Engin klínísk brjóstaskoðun á Norðurlandi Ingvar Haraldsson & Stefán Ó. Jónsson skrifar 10. júlí 2014 11:26 Hildigunnur Svavarsdóttir og Sigríður Þorsteinsdóttir. „
Er einhver ávinningur í hreppaflutningum 250-300 kvenna á ári?“ spyr Þorbjörg Ingvadóttir, framkvæmdastjóri Krabbameinsfélag Akureyrar og nágrennis. Frá 16. júní hefur enginn læknir geta sinnt klínískum skoðunum á konum sem finna einkenni í brjóstum eða þurfa að fara í frekari skoðun eftir hópskoðun Krabbameinsfélagsins á Akureyri. Það hefur í för með sér að það í haust þegar hópleit Krabbameinsfélagsins hefst aftur munu þær konur sem hingað til hafa farið í klíníska brjóstakrabbameinsskoðun á Akureyri að ferðast til Reykjavíkur í sambærilega skoðun. „Staðan er mjög slæm, það munu milli 20 og 30 konur á mánuði þurfa að ferðast til Reykjavíkur í klíníska brjóstakrabbameinsskoðun sem hingað til hafa fengið þessa þjónustu í Reykjavík“ segir Þorbjörg. Hún bætir við að Sjúkratryggingar Ísland munu nú þurfa að borga megnið af ferðakostnaði þessa kvenna til höfuðborgarinnar sem samkvæmt hennar útreikningum gæti hlaupið á sjöundu milljón króna. „Þetta félag sem ég er í forsvari nær yfir 25.000 manna byggð. Ég hef áhyggjur af mínum skjólstæðingum sem munu þurfa að fara í burtu frá fjölskyldum fyrir skoðun í Reykjavík,“ segir Þorbjörg Hildigunnur Svavarsdóttir, framkvæmdastjóri bráða-, fræðslu- og gæðasviðs Sjúkrahússins á Akureyri segir vont að konurnar geti ekki fengið þessa þjónustu í heimabyggð. Fjórðungssjúkrahúsið hefur hingað til séð um þessar rannsóknir fyrir hönd Krabbameinsfélags Íslands og sjúkrahúsið hefur haft menntaðan röntgenlækni í verkið. Hann er nú kominn á eftirlaun og Hildigunnur segir það nú vera á forræði heilbrigðisráðuneytisins og Krabbameinsfélags Íslands að finna lausn á vandanum. „Það vantar fólk með rétta þjálfun í þetta en við munum reyna að finna flöt á þessu ófremdarástandi. Við getum þó ekki framleitt fólk í þetta á sex mánuðum.“Enginn læknir fæst í verkiðSigríður Þorsteinsdóttir, hjúkrunarframkvæmdastjóri hjá leitarstöð Krabbameinsfélags Íslands segir að óbreyttu að þessar konur munu þurfa að ferðast til Reykjavíkur. Þetta fyrirkomulag gildi þó ekki einungis fyrir Norðurland. Hingað til hafa konur alls staðar af landinu þurft að ferðast til Reykjavíkur. „Okkur finnst staðan ekki góð en vandamálið er að það finnst ekki röntgenlæknir í þetta.“ Sigríður bætir við að vandamálið eigi ekki bara við á Íslandi. „Það vantar röntgenlækna í brjóstamyndatökur og það er ekki séríslenskt. Það vantar lækna alls staðar í kringum okkur og það hefur verið mjög erfitt að fá lækna í þetta.“ Hún segir Krabbameinsfélagið þó vera með öll spjót úti og reyni að gera allt sem þau geti. „En okkur hefur ekki tekist að fá lækni í fasta stöðu, einungis tímabundið til að taka að sér verkefni. Þetta er ekki eitthvað sem læknar sækjast í í dag, því miður,“ segir Sigríður.
Mest lesið Tveir létust í fjögurra bíla árekstri á Austurlandi Innlent Höfuðborgarsvæðið skalf Innlent „Auðvitað alltaf erfitt að koma að svona vettvangi“ Innlent Gerðu árás skömmu eftir að Þýskalandskanslari mætti Erlent Mennirnir sem létust voru feðgar Erlent Fundið brak úr flugvélinni sem týndist á leið frá Bermúda Erlent Katla skelfur Innlent „Þeir eru að borða gras úr garðinum og snigla“ Innlent Rektor Cornell-háskóla rýfur þögnina Erlent Viðbúnaður á slóðum Vítisengla Innlent Fleiri fréttir Ekki eina leiðin til að uppfylla skuldbindingar Íslands „Veit ekki hvort maður á að hlæja eða gráta eða brosa“ Fólk láti reyna á húsráð áður en það leiti á yfirfulla Læknavakt Sveitarstjórnin flytur sig um set vegna myglu Röð skjálfta ekki áhyggjuefni út af fyrir sig Gera þurfi breytingar á þingsköpum til að efla virðingu og traust Arnarnesvegur opnar loks á morgun „Þeir eru að borða gras úr garðinum og snigla“ Skjálfti upp á 3,4 „Auðvitað alltaf erfitt að koma að svona vettvangi“ Banaslys á Austurlandi og barátta upp á líf og dauða Hafði lítil afskipti af veisluhöldum Vítisenglanna Sprengisandur: Pólitíkin, fíknimeðferð og neistinn kveiktur Tveir létust í fjögurra bíla árekstri á Austurlandi Ók bílnum yfir kant og upp á gras en hafnaði að lokum á ljósastaur Höfuðborgarsvæðið skalf Viðbúnaður á slóðum Vítisengla Katla skelfur Salma nýr formaður ungra Miðflokksmanna „Okkur finnst við vera undanskilin“ Viðvörunarmerki fyrir íslenskt samfélag Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Smella af sér bílbeltunum á ógnarhraða og breytingar í Kerlingarfjöllum Gul viðvörun eftir stóra skriðu Illa brugðið en heill á húfi Handtekinn grunaður um að beita piparúða Lýsa eftir Halldóri Inga „Of margar sögur af vondri meðferð“ Halda hækkunum innan við 2,5 prósent og hætta við lækkun systkinaafsláttar Sjá meira