Innlent

Efast um hæfi aðstoðarmanns

Garðar Örn Úlfarsson skrifar
Ármann Kr. Ólafsson.
Ármann Kr. Ólafsson.
„Sérstaklega undrast ég framgöngu aðstoðarmanns húsnæðismálaráðherra og hreinlega spyr um hæfi hans,“ segir í bókun Ármanns Kr. Ólafssonar bæjarstjóra í tilefni af umræðu í bæjarstjórn Kópavogs um félagslegt húsnæði.

Vísar Ármann til bókunar Matthíasar Imsland og fleiri um skort á slíku húsnæði. „Það getur ekki verið markmið bæjarins að fela vandamálið heldur hlýtur að vera markmiðið að veita þá þjónustu sem fólk á rétt á,“ bókuðu Matthías og aðrir fulltrúar minnihlutans. Matthías er aðstoðarmaður félagsmálaráðherra. „Nær væri að fulltrúinn snéri sér að ráðherra sínum og aðstoðaði hana við að vinna að framgangi húsnæðismála í samræmi við skýrslu sem hún sjálf lét vinna,“ bókaði Ármann.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×