Almennt launafólk krefst leiðréttinga eins og aðrir Heimir Már Pétursson skrifar 26. nóvember 2014 19:30
Verðbólga mælist eitt prósent í þessum mánuði og hefur ekki mælst lægri í sextán ár. Forseti Alþýðusambandsins segir almennt launafólk ætlast til að það fái leiðréttingu á sínum kjörum eins og aðrir og njóti þess árangurs sem það hafi lagt grunninn að. Stefna ríkisstjórnar og sveitarfélaga ráði miklu um framhaldið. Verðbólga hefur verið innan markmiða Seðlabankans í níu mánuði. Gylfi Arnbjörnsson forseti Alþýðusambandsins segir að þakka megi samningum sem gerðir voru í lok síðasta árs þennan árangur en launafólk sitji enn óbætt hjá garði. Verðbólga í nóvember mælist 1 prósent og hefur ekki verið lægri frá árinu 1998 og aldrei eins lág frá því Seðlabankinn fór að vinna eftir verðbólgumarkmiðum í mars árið 2001. En það var eitt af meginmarkmiðum síðustu kjarasamninga á almennum markaði að ná niður verðbólgunni og auka þar með kaupmátt. „Auðvitað var það okkar von, vilji og væntingar að það yrði þá breið samstaða um þessa leið. Við verðum að horfast í augu við að það hefur ekki tekist. Það hafa verið umtalsvert meiri launahækkanir á öðrum sviðum. Sviðum sem þá kannski seinna munu skila sér í áhrifum þess vegna á verðlag,“ segir Gylfi.Hér má sjá verðbólguþróun síðustu ára.VísirSveitarfélögin gætu til dæmis mætti kostnaði við hærri laun kennara og fleiri hópa með ríflegum gjaldskrárhækkunum. Gylfi segir að markmiðið um stöðugleika hafi heppnast með síðustu samningum en hins vegar hafi ekki náðst sátt um þessa leið eins og dæmin sanni. Þessa vegna séu væntingar almenns launafólks miklar. „Samkvæmt viðræðuáætlun mun kröfugerðin mun ekki verða gengið frá kröfugerðinni fyrr en í janúar. Þá liggja allar þessar upplýsingar fyrir og munu hafa áhrif,“ segir forseti ASÍ. Og það má heyra á Gylfa að honum finnast langtímasamningar ekki líklegir, m.a. vegna stefnu stjórnvalda. Eins og fjárlagafrumvarpið standi nú séu áhrif þess mjög neikvæð varðandi hag launafólks. „En það er alveg ljóst að félagsmenn Alþýðusambandsins hafa auðvitað réttmætar væntingar til að þessi leiðrétting sem er í gangi nái líka til þeirra. Mér er ekki til efs að með einhverjum hætti verður að koma til móts við að þessi hópur, sem gerði þessa tilraun og lagði kannski grunninn að því verðbólgustigi sem er, að hann fái líka að njóta þess í sínum kjarabótum eins og aðrir. Ég held að það sé alveg skýrt,“ segir Gylfi Arnbjörnsson.
Mest lesið Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Innlent Sláandi hugmyndir íslenskra karla um ofbeldi Innlent Laug að Morgunblaðinu um nýjan KFC-stað Innlent „Vissi að ég var ekki að haga mér eins og venjulegt fólk“ Innlent Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Innlent Heiða í veikindaleyfi Innlent Syrgði Sovétríkin og hótaði notkun kjarnorkuvopna Erlent Stefna á þrjú þúsund hektara en endurheimtu þrettán Innlent Segir ágreininginn í Landsvirkjun ekki snúast um arðgreiðslur Innlent Reglur um dvalarleyfi hertar og filippseyskar au pair úr sögunni Innlent Fleiri fréttir Aurskriða féll á veginn og honum lokað Starfsmaður Reykjavíkurborgar smitaðist af nóróveiru Heiða í veikindaleyfi Fagfélögin kalla eftir heimild til að slíta kjarasamningum Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Fara fram á 16 ár yfir meintum morðingja Allir sautján frjálsir ferða sinna „Við erum óþolinmóð“ Minni gjaldahækkanir kosti ríkissjóð 2,5 milljarða Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Segir ágreininginn í Landsvirkjun ekki snúast um arðgreiðslur Geri málið tortryggilegt að neita að svara „Við höfum séð mikla aukningu á því á Íslandi“ Íslensk skólastúlka varð fyrir táragasi í París Laug að Morgunblaðinu um nýjan KFC-stað Stefna á þrjú þúsund hektara en endurheimtu þrettán Ein matskeið og þá er dauðinn vís Beint: Opið málþing um heimilisleysi „Vissi að ég var ekki að haga mér eins og venjulegt fólk“ Lægð suðvestan úr hafi væntanleg til landsins Hvað þýðir sjö í nýju námsmati? Fundu mikið magn vímuefna og peninga við leit Sláandi hugmyndir íslenskra karla um ofbeldi Bjóða út sorphirðu í Breiðholti til sex ára Reglur um dvalarleyfi hertar og filippseyskar au pair úr sögunni Leggur til að þingmenn verði 85 í stað 63 Skipti engu hvort ummælin hafi verið sett fram í kaldhæðni Marco Rubio á leið til Íslands „Dapurlegt pólitískt útspil hjá oddvita Samfylkingar“ Ekki búið að finna nýjan lögreglustjóra hátt í hálfu ári síðar Sjá meira