Kynntist skelfilegri meðferð á fílum í Asíu Bjarki Ármannsson skrifar 25. júní 2014 14:56 Bjarni Heiðar hvetur íslenska ferðamenn til að sniðganga staði sem bjóða upp á að hitta og fara á bak fíla. Myndir/Bjarni Heiðar Bjarnason
Bakpokaferðalög ungra Íslendinga til Suðaustur-Asíu (Taílands, Víetnam og nágrannaríkja) njóta mikilla vinsælda um þessar mundir. Bjarni Heiðar Bjarnason, sem starfaði í fílaverndarsvæði í Taílandi í viku nú nýverið, biðlar til ferðamanna á Facebook-síðu sinni að sniðganga staði á svæðinu sem bjóða upp á að hitta og fara á bak fíla.Barðir og fá ekki að sofa „Það er verið að sjá um fíla þarna sem hafa annað hvort komið úr túristaiðnaðinum eða úr svona „logging,“ þar sem fílar eru látnir draga tré og eitthvað í iðnað,“ segir Bjarni Heiðar Bjarnason um starf sitt á verndarsvæðinu. „Þeir eru allir frekar illa farnir, hata fólk.“ Ferðamannaiðnaðurinn í Taílandi gerir mjög mikið út á framandi dýr, ekki síst fíla. Fílar flytja ferðamenn yfir hóla og hæðir og leika allskyns kúnstir fyrir þá. „Þeir gera allskonar fyrir túrista sem þeir eiga ekkert að vera að gera, þannig séð,“ segir Bjarni. „Þetta eru villt dýr, þeir eiga ekkert að vera að standa á höndum og eitthvað svona rugl.“ Á meðan Bjarni starfaði úti útskýrðu yfirmenn hans fyrir honum hvernig fílarnir eru margir hverjir pyntaðir til undirgefni, í daga eða jafnvel vikur. „Ég fékk alveg „brútal“ lýsingu á því og sá myndir,“ segir hann. „Ég sá eitt myndband þar sem fíllinn var bundinn þannig að hann gat ekki sofið, fékk ekki að borða og var sleginn aftur og aftur með svona „bull hook,“ sem er svona spýta með krók á endanum.“Bjarni á fílaverndarsvæðinu.Mynd/Bjarni Heiðar BjarnasonDansa ennþá fyrir matnum Hann segir að fílarnir hafi borið þess merki hve illa var komið fram við þá. Eyru sumra þeirra voru rifin, aðrir verið þaktir í örum og einn eða tveir bakbrotnir. Á verndarsvæðinu er þessum fílum, sem margir hverjir koma frá eigendum sem réðu ekki lengur við þá, hjúkrað og gefið að borða. „Markmiðið er að þeir geti farið út og verið á stærra svæði einir,“ segir hann. „En það var sagt við okkur að nokkrir þeirra munu ekkert geta það. Til dæmis var einn fíllinn tekinn frá móður sinni nýfæddur og kann ekki að nota ranann sinn til að borða. Hann er tuttugu eða þrjátíu ára og það þarf að handfóðra hann. Sem er mjög undarlegt.“ Bjarni segist hafa velt fyrir sér hvort fílarnir geri sér grein fyrir að þeir séu í betri aðstæðum en áður. Þeir séu hræddir við Taílendinga og að þeir hafi tvisvar reynt að ráðast á Bjarna. „Við erum þannig séð óvinurinn. Svo er skrýtið að tveir fílarnir þarna dansa alltaf til að fá mat. Þeim var kennt að þeir þyrftu að dansa til að fá að borða og þeir gera það ennþá.“ Þessi meðferð á fílum og fleiri dýrum er mjög algeng í Taílandi og nágrannaríkjum þess. Bjarni segir innfædda þó ekki endilega líta á þetta sem vandamál. „Þetta svæði lifir á túrismanum. Það er allt gert fyrir ferðamennina. Þetta er ekkert að verða minna því það er svo mikill peningur í þessu. Ég var það stutt þarna að ég get ekki gert mikið annað en að setja þetta á Facebook og vona að einhverjir sjái þetta áður en þau fara til Asíu og hugsi, kannski ætti ég ekki að fá flotta „profile-mynd“ uppi á fíl.“
Mest lesið Þorvaldur gagnrýndur fyrir órökstudda spá um eldgos Innlent Netþrjótar herja á „mömmur“ landsins Innlent Tugir drukknuðu og margra enn saknað Erlent Demókratar flýja Texas svo þing geti ekki komið saman Erlent Hvalur skaut upp höfði upp við bryggjuna: „Þetta var alveg magnað“ Innlent Fyrrverandi ísraelskir foringjar biðla til Trump að ljúka stríðinu Erlent Elskar auglýsingarnar með Sweeney fyrst hún er Repúblikani Erlent „Allt uppselt“ af símum eftir rigninguna Innlent Slysið á sama stað og við sömu aðstæður og fyrri banaslys í fjörunni Innlent Fimm líkamsárásir í Vestmannaeyjum Innlent Fleiri fréttir Umdeildum framkvæmdum frestað og mengun í drykkjarvatni Fimm líkamsárásir í Vestmannaeyjum Allir blása í Landeyjahöfn Bónus og Prís virða frídag verslunarmanna en aðrir ekki Fimm vistaðir í fangaklefa eftir hópslagsmál Þórisvatn fullt í fyrsta skipti í sex ár Íslenskar konur gáfu nýjan búning á fjallkonuna í Gimli Þorvaldur gagnrýndur fyrir órökstudda spá um eldgos Einn handtekinn vegna líkamsárasar Gosmóða mældist í Hvalfirði og á Vík í Mýrdal Netþrjótar herja á „mömmur“ landsins Spennandi traktorstorfæra á Flúðum Hvalur skaut upp höfði upp við bryggjuna: „Þetta var alveg magnað“ Slysið á sama stað og við sömu aðstæður og fyrri banaslys í fjörunni Þorgerður styður stofnun leyniþjónustu Síðustu þrjú banaslys orðið á sama stað við sömu aðstæður „Allt uppselt“ af símum eftir rigninguna Þurfum ekki að loka landamærum en þurfum að opna augun Leggjast yfir hvað megi bæta í Reynisfjöru „Við erum auðvitað mjög slegin yfir þessu slysi“ Fullt af furðubátum keppa á Flúðum í dag Níu ára stúlka frá Þýskalandi sem lést Tilkynnt um þrjár líkamsárásir en flestir gestir „vel búnir, kurteisir og til fyrirmyndar“ Vinnsla stöðvuð í Vatnsfellsvirkjun vegna leka Ekki hlynntur lokun Reynisfjöru og líkamsárásir um helgina Meistaraverkefni sem endaði í The Lancet: „Af hverju ekki að miða hátt?“ Herjólfur siglir í dag Bandaríkin, innflytjendur og Gasa á Sprengisandi Olli slysi undir áhrifum fíkniefna Vestmanneyingar „slógu velferðarskjaldborg“ yfir gesti Sjá meira