Engar bakvaktir borgaðar fyrir Sauðárkróksflugvöll Garðar Örn Úlfarsson skrifar 14. nóvember 2014 07:00 Flugstöðin á Sauðárkróki. „
Það er ekki hægt að bjóða okkur í Skagafirði upp á þetta ástand – svo mikið er víst,“ segir Stefán Vagn Stefánsson, formaður byggðaráðs Skagafjarðar. Eins og fram kom í Fréttablaðinu í gær segir Þorkell Ásgeir Jóhannsson, flugstjóri hjá Mýflugi, í tölvupósti til sveitarstjórnar Skagafjarðar að vegna skorts á viðhaldi og hreinsun á flugvellinum við Sauðárkrók hafi alvarlega slasaður maður fyrst verið fluttur með bíl til Akureyrar í stað þess að vera sendur beint til Reykjavíkur með sjúkraflugi. Mýflug er með samning við ríkið um sjúkraflug. Hinn slasaði mun vera útskrifaður af sjúkrahúsi. „Eftir að reglulegar flugsamgöngur á Sauðárkrók lögðust niður virðist Isavia ekki hafa tryggt að völlurinn væri opinn fyrir neyðarflug – sem við getum aldrei sætt okkur við,“ segir Stefán en undirstrikar að málið sé enn í skoðun hjá sveitarfélaginu. „Við erum að reyna að átta okkur á hvar vandinn liggur og hver beri ábyrgð á hverju, hvort það er eingöngu Isavia eða hvort þetta eru þeir sem hafa með flugreksturinn að gera.“Stefán Vagn StefánssonFriðþór Eydal, talsmaður Isavia, segir félagið annast rekstur innanlandsflugvalla í samræmi við þjónustusamning innanríkisráðuneytisins við félagið. Í samningnum sé meðal annars tilgreint þjónustustig einstakra flugvalla og lendingarstaða og viðbragðstími þjónustu utan reglubundinnar þjónustu. „Samkvæmt þjónustusamningnum ber Isavia að geta veitt þjónustu allan sólarhringinn samkvæmt óskum á eftirtöldum flugvöllum; Reykjavík, Akureyri, Egilsstöðum og Vestmannaeyjum. Isavia fær ekki greitt fyrir bakvaktaþjónustu á öðrum flugvöllum og hefur því ekki tök á að veita hana,“ segir Friðþór. Þá segir Friðþór að á Sauðárkróksflugvelli sé engin þjónusta nema óskað sé sérstaklega eftir henni. „Viðbragðstími þar er ein klukkustund á sumrin og tvær klukkustundir á veturna, ef næst í starfsmann. Starfsmaður Isavia á Sauðárkróki sinnir óskum um þjónustu og snjóruðningsverktaki í bænum annast hreinsun flugbrautarinnar í samræmi við þær,“ útskýrir Friðþór. „Upplýsingar um ofangreinda þjónustu, þjónustutíma og viðbragðstíma er að finna í Handbók flugmanna (AIP) eins og forráðamönnum Mýflugs er væntanlega kunnugt um.“
Mest lesið Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Innlent Sláandi hugmyndir íslenskra karla um ofbeldi Innlent Laug að Morgunblaðinu um nýjan KFC-stað Innlent Heiða í veikindaleyfi Innlent „Vissi að ég var ekki að haga mér eins og venjulegt fólk“ Innlent Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Innlent Starfsmaður Reykjavíkurborgar smitaðist af nóróveiru Innlent Syrgði Sovétríkin og hótaði notkun kjarnorkuvopna Erlent Stefna á þrjú þúsund hektara en endurheimtu þrettán Innlent Segir ágreininginn í Landsvirkjun ekki snúast um arðgreiðslur Innlent Fleiri fréttir „Of margar sögur af vondri meðferð“ Halda hækkunum innan við 2,5 prósent og hætta við lækkun systkinaafsláttar Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Aurskriða féll á veginn og honum lokað Starfsmaður Reykjavíkurborgar smitaðist af nóróveiru Heiða í veikindaleyfi Fagfélögin kalla eftir heimild til að slíta kjarasamningum Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Fara fram á 16 ár yfir meintum morðingja Allir sautján frjálsir ferða sinna „Við erum óþolinmóð“ Minni gjaldahækkanir kosti ríkissjóð 2,5 milljarða Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Segir ágreininginn í Landsvirkjun ekki snúast um arðgreiðslur Geri málið tortryggilegt að neita að svara „Við höfum séð mikla aukningu á því á Íslandi“ Íslensk skólastúlka varð fyrir táragasi í París Laug að Morgunblaðinu um nýjan KFC-stað Stefna á þrjú þúsund hektara en endurheimtu þrettán Ein matskeið og þá er dauðinn vís Beint: Opið málþing um heimilisleysi „Vissi að ég var ekki að haga mér eins og venjulegt fólk“ Lægð suðvestan úr hafi væntanleg til landsins Hvað þýðir sjö í nýju námsmati? Fundu mikið magn vímuefna og peninga við leit Sláandi hugmyndir íslenskra karla um ofbeldi Bjóða út sorphirðu í Breiðholti til sex ára Reglur um dvalarleyfi hertar og filippseyskar au pair úr sögunni Leggur til að þingmenn verði 85 í stað 63 Skipti engu hvort ummælin hafi verið sett fram í kaldhæðni Sjá meira