Viktoría krónprinsessa Svíþjóðar heimsækir Ísland Randver Kári Randversson skrifar 4. júní 2014 14:54 Viktoría krónprinsessa Svíþjóðar og Daníel prins. Mynd/AP
Viktoría krónprinsessa Svíþjóðar og eiginmaður hennar Daníel prins heimsækja Ísland í boði forseta Íslands Ólafs Ragnars Grímssonar dagana 18. og 19. júní næstkomandi. Þetta kemur fram í tilkynningu frá forsetaembættinu. Heimsóknin hefst með komu Viktoríu krónprinsessu og Daníels prins til Bessastaða að morgni miðvikudagsins 18. júní. Að lokinni samverustund með forsetahjónunum munu gestirnir hitta íslenska og sænska blaðamenn. Frá Bessastöðum verður haldið í Hörpu þar sem fram fer kynning á íslensku tónlistarlífi og menningu. Í hádeginu bjóða Sænsk-íslenska viðskiptaráðið og sænska sendiráðið til hádegisverðar og kynningarfundar í Norræna húsinu. Að því loknu verður farið í Hellisheiðarvirkjun þar sem forystumenn í orkumálum og þróunarstarfi munu m.a. fjalla um starf Jarðhitaskóla Sameinuðu þjóðanna á Íslandi og verkefni í Afríku. Þaðan liggur leiðin í Össur þar sem fram fer kynning á vörum og starfsemi fyrirtækisins. Í lok dags bjóða forsetahjónin til kvöldverðar á Bessastöðum til heiðurs hinum tignu gestum. Að morgni fimmtudagsins 19. júní verður haldið til Húsavíkur, farið í hvalaskoðun, heilsað upp á íbúa bæjarins og snæddur hádegisverður í boði Sigmundar Davíðs Gunnlaugssonar forsætisráðherra. Að lokinni skoðunarferð um Mývatn og Námaskarð, verður staðnæmst við Goðafoss áður en komið verður til Akureyrar. Í Háskólanum á Akureyri taka gestirnir þátt í málþingi um samvinnu á Norðurslóðum. Á undanförnum árum hafa ríkisarfar Noregs og Danmerkur heimsótt Ísland í boði forseta og með heimsókn Viktoríu krónprinsessu nú hafa allir ríkisarfar Norðurlanda sótt Ísland heim.
Mest lesið Líbanon viðurkenni Ísrael sem ríki Erlent Gular viðvaranir á norðvesturhorninu: Rýma atvinnuhúsnæði og loka vegum Veður Hóta höfnum eftir árás á „krúnudjásnið“ Erlent Lokuðu aftur Rammagerðinni þrátt fyrir úrskurð um greiðsluskjól Innlent Brynja Dan slítur öll tengsl við flokkinn Innlent Pítsan sem kostaði 7.740 krónur Innlent Lentu í harkalegum árekstri augnablikum eftir nauðgun Innlent „Nú getum við sagt það fullum hálsi“ Innlent Allt sem íbúar og tónleikagestir þurfa að vita Innlent „Undarlegt að það hafi ekki orðið mannslát þarna“ Innlent Fleiri fréttir Lokuðu aftur Rammagerðinni þrátt fyrir úrskurð um greiðsluskjól Tollmiðlari í stafni S-listans í Hveragerði Kosningar hafnar um sameiningu hreppanna Hefur ekki minnstu áhyggjur af bænum sem þurfti að rýma „Nú getum við sagt það fullum hálsi“ Flutningstakmarkanir kosti samfélagið milljarða árlega Pítsan sem kostaði 7.740 krónur „Þetta er ekkert grín“ Eyþór leiðir en vill ekki stólinn Hætta við flutninga á Skólavörðuholtið „Undarlegt að það hafi ekki orðið mannslát þarna“ Reykt þorskhrogn og handgerð páskaegg í Hörpu Gestir geti spókað sig í þjóðbúningi á samstöðufundi Ótrúlegt að ekki hafi orðið mannslát og óþolandi sóun raforku Brynja Dan slítur öll tengsl við flokkinn Stórt snjóflóð við Siglufjörð og veginum lokað Ákvörðunin stærri en núverandi ríkisstjórn Einn réðst á dyravörð og um tíu voru grunaðir um akstur undir áhrifum Matthías leiðir Framsókn í Árborg „Ekki rétt með farið að einkareknu stöðvarnar séu að skara fram úr“ Svona lítur nýja skólaþorpið í Laugardal út Samfélag sem hugsi svona þurfi líka endurhæfingu Kjartan Kjartansson hlaut blaðamannaverðlaun ársins Útför áhrifamanns, átök um úttekt Viðskiptaráðs og upphitun fyrir Laufeyju Lín Stofna framboð fyrir þá sem leggjast gegn sameiningu Bein útsending: Blaðamennska ársins verðlaunuð Fannst hvergi og var dæmdur í fangelsi Holtavörðuheiði var lokað vegna slyss Listar Vöku kynntir með pompi og prakt Skíðagöngumennirnir komnir í skjól Sjá meira