Brynjar ætlar ekki að sækja um skuldaniðurfellingu Jakob Bjarnar skrifar 19. maí 2014 09:30 Vilhjálmur, Brynjar og Pétur. Þessir þingmenn Sjálfstæðisflokksins hafa, ef af líkum lætur, átt í djúpum samræðum við samvisku sína vegna skuldaniðurfellinga.
Brynjar Níelsson stjórnarþingmaður upplýsti í útvarpsþættinum Bítið nú í morgun að hann ætli ekki að sækja um skuldaniðurfellingu á sínum húsnæðislánum. Brynjar kom inn í efnahags- og viðskiptanefnd þegar frumvarpið um skuldaniðurfellingar var afgreitt þaðan, sem varamaður fyrir Vilhjálm Bjarnason sem ekki gat sótt fundinn sem haldinn var 9. maí. DV greindi frá þessu á sínum tíma. Naumur meirihluti fimm manna var fyrir málinu í nefndinni. Vilhjálmur, sem, auk Péturs Blöndal, hefur lýst sig andvígan þessum aðgerðum og greiddi atkvæði gegn málinu þegar það var samþykkt á þingi nú fyrir helgi, gat ekki verið viðstaddur þegar efnahags- og viðskiptanefnd afgreiddi málið því hann þurfti að vera á öðrum fundi, sem hann hefur þó ekki viljað upplýsa um hver sá mikilvægi fundur var. Brynjar greiddi atkvæði með málinu í nefndinni en var hins vegar fjarverandi þegar greitt var atkvæði um málið á Alþingi. Brynjari vafðist tunga um tönn spurður hvort hann fagnaði því að skuldaniðurfellingarnar hafa nú orðið að veruleika. „Af hverju ertu að koma með svona erfiða spurningu svona snemma á morgnana? Ég auðvitað, er mjög fylgjandi því sem gert var varðandi skattalækkanir, enda hluti af kosningaloforðum Sjálfstæðisflokksins. En, hef aldrei leynt því að ég er ekki eins hrifinn af hinu, en fallist á það að þetta sé hluti af ákveðinni efnahagsaðgerð,“ sagði Brynjar meðal annars í morgun. Þá sagðist Brynjar hissa á því hversu margir eru búnir að sækja um skuldaniðurfellingar en sjálfur hafi hann ekki hugsa sér að sækja um.
Mest lesið Reiði yfir pítsupartíi: Auglýst á fundi án samráðs Innlent Fresta leit að ferðamanninum Innlent Ný nefnd hefur náðað þrjá Innlent Tóku tvö skip og réðust á það þriðja Erlent Vilja ræða um varnargarða en byggja meira á hraunum Innlent Óvænt jafntefli í kjördæmastríðinu Erlent Vélmennið Ace sigrar atvinnumenn í borðtennis Erlent Sjö sóttu um embætti sýslumanns Íslands Innlent Hækka launin um 3,5 prósent í stað 9,7 prósenta Innlent Átti að fá smáaura en fékk fimm og hálft ár Innlent Fleiri fréttir Reiði yfir pítsupartíi: Auglýst á fundi án samráðs Ný nefnd hefur náðað þrjá Fresta leit að ferðamanninum Vilja ræða um varnargarða en byggja meira á hraunum Krefjast þess að stjórnvöld standi ekki í vegi endurreisnar Lítilli flugvél hvolfdi við lendingu Síðustu skósmiðirnir og Ungfrú Ísland í beinni Hækka launin um 3,5 prósent í stað 9,7 prósenta Átti að fá smáaura en fékk fimm og hálft ár Aukin hætta á gróðureldum Leita enn að ferðamanninum Bein útsending: Íbúafundur í Grindavíkurbæ Framkvæmdastjóri Fjölmiðlanefndar lagði ríkið endanlega Einn fluttur á slysadeild eftir árekstur „Ég fer í Costco að ná mér í bita“ Sýknaður af ákæru fyrir ítrekaðan harmonikkuleik Sjö sóttu um embætti sýslumanns Íslands Með rúma eina og hálfa milljón í heildarlaun Leggur til lagabreytingar vegna smæðar þjóðarinnar Framkvæmdastjóri Félagsbústaða lætur af störfum Skýrslur um hraunvá kalla á samtal um hvar megi byggja Stefnt á hvalveiðar í sumar: „Það má ekki einn hvalur deyja í sumar“ Lækka veiðiráðgjöf á hval verulega Varnargarðarnir hafi sannað gildi sitt en stjórnsýslan ekki staðist prófið „Blóðmassinn svartur sem hel“ Leita að ferðamanni við Háafoss og ný skýrsla um varnargarðana Varnargarðar á Reykjanesi: Verkefnið ríkislögreglustjóra ofviða Halda áfram umfangsmikilli leit að ferðamanni við Háafoss Kallar formann VR „ómerkilegan popúlista“ „Lygaáróðursherferð af hálfu pólitískra andstæðinga“ Sjá meira