Lagið heitir Wastelands og boðar þyngri og dekkri músík frá sveitinni.
The Hunting Party er sjötta breiðskífa sveitarinnar sem var stofnuð árið 1996 í Kaliforníu.
Platan kemur út 17. júní og fá Linkin Park-menn fræga listamenn til liðs við sig, svo sem System of a Down-gítarleikarann Daron Malakian og rapparann Rakim.