Frábær árangur Norðurlandaliða

Atli Jóhannsson tryggði Stjörnunni sem kunnugt er 3-2 sigur á Motherwell með frábæru marki á 115. mínútu í framlengdum leik á Samsung-vellinum. Síðustu fimm mínútur leiksins voru þær einu þar sem Stjörnumenn voru yfir í einvíginu.
Fyrri leikurinn í Skotlandi endaði með 2-2 jafntefli, en Stjarnan vann einvígið 5-4 samanlagt.
FH vann öruggan sigur á hvít-rússneska liðinu Neman Grodno í Kaplakrika í gær með tveimur mörkum frá Atla Guðnasyni og nafna hans Viðari Björnssyni.
Liðin gerðu 1-1 jafntefli í Hvíta-Rússlandi, en FH vann einvígið 3-1 samanlagt.
Svíþjóð á fjóra fulltrúa í þriðju umferðinni, en IFK Gautaborg, Brommapojkarna, AIK og Elfsborg komust öll áfram, en síðastnefnda liðið mætir FH í næstu umferð.
Tvö norsk lið komust áfram; Molde hafði betur gegn Gorica frá Slóveníu og Rosenborg sló Sligo Rovers frá Írlandi út.
Annað norskt lið, Tromsø, féll hins vegar úr leik fyrir Víkingi frá Færeyjum eins og fjallað var um á Vísi fyrr í dag.
Þá hafði Esbjerg frá Danmörku betur gegn Kairat frá Kasakstan, 2-1 samanlagt.
Lið frá Norðurlöndunum sem komust áfram í Evrópudeildinni í gær:
Stjarnan 5-4 Motherwell
FH 3-1 Neman Grodno
IFK Gautaborg 3-1 Győr (Ungverjaland)
Brommapojkarna 5-1 Crusaders (Norður-Írland)
AIK 2-1 Linfield (Norður-Írland)
Elfsborg 1-1 (4-3 í vítaspyrnukeppni) Inter Baku (Aserbaídsjan)
Molde 5-2 Gorica
Rosenborg 4-3 Sligo Rovers
Víkingur 2-1 Tromsø
Esbjerg 2-1 Kairat
Tengdar fréttir

Umfjöllun, viðtöl og myndir: Stjarnan - Motherwell 3-2 | Milljónamark Atla
Atli Jóhannsson skaut Stjörnunni áfram í Evrópudeildinni með ótrúlegu marki.

Rúnar: Við hlökkum mikið til
Stjarnan og Motherwelll mætast í kvöld í 2. umferð forkeppni Evrópudeildarinnar.

Atli: Var búinn að kaupa miða á Þjóðhátíð
Hélt fyrst að boltinn hefði farið yfir þegar hann skoraði sigurmark Stjörnunnar gegn Motherwell.

Stjarnan byrjar á heimavelli
Stjarnan og FH komust bæði áfram í þriðju umferð forkeppni Evrópudeildar UEFA.

Tveimur toppslögum frestað
Góður árangur Stjörnunnar og FH í Evrópukeppninni riðlar niðurröðun leikja í Pepsi-deild karla.

Fjölmargir Skotar ekki með miða
Von á 3-400 stuðningsmönnum Motherwell hingað til lands en aðeins 150 eiga miða.

Evrópuævintýri Víkings heldur áfram
Víkingur frá Götu heldur áfram að koma á óvart í forkeppni Evrópudeildarinnar.

Von er á einni bestu stuðningsmannsveit Evrópu
Með sigri gegn Motherwell í gær komst Stjarnan í 3. umferð undankeppni Evrópudeildarinnar en næsti mótherji er Lech Poznan. Stuðningsmenn liðsins eru gríðarlega ástríðufullir og verður gaman að sjá hversu margir mæta til landsins.

Umfjöllun, viðtöl og myndir: FH - Neman Grodno 2-0 | Atlarnir sáu um Grodno
FH-ingar mæta Elfsborg í næstu umferð.