Þúsund erlendar konur komu til að starfa við nektardans Kjartan Hreinn Njálsson skrifar 10. júlí 2014 20:00
Talið er að um eitt þúsund erlendar konur hafi komið hingað til lands um aldamótin til þess eins að starfa á nektardansstöðum sem þá voru þrettán talsins. Í kjölfar umræðu um vændi, mansal og einkadans og endanlegrar lagasetningar fækkaði nektardansstöðum í þrjá. Eftirspurnin er þó enn til staðar og tekst nú lögreglan enn á ný við breyttan veruleika. Aukning í vændi á Íslandi er rakin til nektardansstaða sem urðu áberandi hér á landi um og eftir aldamótin. Þetta á bæði við um framboð og eftirspurn en samkvæmt skilgreiningu alþjóðlegra samninga, svo sem Palermó-bókunarinnar og samnings Evrópuráðsins um aðgerðir gegn mansali, bar starfsemi þessi ýmis einkenni mansals. Í rannsókn Heiðu Bjarkar Vignisdóttur, lögfræðings, um tengsl vændis- og mansals við skipulagða glæpastarfsemi kemur fram að nektardansstaðirnir hafi verið þrettán talsins um aldamótin og að um eitt þúsund erlendar konur hafi komið hingað til lands, til þess eins að starfa á slíkum stöðum. Þær hafi undirritað ólöglega starfssamninga, verið lokaðar inni tímunum saman eftir lokun og farmiðar þeirra og vegabréf tekin af þeim. Þagnarsamningar voru undirritaðir í kjölfarið. Afkoma þessara staða byggðist á sölu einhvers konar kynferðislegs aðgangs að konunum, oft og tíðum einkadans, sem síðar var bannaður í júlí árið tvö þúsund og sjö. Á næstu misserum fækkaði stöðunum í þrjá. Tengsl nektardansstaða og kampavínsklúbba voru og eru óljós en sérfræðingar í mansalsmálum hafa bent á hliðstæður í starfsemi staðanna og þekktum vísbendingum um mansal og vændi. Alls leituðu tuttugu og sjö konur í Kristínarhús, sem var athvarf kvenna sem voru á leið úr vændi eða mansali. Rekstri athvarfsins var hætt á síðasta ári. Í rannsókn Heiðu Bjarkar, sem byggir meðal annars á viðtölum við yfirmenn hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu og aðila sem sinna málum fórnarlamba mansals og vændis, kemur fram að allir hafi verið sammála um að skilgreina mætti nánast allar konur sem þangað leituðu sem fórnarlömb mansals. Um helmingur kvennanna sem dvöldu í Kristínarhúsi var íslenskur og í langflestum tilfellum undir hælnum á skipulögðum glæpasamtökum. Hins vegar voru málin flókin og erfiðlega gekk að fá upplýsingar frá konunum þar sem þögn þeirra hafði verið tryggð. Samkvæmt upplýsingum frá lögreglu í dag er rannsókn á starfsemi kampavínsklúbba í Reykjavík nánast lokið en ákærusvið á eftir að taka ákvörðun um framhaldið. Lögreglan hóf rannsókn vegna gruns um ætlaða sölu eða milligöngu um vændis af hálfu forsvarsmanna og starfsmanna staðanna. Hluti rannsóknarinnar tekur jafnframt til peningaþvættis og vörslu fíkniefna. Þar sem kampavínsklúbbar eru ekki áberandi í dag beinir lögregla sjónum að breyttum starfsháttum vændisheimsins á Íslandi. Sú starfsemi fer fyrst og fremst fram í netheimum, á stefnumótasíðum og í skemmtanalífinu í Reykjavík þar sem hópar kvenna fara á milli skemmtistaða í miðbænum til að selja þjónustu sína.
Mest lesið Tveir létust í fjögurra bíla árekstri á Austurlandi Innlent Höfuðborgarsvæðið skalf Innlent „Auðvitað alltaf erfitt að koma að svona vettvangi“ Innlent Gerðu árás skömmu eftir að Þýskalandskanslari mætti Erlent Mennirnir sem létust voru feðgar Erlent Fundið brak úr flugvélinni sem týndist á leið frá Bermúda Erlent Katla skelfur Innlent „Þeir eru að borða gras úr garðinum og snigla“ Innlent Rektor Cornell-háskóla rýfur þögnina Erlent Viðbúnaður á slóðum Vítisengla Innlent Fleiri fréttir Ekki eina leiðin til að uppfylla skuldbindingar Íslands „Veit ekki hvort maður á að hlæja eða gráta eða brosa“ Fólk láti reyna á húsráð áður en það leiti á yfirfulla Læknavakt Sveitarstjórnin flytur sig um set vegna myglu Röð skjálfta ekki áhyggjuefni út af fyrir sig Gera þurfi breytingar á þingsköpum til að efla virðingu og traust Arnarnesvegur opnar loks á morgun „Þeir eru að borða gras úr garðinum og snigla“ Skjálfti upp á 3,4 „Auðvitað alltaf erfitt að koma að svona vettvangi“ Banaslys á Austurlandi og barátta upp á líf og dauða Hafði lítil afskipti af veisluhöldum Vítisenglanna Sprengisandur: Pólitíkin, fíknimeðferð og neistinn kveiktur Tveir létust í fjögurra bíla árekstri á Austurlandi Ók bílnum yfir kant og upp á gras en hafnaði að lokum á ljósastaur Höfuðborgarsvæðið skalf Viðbúnaður á slóðum Vítisengla Katla skelfur Salma nýr formaður ungra Miðflokksmanna „Okkur finnst við vera undanskilin“ Viðvörunarmerki fyrir íslenskt samfélag Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Smella af sér bílbeltunum á ógnarhraða og breytingar í Kerlingarfjöllum Gul viðvörun eftir stóra skriðu Illa brugðið en heill á húfi Handtekinn grunaður um að beita piparúða Lýsa eftir Halldóri Inga „Of margar sögur af vondri meðferð“ Halda hækkunum innan við 2,5 prósent og hætta við lækkun systkinaafsláttar Sjá meira