskatti, neðra þrepið hækkar úr sjö í ellefu prósent. Þetta þýðir að hækkun skatts á mat og bækur. Stjórnarþingmenn 35 að tölu greiddu atkvæði með hækkuninni. Rithöfundar, útgefendur og aðrir vinir bókarinnar mættu á þingpalla í dag og fylgdust með atkvæðagreiðslunni og mótmæltu. Afar þungt er í þeim hljóðið.Ríkisstjórnin slær heimsmet í ömurleika Egill Örn Jóhannsson er formaður Félags íslenskra bókaútgefenda og hann segir þetta gríðarleg vonbrigði og sjaldan hefur hefur hann verið eins ómyrkur í máli og nú: „Illugi Gunnarsson og vinur hans Bjarni Benediktsson, ásamt Elínu Hirst og fleirum að hækka skatta á íslenska bókaútgáfu, í nafni einföldunar? Það var vond ákvörðun. Ég gat ekki einu sinni ímyndað mér að þessi ríkisstjórn yrði jafn vond og hún svo er. Hún slær heimsmet í ömurleika sínum. Já, Illugi Gunnarsson, takk fyrir mótvægisaðgerðirnar!“ Egill Örn segir þetta sér gríðarleg vonbrigði. „Að verða fyrir aðför ríkisstjórnarinnar, sem vill kenna sig við þjóðmenningu og annað í þeim dúr, að íslenskri bókaútgáfu. Við höfum á undanförnum vikum kynnt fyrir stjórnarflokkunum ítarlega þá alvarlegu stöðu sem er í bransanum, en því miður fyrir daufum eyrum, þrátt fyrir að allir þykist skilja vandann þegar við þá er rætt. Ég hef fundað með ráðherrum, þingmönnum, aðstoðarmönnum og fleirum vegna þessara mála og allir hafa þóst skilja vandann og viljað breyta því sem fyrir lá. Það reyndist allt aum lygi þegar upp var staðið.“Verð á bókum mun hækka verulega Egill segir ekki liggja nákvæmlega fyrir hvað þetta hafi í för með sér, hvort þetta sé ávísun á gjaldþrot innan fagsins? „Það er ómögulegt að segja til um hvaða áhrif þetta hefur, en það er morgunljóst að verð á bókum mun hækka enda mun töluvert meira renna til ríkisins en áður í kjölfar virðisaukaskattshækkunarinnar. Vonandi tekst bransanum að mæta þessu og vonandi verður ekki samdráttur í sölu bóka, en reynslan erlendis frá er ekki uppörvandi þar sem virðisaukaskattshækkanir hafa orðið á bókum. Nýleg dæmi erlendis frá eru því miður þannig að bóksala hefur hrunið í kjölfar hækkunar á virðisaukaskatti. Ég vona innilega að það verði ekki raunin hér á landi.“
Mest lesið Bandarískir sendimenn mælist til þess að Trump sé hunsaður Erlent „Aulalegasti bófinn í bænum“ Innlent Skothvellir við Hvíta húsið Erlent Óttast um framtíð dóttur sinnar þegar þau geta ekki lengur hjálpað Innlent Skjálftahrina úti af Reykjanesi Innlent Hefja formlegar viðræður og senda væna pillu í leiðinni Innlent Almennur borgari veitti bílnum eftirför Innlent Maðurinn er fundinn Innlent Tómas tjáir sig um dóminn Innlent Á sýklalyfjum í 120 daga: „Þetta er enginn brandari“ Innlent Fleiri fréttir Meintur byssumaður 21 árs góðkunningi leyniþjónustunnar Skjálftahrina út af Reykjanesi Maðurinn er fundinn „Aulalegasti bófinn í bænum“ Hefja formlegar viðræður og senda væna pillu í leiðinni D og B endurnýja heitin í Fjarðabyggð Tómas tjáir sig um dóminn Á sýklalyfjum í 120 daga: „Þetta er enginn brandari“ Gæti dregið til tíðinda á næstu dögum eða stundum Sérsveitarmenn flugu til Ísafjarðar vegna vopnaðs manns „Einhvers konar toppur á ísjakanum“ Tvö mál ráði úrslitum Icelandair aflýsir fimm brottförum í dag Almennur borgari veitti bílnum eftirför Óttast um framtíð dóttur sinnar þegar þau geta ekki lengur hjálpað Flúðu eftir að hafa ekið á gangandi vegfaranda Tulsi Gabbard lætur af embætti Allt veltur á því hvort handaband teljist handsal Námsbækur barnanna búnar til „löngu áður en mamma og pabbi fæddust“ „Þetta hjól er næstum alltaf tómt“ Íslendingur vann 336 milljónir króna Sektaður fyrir að vera á nagladekkjum Hildur vilji Einar í meirihluta hvernig sem fer Var í geðrofi þegar Vinafélag Íslands-Norður-Kóreu var stofnað Bæjarstjóri Hafnarfjarðar fer yfir dramatíkina Undrandi á að Tómas fengi ekki að verja sig Verðlaunuð fyrir að bjóða unglingum upp á Sveitasælu Nýtt húsnæði ráðuneytis Ingu kostar níu milljónir á mánuði Margrét Helga til Ríkisútvarpsins Nýr meirihluti í Hörgársveit Sjá meira