Sjálfstæðisflokkur og Framsókn í samstarf í Borgarbyggð Samúel Karl Ólason skrifar 4. júní 2014 17:36 Vísir/Vilhelm
Fulltrúar Sjálfstæðisflokks og Framsóknarflokks hafa undirritað samkomulag um meirihlutasamstarf í sveitarstjórn Borgarbyggðar. Björn Bjarki Þorsteinsson, oddviti Sjálfstæðisflokksins, verður forseti sveitarstjórnar og Guðveig Anna Eyglóardóttir, oddviti framsóknarmanna, verður forseti byggðarráðs. Þetta kemur fram í tilkynningu frá D- og B-listum í Borgarbyggð, en þar segir einnig að gengið hafi verið frá samkomulagi við Kolfinnu Jóhannesdóttur, núverandi skólameistara Menntaskóla Borgarfjarðar, um starf sveitarstjóra í Borgarbyggð. „Við lítum björtum augum fram á veginn. Þetta er öflugur hópur sem myndar meirihlutann og það er okkar markmið að skapa góðan vinnuanda í sveitarstjórninni,“ segir í tilkynningunni sem þau Björn Bjarki og Guðveig sendu frá sér. Tilkynninguna alla má lesa hér að neðan:Fulltrúar Sjálfstæðisflokks og Framsóknarflokks í sveitarstjórn Borgarbyggðar hafa undirritað samkomulag um meirihlutasamstarf í sveitarstjórninni. Forseti sveitarstjórnar verður Björn Bjarki Þorsteinsson, oddviti Sjálfstæðismanna, og Guðveig Anna Eyglóardóttir, oddviti Framsóknarmanna, verður formaður byggðarráðs. Jafnframt hefur verið gengið frá samkomulagi við Kolfinnu Jóhannesdóttur, núverandi skólameistara Menntaskóla Borgarfjarðar, um starf sveitarstjóra í Borgarbyggð. Kolfinna hefur víðtæka reynslu af rekstri og stjórnun, hún hefur gegnt fjölmörgum trúnaðarstörfum í gegnum tíðina og átti m.a. sæti í sveitarsjórn Borgarbyggðar á árunum 1998 til 2006. Hún er með BS í viðskiptafræði og MA nám frá Háskólanum á Bifröst. Kolfinna er auk þess með diplóma í Educational leadership and management frá Nottingham university og kennslufræðum frá Háskólanum í Reykjavík. Hún stundaði nám við London School of Economics and Political Science sumarið 2009. Kolfinna er búsett í Norðtungu, hennar maður er Magnús Skúlason og eiga þau þrjá uppkomna syni.Við lítum björtum augum fram á veginn segja þau Bjarki og Guðveig, þetta er öflugur hópur sem myndar meirihlutann og það er okkar markmið að skapa góðan vinnuanda í sveitarstjórninni allra segja þau. Nafn Kolfinnu kom upp í samtali okkar strax á sunnudaginn og eftir að hafa átt samtöl við hana kom glöggt í ljós að Kolfinna hafði áhuga og metnað til að taka þetta krefjandi starf að sér þannig að horfið var frá því að auglýsa starfið fyrst að heimamanneskja með alla þá þekkingu og burði sem Kolfinna hefur var klár í slaginn. Það eru margir jákvæðir hlutir að gerast í samfélaginu og það er hlutverk sveitarstjórnar að styðja við bakið á öflugu mannlífi og það ætlum við að gera auk þess sem við þurfum að beita okkur í samskiptum við ríkisvaldið varðandi opinber störf, bættar vegasamgöngu, öflugri nettengingar og áfram mætti telja, framtíðin er björt í Borgarbyggð og við megum ekki láta svona hluti verða einhvern þröskuld í veginum til að gera gott samfélag enn betra.f.h. D og B lista í BorgarbyggðBjörn Bjarki Þorsteinsson og Guðveig Anna Eyglóardóttir
Mest lesið Greinir frá nauðgun eftir sýningu í Þjóðleikhúsinu Innlent Ingó veðurguð hefur fengið meira en nóg Innlent Sigríður Björk aftur færð til Innlent Forseti klökknaði þegar Þórdís Kolbrún kvaddi Innlent „Dreginn inn í umræðu þar sem engar staðreyndir eða neitt liggja fyrir“ Innlent Grindavík og Hveragerði talin í mestri hættu vegna eldgosa Innlent Hafi flestir verið að gera félögum greiða þegar þeir tóku við efnum í sófa og morgunkornskössum Innlent Foksandur og rykagnir búa í þokunni Innlent Tveir flokkar í Garðabæ útiloka samstarf Innlent Fiskflutningabíll valt á Þorlákshafnarvegi Innlent Fleiri fréttir Við þurfum að vera tilbúin að takast á við eldgosavá Fiskflutningabíll valt á Þorlákshafnarvegi „Vitum ekkert hvað við eigum von á mörgum“ Tveir flokkar í Garðabæ útiloka samstarf Vaka kaus sér nýja forystu Segir ráðherra fá of lausan taum í nýjum sóttvarnalögum Dyflinarreglugerðin ekki afnumin þótt orðalag breytist Hættusvæði vegna hraunrennslis, almyrkvi og afmæli Sviptur réttindunum á staðnum Tilfærsla Sigríðar Bjarkar tímabundin Alma Möller fagnar nýjum sóttvarnalögum „Líður stundum eins og ég sé með pólitískan eltihrelli“ Grindavík og Hveragerði talin í mestri hættu vegna eldgosa Gæsluvarðhald framlengt yfir þremur í Dettifossmálinu Ekki hafi verið hægt að sýna fram á meinta nauðgun Forseti klökknaði þegar Þórdís Kolbrún kvaddi Megi búast við útskúfun úr samfélaginu eftir afplánun Orðinn máttvana í útlimum þegar hjálpin barst Sigríður Björk aftur færð til Gagnrýnin komi ekki á óvart en telja sig vera að gera rétt Kosningapallborð fréttastofu: Mun Sjálfstæðisflokkurinn halda velli í Garðabæ? Launamál í verkalýðshreyfingunni og þingmaður hætt kominn á kajak Ingibjörg þarf ekki að víkja í máli Margrétar Foksandur og rykagnir búa í þokunni Var bjargað úr sjónum eftir hálftíma: „Slysin gera ekki boð á undan sér“ Bílvelta á Hringbraut Umfangsmikil lögregluaðgerð vegna líkamsárásar Tungumálið gerir Ísland að landi tækifæranna Ingó veðurguð hefur fengið meira en nóg Hafi flestir verið að gera félögum greiða þegar þeir tóku við efnum í sófa og morgunkornskössum Sjá meira
Hafi flestir verið að gera félögum greiða þegar þeir tóku við efnum í sófa og morgunkornskössum Innlent
Hafi flestir verið að gera félögum greiða þegar þeir tóku við efnum í sófa og morgunkornskössum Innlent