Segja að hörmulegt ástand eigi þátt í því að fangar hafi reynt að taka líf sitt Stefán Árni Pálsson skrifar 4. júní 2014 11:29 Afstaða harmar málflutninga Páls Winkels.
Afstaða, hagsmunafélag fanga, harmar málflutning forstjóra Fangelsismálastofnunar ríkisins í kvöldfréttum fréttastofu RÚV í gærkvöldi en þetta kemur fram í yfirlýsingu frá félaginu. Fram kom í kvöldfréttum RÚV í gær að nýjar reglur í fangelsum landsins meina föngum að fara inn í klefa hjá öðrum. „Reynslan hefur sýnt okkur að ofbeldi í fangelsum á sér stað þar sem eftirlit er lítið, það er að segja myndavélar ekki til staðar, og það er inni á klefum“ sagði Páll Winkel, fangelsismálastjóri, í kvöldfréttum RÚV í gær. „Fangar hafa mikið aðgengi hver af öðrum yfir daginn, á setustofum, mötuneytum, vinnustöðum, námi, útivist og svo framvegis. En við teljum mjög mikilvægt að fangaklefinn sé griðastaður fangans, þar sem hann þarf ekki að hafa áhyggjur af því að menn ryðjist inn á klefa og taki þar út muni eða gangi í skrokk á viðkomandi.“ Í yfirlýsingu Afstöðu kemur fram að útskýringar Páls Winkel, forstjóra stofnunarinnar, á skammarlega bágri sálgæsluþjónustu innan veggja fangelsa landsins séu fyrir neðan allar hellur. „Við viljum ítreka fyrri fullyrðingar okkar þess efnis að enginn sálfræðingur starfi nú í fastri og fullri vinnu í fangelsum landsins við þá lágmarks heilbrigðisþjónustu sem sálgæsla svo sannarlega er. Hið hörmulega ástand í þessum málum hefur án nokkurs vafa átt sinn þátt í því að tveir fangar hafi reynt að taka sitt líf undanfarnar vikur. Ljóst er að ekki nokkurt faglegt eftirlit er með andlegu álagi og líðan þess frelsissvipta hópi fólks sem í umsjón og á ábyrgð Fangelsismálastofnunar afplánar sína dóma nú. Afstaða fordæmir harkalega þá hræðilegu skammsýni og metnaðarleysi þeirra sem alla ábyrgð bera, Fangelsismálastofnun ríkisins og forstjóra þess.“ Fram kemur í yfirlýsingunni að Afstaða undri sig á einstaklega ódýrum réttlætingum Páls á nýjum reglum sem banna föngum eðlilega og óþvingaða samveru inni á einkarýmum þeirra. „Vill Afstaða auðmjúklega benda á að slíkar reglur eiga sér enga hliðstæðu í þeim löndum sem við berum okkur svo gjarnan saman við. Það er ekki að ástæðulausu. Slíkar reglur eru einungis til þess fallnar að einangra fanga meira félagslega heldur en ella. Árið 2005 gáfu þrír sérfræðingar Fangelsismálastofnunar út skýrslu um sjálfsvíg í fangelsum það árið. Þar mæltu þeir eindregið á móti slíkri einangrun eins og nýju reglurnar mæla fyrir um.“ Þá er Afstöðu óskiljanlegt hvernig hinar nýju reglur geti mögulega komið í veg fyrir ofbeldi meðal fanga í ljósi þess að allar klefahurðir eru ólæsanlegar innanfrá. „Ólíklegt verður að teljast að menn í ofbeldishug láti einhverjar umgengisreglur stöðva sig, ef sá gállinn er á þeim. Ef forstjóranum væri umhugað um öryggi sinna skjólstæðinga, þá væri honum í lófa lagið að setja upp slíkar læsingar, enda er það vel þekktur öryggisbúnaður í langflestum fangelsum norðurlanda. Sem betur fer heyrir ofbeldi meðal fanga inni á vistarverum þeirra til algjörra undantekninga.“ Páll Winkel sagði að traust yrði að ríkja á milli aðila svo af samstarfi geti orðið. Því er Afstaða hjartanlega sammála. „Afstaða hvetur því Pál, sem hingað til hefur algjörlega hafnað öllum samskiptum og viðræðum við talsmenn fanga, til að brjóta odd af oflæti sínu og hlusta á og virða sjónarmið og ábendingar okkar. Það teljum við einu raunhæfu leiðina til að byggja upp á ný það traust sem stofnunin hefur undanfarin ár vanvirt og fótum troðið.“
Mest lesið Greinir frá nauðgun eftir sýningu í Þjóðleikhúsinu Innlent Ingó veðurguð hefur fengið meira en nóg Innlent Sigríður Björk aftur færð til Innlent Forseti klökknaði þegar Þórdís Kolbrún kvaddi Innlent „Dreginn inn í umræðu þar sem engar staðreyndir eða neitt liggja fyrir“ Innlent Grindavík og Hveragerði talin í mestri hættu vegna eldgosa Innlent Hafi flestir verið að gera félögum greiða þegar þeir tóku við efnum í sófa og morgunkornskössum Innlent Foksandur og rykagnir búa í þokunni Innlent „Líður stundum eins og ég sé með pólitískan eltihrelli“ Innlent Tveir flokkar í Garðabæ útiloka samstarf Innlent Fleiri fréttir Við þurfum að vera tilbúin að takast á við eldgosavá Fiskflutningabíll valt á Þorlákshafnarvegi „Vitum ekkert hvað við eigum von á mörgum“ Tveir flokkar í Garðabæ útiloka samstarf Vaka kaus sér nýja forystu Segir ráðherra fá of lausan taum í nýjum sóttvarnalögum Dyflinarreglugerðin ekki afnumin þótt orðalag breytist Hættusvæði vegna hraunrennslis, almyrkvi og afmæli Sviptur réttindunum á staðnum Tilfærsla Sigríðar Bjarkar tímabundin Alma Möller fagnar nýjum sóttvarnalögum „Líður stundum eins og ég sé með pólitískan eltihrelli“ Grindavík og Hveragerði talin í mestri hættu vegna eldgosa Gæsluvarðhald framlengt yfir þremur í Dettifossmálinu Ekki hafi verið hægt að sýna fram á meinta nauðgun Forseti klökknaði þegar Þórdís Kolbrún kvaddi Megi búast við útskúfun úr samfélaginu eftir afplánun Orðinn máttvana í útlimum þegar hjálpin barst Sigríður Björk aftur færð til Gagnrýnin komi ekki á óvart en telja sig vera að gera rétt Kosningapallborð fréttastofu: Mun Sjálfstæðisflokkurinn halda velli í Garðabæ? Launamál í verkalýðshreyfingunni og þingmaður hætt kominn á kajak Ingibjörg þarf ekki að víkja í máli Margrétar Foksandur og rykagnir búa í þokunni Var bjargað úr sjónum eftir hálftíma: „Slysin gera ekki boð á undan sér“ Bílvelta á Hringbraut Umfangsmikil lögregluaðgerð vegna líkamsárásar Tungumálið gerir Ísland að landi tækifæranna Ingó veðurguð hefur fengið meira en nóg Hafi flestir verið að gera félögum greiða þegar þeir tóku við efnum í sófa og morgunkornskössum Sjá meira
Hafi flestir verið að gera félögum greiða þegar þeir tóku við efnum í sófa og morgunkornskössum Innlent
Hafi flestir verið að gera félögum greiða þegar þeir tóku við efnum í sófa og morgunkornskössum Innlent