Óvenju öflug lægð yfir landinu um miðja viku Randver Kári Randversson skrifar 29. júní 2014 11:45 Rok og rigning verður á suðvestanverðu landinu á þriðjudag og miðvikudag. Vísir/Anton
Útlit er fyrir vonskuveður um miðja vikuna, þar sem óvenju öflug lægð miðað við árstíma fer yfir landið með tilheyrandi rigningu og hvassviðri. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Veðurstofu Íslands. Mikil rigning og hvassviðri verður á landinu á þriðjudag, einkum suðvestanlands. Á miðvikudag verður mest úrkoma norðvestanlands og á Vestfjörðum en hvassast úr norðvestri á suðvestanverðu landinu. Fólk sem hyggur á ferðalög er hvatt til að fylgjast vel með veðurspám næstu daga. Að þessu tilefni hefur Veðurstofa Íslands sent frá sér eftirfarandi tilkynningu:Viðvörun vegna óvenju djúprar lægðar 1. - 5. júliGert er ráð fyrir óvenju öflugri lægð miðað við árstíma á þriðjudag, sem fer yfir landið á miðvikudag.Á þriðjudag verður lægðin vestur af landinu og vindáttin því suðaustlæg og má búast við að vindstyrkurinn verði á bilinu 10-18 m/s, einna hvassast um landið SV-vert og hviður við fjöll allt að 35 m/s. Þessu fylgir mikil rigning, mest sunnanlands síðdegis og um kvöldið.Á miðvikudag er að sjá að lægðin fari til norðausturs og verði skammt norður af landinu. Á þessari stundu er óvíst hvar versta veðrið verði, en vísbendingar eru um að mesti vindurinn verði úr norðvestri um landið suðvestanvert um kvöldið á meðan mesta úrkoman verður líklega norðvestanlands og á Vestfjörðum.Síðan er gert ráð fyrir að lægðin fari til austurs og ákveðin norðanátt taki yfir með rigningu fyrir norðan, en þurrt að kalla syðra.Lítið þarf út af að bera í staðsetningu lægðarinnar til að áhvarða hvar versta verðið verður á hverjum tíma, þannig að einhverra breytinga er að vænta þegar nær dregur. Að gefnu tilefni viljum við minna þá ferðalanga á sem eru með aftanívagna að huga sérstaklega að veðurathugunum og veðurspá næstu daga og að þeir sem eru að fara að heiman að huga að lausamunum.
Mest lesið Evrópuvaktin: Úrslitin ráðast Innlent Bein útsending: Kosningavaka Sýnar Innlent „Skammist sín og bíti aðeins í sápu“ Innlent „Ég sé fram á að senda dúndurteymi, dúndurlandslið út“ Innlent Dró saman á milli fylkinga í lokatölum Reykjavíkur norður Innlent Margra ára vegferð í vændum sigri já-ið Innlent Lítil breyting í lokatölum Reykjavíkurkjördæmis suður Innlent „Hefði viljað meira afgerandi stuðning við Nei-ið í fyrstu tölum“ Innlent Allt hnífjafnt í Kraganum samkvæmt fyrstu tölum Innlent Sextíu prósent segja já í Reykjavík norður Innlent Fleiri fréttir Lítil breyting í lokatölum Reykjavíkurkjördæmis suður Dró saman á milli fylkinga í lokatölum Reykjavíkur norður Margra ára vegferð í vændum sigri já-ið „Ég sé fram á að senda dúndurteymi, dúndurlandslið út“ „Skammist sín og bíti aðeins í sápu“ „Alveg skýrt að unga fólkið segir nei“ „Hefði viljað meira afgerandi stuðning við Nei-ið í fyrstu tölum“ Allt hnífjafnt í Kraganum samkvæmt fyrstu tölum Sextíu prósent segja já í Reykjavík norður 56 prósent segja nei í Norðausturkjördæmi Meirihluti segir já í Reykjavík suður „Ég er mjög kátur“ Nei-liðar umtalsvert fleiri samkvæmt fyrstu tölum í Norðvesturkjördæmi Sextíu prósent segja nei samkvæmt fyrstu tölum í Suðurkjördæmi Hvenær birtast tölurnar í kvöld og nótt? Bjargað úr sjálfheldu í Reynisfjöru Bein útsending: Kosningavaka Sýnar Evrópuvaktin: Úrslitin ráðast Hvað segja veðbankarnir? Valkyrjurnar halda blaðamannafund Tíu dósir ratað í ruslafötuna en rest á jörðina Geri lítið úr fyrirmyndarstarfi Átröskun vangreind hjá strákum og sífellt yngri börn þurfa aðstoð Vísbendingar um aukna kjörsókn Kjörsókn meiri en á sama tíma í síðustu þingkosningum „Þetta gæti ekki verið meira spennandi“ Allt bendi til lítils jökulshlaups Bjart og þurrt þegar þjóðin gengur að kjörborðinu Hafði afskipti af ellefu ára stúlku í miðbænum eftir miðnætti Möguleiki á stórum flóðbylgjum úr íslenskum jökullónum Sjá meira