Spáð er roki og rigningu fram undir helgi Jóhanna Margrét Einarsdóttir skrifar 1. júlí 2014 05:00 Ef veðurspáin gengur eftir verður ausandi rigning í dag á höfuðborgarsvæðinu og úrfelli sunnanlands síðdegis. Vísir/Arnþór
Ekki verður hundi út sigandi ef veðurspá Veðurstofu Íslands gengur eftir í dag. „Það er djúp lægð að ganga yfir landið. Það hvessir og úrkoma eykst sunnan- og suðvestanlands eftir því sem líður á morguninn,“ segir Hrafn Guðmundsson veðurfræðingur. Það verður talsverð rigning á höfuðborgarsvæðinu og síðdegis er gert ráð fyrir úrhellisrigningu sunnanlands. Þar sem spáð er miklu vatnsveðri geta ár og lækir bólgnað upp og ferðalöngum er bent á að fara með mikilli gát. „Það verður hvasst við fjöll í hviðum, stærstu vindhviðurnar geta orðið 35 til 40 metrar á sekúndu,“ segir Hrafn. Menn ættu að hafa varann á, sérstaklega ef þeir draga hjólhýsi, kerrur eða tjaldvagna.Hefurðu orðið var við vatnavexti eða áhrif votviðrisins um landið? Sendu okkur ábendingu eða myndir á ritstjorn@visir.is.Hlýjast syðst á landinu Í dag er gert ráð fyrir að hitinn verði á bilinu 12 til 20 stig, það verður hlýjast norðaustanlands. Spáin er slæm næstu daga. Á miðvikudag snýst vindur í vestan- og norðvestanátt, spáin gerir ráð fyrir 8 til 15 metrum á sekúndu. Rigningu er spáð norðan- og norðvestanlands en skúrum á höfuðborgarsvæðinu. Hitastigið verður á bilinu 12 til 15 stig. Það á svo að stytta upp sunnan- og suðvestanlands á föstudag, en þá snýst vindur í norðanátt. Við það kólnar heldur og spáð er 7 til 15 stiga hita, hlýjast verður syðst á landinu.
Mest lesið Tveir létust í fjögurra bíla árekstri á Austurlandi Innlent Gerðu árás skömmu eftir að Þýskalandskanslari mætti Erlent Höfuðborgarsvæðið skalf Innlent „Auðvitað alltaf erfitt að koma að svona vettvangi“ Innlent Mennirnir sem létust voru feðgar Erlent „Veit ekki hvort maður á að hlæja eða gráta eða brosa“ Innlent Fólk láti reyna á húsráð áður en það leiti á yfirfulla Læknavakt Innlent Fundið brak úr flugvélinni sem týndist á leið frá Bermúda Erlent Meirihlutinn sprakk eftir fjóra mánuði Innlent Katla skelfur Innlent Fleiri fréttir Meirihlutinn sprakk eftir fjóra mánuði Ekki eina leiðin til að uppfylla skuldbindingar Íslands „Veit ekki hvort maður á að hlæja eða gráta eða brosa“ Fólk láti reyna á húsráð áður en það leiti á yfirfulla Læknavakt Sveitarstjórnin flytur sig um set vegna myglu Röð skjálfta ekki áhyggjuefni út af fyrir sig Gera þurfi breytingar á þingsköpum til að efla virðingu og traust Arnarnesvegur opnar loks á morgun „Þeir eru að borða gras úr garðinum og snigla“ Skjálfti upp á 3,4 „Auðvitað alltaf erfitt að koma að svona vettvangi“ Banaslys á Austurlandi og barátta upp á líf og dauða Hafði lítil afskipti af veisluhöldum Vítisenglanna Sprengisandur: Pólitíkin, fíknimeðferð og neistinn kveiktur Tveir létust í fjögurra bíla árekstri á Austurlandi Ók bílnum yfir kant og upp á gras en hafnaði að lokum á ljósastaur Höfuðborgarsvæðið skalf Viðbúnaður á slóðum Vítisengla Katla skelfur Salma nýr formaður ungra Miðflokksmanna „Okkur finnst við vera undanskilin“ Viðvörunarmerki fyrir íslenskt samfélag Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Smella af sér bílbeltunum á ógnarhraða og breytingar í Kerlingarfjöllum Gul viðvörun eftir stóra skriðu Illa brugðið en heill á húfi Handtekinn grunaður um að beita piparúða Lýsa eftir Halldóri Inga „Of margar sögur af vondri meðferð“ Sjá meira