Mál tengd ofbeldi á heimilum þrefaldast Jón Sigurður Eyjólfsson skrifar 10. júlí 2014 07:00 Tilfellum þar sem lögreglan á Suðurnesjum hefur þurft að láta til sín taka vegna heimilisofbeldis hefur fjölgað verulega. Hún tekur á málinu af fullum þunga og leitar ýmissa leiða. Vísir/Getty
Heimilisofbeldismálum sem koma til kasta lögreglunnar á Suðurnesjum hefur fjölgað úr átján í fimmtíu og sex síðastliðin þrjú ár. Fjöldinn hefur því þrefaldast á þessum tíma. Skúli Jónsson, aðstoðaryfirlögregluþjónn á Suðurnesjum, segir að þar hafi menn mætt þróuninni með fullum þunga. Lögreglan þar hóf til dæmis tilraunaverkefni í byrjun árs 2012 sem kallað var „Að halda glugganum opnum“. Markmiðið var að gera verklagsreglur, alla afgreiðslu, eftirfylgni og forvarnir skilvirkari. „Þetta eru nú bara orðnar verklagsreglur hjá okkur í dag svo að þegar lögreglan er kölluð til þá opnast allir gluggar kerfisins þannig að félagsþjónusta, barnavernd og fleiri koma beint að málinu og svo höfum við eftirfylgni og vitjum fórnarlamba til að fyrirbyggja frekari vanda.“ Hann segir því að hluta af aukningunni megi skrifa á reikning skilvirkari verklagsreglna og eins vitundarvakningar í samfélaginu. Fyrir nokkrum dögum var tekinn í notkun neyðarhnappur sem ætlaður er fólki sem býr við viðkvæmar aðstæður, eins og Skúli orðar það. Það getur verið í tilfellum þar sem þolandi heimilisofbeldis býr við þá hættu að brotamaðurinn brjóti nálgunarbann og ógni öryggi þolanda. Verkefnið er gert í samvinnu við fyrirtæki í öryggisþjónustu sem leigir hnappinn. Aðeins einn notandi er með hnappinn enn sem komið er. Þolandinn er vaktaður hvar sem hann er á landinu og bregst lögregla viðkomandi umdæmis við ef notandinn neyðist til að hringja meðan hann er utan Suðurnesja. Lögregla í öllum umdæmum hefur einnig gögn um mál þolanda. Nýlundan er tilkomin að frumkvæði lögreglunnar á Suðurnesjum. „Við vorum á ráðstefnu í fyrravetur á Spáni og þar kom það fram að sums staðar er brugðist við þessu svona svo við ákváðum að prófa.“ Aðspurður hvort hann telji líklegt að þessir hnappar verði notaðir í fleiri tilfellum segir hann: „Ég get lítið sagt um það, það veltur á þolendum. En þetta er til staðar og viðleitni okkar líka.“ Hann segir enn fremur að hnappurinn geti haft fyrirbyggjandi áhrif því brotamaður sé ólíklegri til að leggja til atlögu viti hann af þessum öryggisventli þolandans.
Mest lesið Tveir létust í fjögurra bíla árekstri á Austurlandi Innlent Höfuðborgarsvæðið skalf Innlent „Auðvitað alltaf erfitt að koma að svona vettvangi“ Innlent Gerðu árás skömmu eftir að Þýskalandskanslari mætti Erlent Mennirnir sem létust voru feðgar Erlent Fundið brak úr flugvélinni sem týndist á leið frá Bermúda Erlent Katla skelfur Innlent „Þeir eru að borða gras úr garðinum og snigla“ Innlent Rektor Cornell-háskóla rýfur þögnina Erlent Viðbúnaður á slóðum Vítisengla Innlent Fleiri fréttir Ekki eina leiðin til að uppfylla skuldbindingar Íslands „Veit ekki hvort maður á að hlæja eða gráta eða brosa“ Fólk láti reyna á húsráð áður en það leiti á yfirfulla Læknavakt Sveitarstjórnin flytur sig um set vegna myglu Röð skjálfta ekki áhyggjuefni út af fyrir sig Gera þurfi breytingar á þingsköpum til að efla virðingu og traust Arnarnesvegur opnar loks á morgun „Þeir eru að borða gras úr garðinum og snigla“ Skjálfti upp á 3,4 „Auðvitað alltaf erfitt að koma að svona vettvangi“ Banaslys á Austurlandi og barátta upp á líf og dauða Hafði lítil afskipti af veisluhöldum Vítisenglanna Sprengisandur: Pólitíkin, fíknimeðferð og neistinn kveiktur Tveir létust í fjögurra bíla árekstri á Austurlandi Ók bílnum yfir kant og upp á gras en hafnaði að lokum á ljósastaur Höfuðborgarsvæðið skalf Viðbúnaður á slóðum Vítisengla Katla skelfur Salma nýr formaður ungra Miðflokksmanna „Okkur finnst við vera undanskilin“ Viðvörunarmerki fyrir íslenskt samfélag Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Smella af sér bílbeltunum á ógnarhraða og breytingar í Kerlingarfjöllum Gul viðvörun eftir stóra skriðu Illa brugðið en heill á húfi Handtekinn grunaður um að beita piparúða Lýsa eftir Halldóri Inga „Of margar sögur af vondri meðferð“ Halda hækkunum innan við 2,5 prósent og hætta við lækkun systkinaafsláttar Sjá meira