Ísland mannar stöðu hjá NATO vegna Krímskaga Brjánn Jónasson skrifar 4. júní 2014 07:00 Leiðtogar aðildarríkja NATO munu ákveða langtímaviðbrögð bandalagsins við aðgerðum Rússlands í Úkraínu sagði Anders Fogh Rasmussen, framkvæmdastjóri NATO, við upphaf fundar varnarmálaráðherra aðildarríkja NATO, sem hófst í Brussel í gær. Nordicphotos/AFP
Ísland leggur til fulltrúa í nýja stöðu innan Atlantshafsbandalagsins (NATO) sem er hluti af auknum viðbúnaði bandalagsins vegna innlimunar Rússlands á Krímskaga og stuðnings Rússlands við aðgerðir aðskilnaðarsinna í austurhluta Úkraínu. Mikil áhersla er lögð á það innan NATO að öll aðildarríkin 28 taki þátt í viðbrögðunum, sem sýna eiga samstöðu bandalagsins. Ekki er búið að tilkynna um það opinberlega hvert hlutverk íslenska fulltrúans verður, en líklegt er að hann muni starfa í höfuðstöðvum NATO í Brussel. „Þetta er sannarlega einn fyrir alla og allir fyrir einn,“ sagði Anders Fogh Rasmussen, framkvæmdastjóri NATO, á fundi með blaðamönnum við upphaf tveggja daga fundar varnarmálaráðherra NATO, sem hófst í Brussel í gær. Aðildarríki NATO hafa þegar brugðist við aðgerðum Rússlands með því að stöðva alfarið hernaðarsamstarf við Rússland og auka viðbúnað í aðildarríkjum NATO sem eiga landamæri að Rússlandi, til dæmis Eystrasaltsríkjunum, Póllandi og Rúmeníu. Rasmussen lagði á það áherslu í gær að aðgerðir Rússlands væru ólöglegar og að aðildarríki NATO viðurkenndu ekki innlimun Krímskaga. Hann sagði hernaðaraðgerðir ekki á dagskrá, heldur yrði reynt að beita diplómatískum leiðum. Rasmussen sagði Rússa verða að draga enn meira úr viðbúnaði sínum á landamærum Úkraínu, hætta stuðningi við vopnuð „gengi“ í Austur-Úkraínu og standa við alþjóðlegar skuldbindingar landsins ef finna ætti diplómatíska lausn á deilunni. Á fundi varnarmálaráðherrana, sem stóð fram á kvöld í gær og heldur áfram í dag, á meðal annars að ræða langtímaviðbrögð við innlimun Krímskaga og aðgerðum Rússlands í Austur-Úkraínu. Ekki er búist við því að teknar verði afdrifaríkar ákvarðanir um framtíðarsamskipti NATO og Rússlands eða tilfærslu á herafla NATO-ríkjanna. Þær ákvarðanir munu væntanlega bíða leiðtogafundar NATO-ríkjanna sem fara mun fram í Wales í Bretlandi í september. NATO þarf að bregðast við algerlega nýrri stöðu í öryggismálum eftir aðgerðir Rússlands í Úkraínu. „Ógnum við öryggi okkar er að fjölga, og þær eru að verða óútreiknanlegri,“ segir Rasmussen. Það er ljóst að það kom NATO gersamlega í opna skjöldu þegar Rússland innlimaði Krímskaga með því að beita fyrir sig ómerktum hermönnum og rússneskumælandi íbúum Úkraínu. NATO hafði fram að því talið samstarfið við Rússland á réttri leið. Leiðtogafundur NATO-ríkjanna í september átti upphaflega að marka tímamót þar sem hernaðaraðgerðum aðildarríkja NATO í Afganistan mun ljúka í lok árs eftir lengstu hernaðaraðgerðir bandalagsins frá upphafi. Nú er ljóst að ástandið í Úkraínu og viðbrögðin við aðgerðum Rússlands verða þar efst á blaði.
Mest lesið Athafnamaður sagður handtekinn í Leifsstöð Innlent Fékk ekki að borða nema hún stundaði kynlíf Innlent Handtekin í Bandaríkjunum grunuð um njósnir Erlent Meirihlutinn sprakk eftir fjóra mánuði Innlent Tveir komnir með höfuðið inn um gluggann Innlent Skólabörn sáu nakinn hótelgest úr skólastofunni Innlent Sýknaður eftir að hafa skotið mann til bana í dyragættinni Erlent Vann óvæntan sigur í fyrri umferðinni Erlent Fólk láti reyna á húsráð áður en það leiti á yfirfulla Læknavakt Innlent Stofnar „Ofurgreindarstjórnina“ þrátt fyrir ákall um hægari þróun Erlent Fleiri fréttir Slitu samstarfinu vegna trúnaðarbrests „sem ekki var hægt að líta framhjá“ Fékk ekki að borða nema hún stundaði kynlíf Tveir komnir með höfuðið inn um gluggann Athafnamaður sagður handtekinn í Leifsstöð Skólabörn sáu nakinn hótelgest úr skólastofunni Meirihlutinn sprakk eftir fjóra mánuði Ekki eina leiðin til að uppfylla skuldbindingar Íslands „Veit ekki hvort maður á að hlæja eða gráta eða brosa“ Fólk láti reyna á húsráð áður en það leiti á yfirfulla Læknavakt Sveitarstjórnin flytur sig um set vegna myglu Röð skjálfta ekki áhyggjuefni út af fyrir sig Gera þurfi breytingar á þingsköpum til að efla virðingu og traust Arnarnesvegur opnar loks á morgun „Þeir eru að borða gras úr garðinum og snigla“ Skjálfti upp á 3,4 „Auðvitað alltaf erfitt að koma að svona vettvangi“ Banaslys á Austurlandi og barátta upp á líf og dauða Hafði lítil afskipti af veisluhöldum Vítisenglanna Sprengisandur: Pólitíkin, fíknimeðferð og neistinn kveiktur Tveir létust í fjögurra bíla árekstri á Austurlandi Ók bílnum yfir kant og upp á gras en hafnaði að lokum á ljósastaur Höfuðborgarsvæðið skalf Viðbúnaður á slóðum Vítisengla Katla skelfur Salma nýr formaður ungra Miðflokksmanna „Okkur finnst við vera undanskilin“ Viðvörunarmerki fyrir íslenskt samfélag Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Smella af sér bílbeltunum á ógnarhraða og breytingar í Kerlingarfjöllum Sjá meira