Kindum slátrað vegna brota á dýraverndarlögum Samúel Karl Ólason skrifar 7. nóvember 2014 15:41 Sigurborg Daðadóttir, yfirdýralæknir. Vísir/Vilhelm
Matvælastofnun fjarlægði í gær rúmlega þrjú hundruð kindur af bænum Efri-Steinsmýri nálægt Kirkjubæjarklaustri. Starfsmenn MAST og lögreglumenn fóru að bænum í gærmorgun og tóku allar kindur af bænum vegna brota á dýraverndarlögum. Kindurnar voru fluttar á brott á bílum frá SS á Selfossi, en þær voru fluttar þangað til slátrunar á kostnað ábúenda. Sigurborg Daðadóttir, yfirdýralæknir, segir þetta hafa verið fyrirbyggjandi aðgerð vegna þess að margítrekað sé búið að fara fram á úrbætur, vegna vanhirðu og slæms aðbúnaðar kindanna sem ekki hafi verið orðið við á fullnægjandi hátt. Viðkomandi bóndi fékk viðvörun í vor um að svona gæti farið og fékk sex mánuði til að bæta úr málum. Samkvæmt heimildum Vísis stendur yfir bygging á nýju fjárhúsi við bæinn, en það er óklárað. Aðgerð Matvælastofnunar byggir á nýjum lögum um velferð dýra sem gerir stofnuninni heimilt að fara í fyrirbyggjandi aðgerðir til að koma í veg fyrir illa meðferð dýra. Sigurborg segir þetta vera umfangsmestu aðgerð sem stofnunin hafi framkvæmt frá því að nýju lögin tóku gildi. Guðmundur Ingi Ingason, varðstjóri lögreglunnar á Kirkjubæjarklaustri segir aðgerðirnar hafa gengið slysalaust fyrir sig. Ekki náðist í ábúendur á Efri-Steinsmýri við vinnslu fréttarinnar.
Mest lesið Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Innlent Sláandi hugmyndir íslenskra karla um ofbeldi Innlent Laug að Morgunblaðinu um nýjan KFC-stað Innlent Heiða í veikindaleyfi Innlent „Vissi að ég var ekki að haga mér eins og venjulegt fólk“ Innlent Starfsmaður Reykjavíkurborgar smitaðist af nóróveiru Innlent Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Innlent Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Innlent Syrgði Sovétríkin og hótaði notkun kjarnorkuvopna Erlent Stefna á þrjú þúsund hektara en endurheimtu þrettán Innlent Fleiri fréttir Lýsa eftir Halldóri Inga „Of margar sögur af vondri meðferð“ Halda hækkunum innan við 2,5 prósent og hætta við lækkun systkinaafsláttar Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Aurskriða féll á veginn og honum lokað Starfsmaður Reykjavíkurborgar smitaðist af nóróveiru Heiða í veikindaleyfi Fagfélögin kalla eftir heimild til að slíta kjarasamningum Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Fara fram á 16 ár yfir meintum morðingja Allir sautján frjálsir ferða sinna „Við erum óþolinmóð“ Minni gjaldahækkanir kosti ríkissjóð 2,5 milljarða Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Segir ágreininginn í Landsvirkjun ekki snúast um arðgreiðslur Geri málið tortryggilegt að neita að svara „Við höfum séð mikla aukningu á því á Íslandi“ Íslensk skólastúlka varð fyrir táragasi í París Laug að Morgunblaðinu um nýjan KFC-stað Stefna á þrjú þúsund hektara en endurheimtu þrettán Ein matskeið og þá er dauðinn vís Beint: Opið málþing um heimilisleysi „Vissi að ég var ekki að haga mér eins og venjulegt fólk“ Lægð suðvestan úr hafi væntanleg til landsins Hvað þýðir sjö í nýju námsmati? Fundu mikið magn vímuefna og peninga við leit Sláandi hugmyndir íslenskra karla um ofbeldi Bjóða út sorphirðu í Breiðholti til sex ára Reglur um dvalarleyfi hertar og filippseyskar au pair úr sögunni Leggur til að þingmenn verði 85 í stað 63 Sjá meira