Bæjarstjóri styður við bakið á nýjum bréfbera Kjartan Atli Kjartansson skrifar 7. maí 2014 15:06 Daníel Jakobsson bæjarstjóri Ísafjarðarbæjar vill að opinberum störfum sé betur dreift yfir landsbyggðina. Vísir/Pjetur
Hluti íbúa á Suðureyri er ósáttur við breytingar sem hafa orðið á póstþjónustu í þorpinu. Áður fyrr gátu íbúar sótt pakka og stærri sendingar í Sparisjóðinn í þorpinu, en um mánaðamótin var póstþjónustan færð á Ísafirði og tekur um tuttugu og fimm mínútur að keyra þangað. Við þessar breytingar voru breytingar einnig gerðar fyrirkomulagi útburðar á pósti. Kona ein, sem var öllum hnútum kunnug í bænum og var vel liðin, gegndi áður þessu starfi en hefur verið færð til í starfi. Í staðinn er kominn póstburðarmaður frá Ísafirði og finnst einhverjum íbúum hann ekki þekkja þorpið nægilega vel. „Já, ég las einhversstaðar á netinu að fólk væri að hvetja aðra til þess að skjóta ekki sendiboðann, mér finnst það eiga vel við,“ segir Daníel Jakobsson, bæjarstjóri Ísafjarðarbæjar. Suðureyri er hluti af Ísafjarðarbæ. Daníel heldur áfram: „Það er bara eðlilegt að það taki nýjan mann smá tíma að læra á hverjir búa hvar.“ Svavar Guðmundsson, einn íbúi á Suðureyri, lýsti einmitt ánægju sinni með sjálfsbjargarviðleitni bréfberans nýráðna. „Já, hann bankaði upp á hérna hjá mér. Hann var ekki alveg viss um hvort hann væri að bera út í rétt hús, þannig að hann spurði bara. Mér fannst það bara mjög flott hjá honum. Mjög skiljanlegt. Hann er nýr í starfi og ókunnugur bænum.“ Annars telur Svavar að óánægja fólks í bænum snúist meira um skerðingu á þjónustu frekar en óánægju með nýjan starfsmann. Hann segir þó konuna sem bar út póstinn í þorpinu hafa verið afar vel liðna. „Hún var búin að vera hérna lengi. Ég veit ekki nákvæmlega hversu lengi, en allavega svo lengi að ég man ekki hver var á undan henni.“ Nokkur umræða hefur verið á samfélagsmiðlum um málið og má þar sterklega greina jákvæðni margra í garð nýja bréfberans og vilja til þess að gefa honum tækifæri að kynnast þorpinu.Hluti af stærra máli Daníel bæjarstjóri segir þetta mál vera lítinn þátt í stærri og ógnvænlegri þróun fyrir bæi og þorp á landsbyggðinni. „Það er endalaust verið að fækka störfum, í opinberri þjónustu, á landsbyggðinni – í þessum litlu byggðarlögum. Ég held að óánægja íbúa á Suðureyri snúist frekar um það en eitthvað annað. Ég hef fulla samúð með þeim hjá Póstinum, sem þurfa að hagræða í sínum rekstri. En það þarf að reyna að dreifa störfum í opinberri þjónstu betur yfir landið. Ég hef sjálfur þurft að þurft að fækka störfum – þetta er kaldur veruleikinn. En samt sem áður þarf að skoða þessi mál.“ Daníel segir að bæjaryfirvöld muni reyna að koma til móts við íbúa á Suðureyri og halda þjónustustiginu í póstsendingum sem hæstu. „Þjónustan sem slík hefur ekki minnkað neitt svakalega. Fólk fær ennþá póstinn sendan til sín og allt það. En þetta snýst um að koma pökkum til og frá. Ef fólk ætlar að senda pakka þarf það að keyra inn á Ísafjörð. Þegar það vetrar þá getur verið erfitt að komast á milli. Við gætum til dæmis tekið á móti pökkum í sundlaugina, eða látið strætóinn okkar ferja pakka á milli. Við finnum flöt á þessu.“ Daníel hvetur opinbera aðila til þess að samþætta þjónustu sína og skipuleggja starfsemi með fólkið í minni byggðarlögum í huga. „Til dæmis getur einhver frá Þingeyri og þarf að leita til Vinnumálastofnunar fyllt út öll eyðublöð á netinu, sem er frábært. En svo þarf hann að koma til Ísafjarðar til þess að skrifa undir eyðublaðið. Það er um 50 kílómetra akstur. Þetta gengur ekki í nútíma samfélagi.“
Mest lesið Nauðgaði konu sem hann hitti í körfubolta skömmu áður Innlent Fólki ráðlagt að fylgjast vel með veðurspám Veður Sýknaður af nauðgun þótt konan þætti trúverðug Innlent „Svona eldur kviknar ekkert af sjálfu sér“ Innlent Níutíu milljóna tjón á nokkrum vikum Innlent Hafni hundruðum þúsunda fyrir frídaga í fyrsta sinn frá 2014 Innlent Arftaki 757 aftur á teikniborði Boeing Erlent Flutt á sjúkrahús með hraði vegna innvortis fíknefnasmygls Innlent Trump vill ekki flýta sér Erlent Lögðu hald á skotvopn og maður í gæsluvarðhald Innlent Fleiri fréttir Flutt á sjúkrahús með hraði vegna innvortis fíknefnasmygls Lögðu hald á skotvopn og maður í gæsluvarðhald Nauðgaði konu sem hann hitti í körfubolta skömmu áður Jarðskjálfti við Bárðarbungu í nótt „Svona eldur kviknar ekkert af sjálfu sér“ Kvarta til ESA og Umboðsmanns Alþingis vegna milliverðlagningar útgerðarfyrirtækja Sýknaður af nauðgun þótt konan þætti trúverðug Hafni hundruðum þúsunda fyrir frídaga í fyrsta sinn frá 2014 Níutíu milljóna tjón á nokkrum vikum „Ekki í lífshættu“ Flugáætlun Icelandair hafi fallið á álagsprófi Myndskeið: Leiddur út í járnum eftir sérsveitaraðgerð á Kársnesi Gekk blóðugur í bakarí og sagðist hafa verið skotinn Sérsveitin bregst við „alvarlegu atviki“ á Kársnesi „Hamast í því að koma í veg fyrir að Miðflokkurinn komist að“ „Hvað hafa þau að fela?“ Enn öðru flugi aflýst Lögregluaðgerð á Laugavegi Sprengisandur: Páll stýrir þéttpökkuðum þætti Skjálftahrina úti af Reykjanesi Maðurinn er fundinn „Aulalegasti bófinn í bænum“ Hefja formlegar viðræður og senda væna pillu í leiðinni D og B endurnýja heitin í Fjarðabyggð Tómas tjáir sig um dóminn Á sýklalyfjum í 120 daga: „Þetta er enginn brandari“ Gæti dregið til tíðinda á næstu dögum eða stundum Sérsveitarmenn flugu til Ísafjarðar vegna vopnaðs manns „Einhvers konar toppur á ísjakanum“ Tvö mál ráði úrslitum Sjá meira