Forsætisráðherra segir mikilvægt að rannsaka fangaflug Heimir Már Pétursson skrifar 12. desember 2014 19:30
Forsætisráðherra upplýsti á Alþingi í morgun að hafin væri rannsókn á því í utanríkisráðuneytinu hvort Ísland hafi verið misnotað af bandarísku leyniþjónustunni til að millilenda hér með ólöglega fanga. Hann tók undir með formanni Samfylkingarinnar að mikilvægt væri að kanna þetta mál á allan þann hátt sem kostur væri. Það má eiginlega segja að sá fátíði atburður hafi gerst í þinginu í morgun að Sigmundur Davíð Gunnlaugsson forsætisráðherra og Árni Páll Árnason formaður Samfylkingarinnar voru sammála. En afar erfitt er að muna tilvik þar sem það hefur gerst áður. Árni Páll spurði forsætisráðherra út í skýrslu bandarísku leyniþjónustunnar um pyntingar á föngum og saklausu fólki og ætla mætti að Ísland hafi verið nýtt til millilendinga með slíka fanga. En árið 2007 hafi verið mörkuð sú stefna að leita í flugvélum sem grunur lék á að væru með fanga CIA. En það er lítið vitað um tímabilið frá 2001 til 2007. Ég vil þess vegna spyrja hæstvirtan forsætisráðherra hvort þessi skýrsla kalli ekki á það að Ísland geri hreint fyrir sínum dyrum í þessu efni og við grennslumst fyrir um það til fulls hvað gerðist á þessum árum,“ sagði Árni Páll. Og spurði hvort stjórnvöld fyrir þennan tíma hafi veitt fyrirheit um leyfi til lendinga af þessu tagi. Forsætisráðherra sagðist ekki vita til þess að slík fyrirheit hafi verið gefin. Árið 2007 hafi verið skrifuð skýrsla um þessi mál. „Og nú veit ég til þess að utanríkisráðuneytið er aftur að fara yfir málið og rannsaka það í ljósi þeirra upplýsinga sem fram komu í fyrrnefndri skýrslu. Það er að segja skýrslu bandaríkjaþings,“ sagði Sigmundur Davíð. Þessi vinna stæði yfir í utanríkisráðuneytinu og vonandi lægi niðurstaða fyrir sem fyrst. „Því það má taka undir það með háttvirtum þingmanni að þetta er auðvitað mjög alvarlegt mál og mjög mikilvægt að kanna á allan þann hátt sem sem kostur er, hvort aðstaða á Íslandi hafi á einhvern hátt verið misnotuð í þessum aðgerðum,“ sagði forsætisráðherra.
Mest lesið Sláandi hugmyndir íslenskra karla um ofbeldi Innlent „Vissi að ég var ekki að haga mér eins og venjulegt fólk“ Innlent Laug að Morgunblaðinu um nýjan KFC-stað Innlent Reglur um dvalarleyfi hertar og filippseyskar au pair úr sögunni Innlent Stefna á þrjú þúsund hektara en endurheimtu þrettán Innlent Leggur til að þingmenn verði 85 í stað 63 Innlent Ein matskeið og þá er dauðinn vís Innlent Syrgði Sovétríkin og hótaði notkun kjarnorkuvopna Erlent Hvað þýðir sjö í nýju námsmati? Innlent Fær umboðið í fangið fjórum dögum eftir uppgjöf Erlent Fleiri fréttir Tilbúin að takmarka krónutölu og íslensk skólastúlka verður fyrir táragasi í París Laug að Morgunblaðinu um nýjan KFC-stað Stefna á þrjú þúsund hektara en endurheimtu þrettán Ein matskeið og þá er dauðinn vís Beint: Opið málþing um heimilisleysi „Vissi að ég var ekki að haga mér eins og venjulegt fólk“ Lægð suðvestan úr hafi væntanleg til landsins Hvað þýðir sjö í nýju námsmati? Fundu mikið magn vímuefna og peninga við leit Sláandi hugmyndir íslenskra karla um ofbeldi Bjóða út sorphirðu í Breiðholti til sex ára Reglur um dvalarleyfi hertar og filippseyskar au pair úr sögunni Leggur til að þingmenn verði 85 í stað 63 Skipti engu hvort ummælin hafi verið sett fram í kaldhæðni Marco Rubio á leið til Íslands „Dapurlegt pólitískt útspil hjá oddvita Samfylkingar“ Ekki búið að finna nýjan lögreglustjóra hátt í hálfu ári síðar Alvarlega slasaður eftir fall af svölum Árekstur við Hamraborg Engin aðstoð við próftöku og litaðar númeraplötur Uppsagnir hjá Klettabæ Ingó veðurguð hafði betur í Landsrétti Kristrún tilbúin í aðgerðir Inga vildi alls ekki svara spurningum fréttamanns Ákærður fyrir að nauðga sofandi og ölvaðri dóttur sinni Væntingar um útspil tengt gjaldahækkunum Neituðu sök við þingfestingu Straumsvíkurmálsins Kveður svefnlyfin eftir átján ára notkun „Ég væri að ljúga ef ég segði að það væri tilviljun“ Sniðganga geti verið túlkuð sem yfirlýsing ríkisstjórnarinnar Sjá meira