Yfirgnæfandi traust til slökkviliðs- og sjúkraflutningamanna Stefán Árni Pálsson skrifar 18. nóvember 2014 09:50 mynd/þorgeir ólafsson
Um 98 prósent þátttakenda í nýrri könnun Capacent Gallup segjast bera mikið traust til slökkviliðs- og sjúkraflutningamanna en þetta kemur fram í tilkynningu frá Landssambandi slökkviliðs- og sjúkraflutningamanna . Traust til þeirra mælist langt umfram það sem þekkist hjá helstu stofnunum samfélagsins. Þá segist svipað hlutfall þátttakenda telja Eldvarnaátak LSS mikilvægt. Capacent gerði könnunina fyrir Eldvarnabandalagið og LSS í september og október síðastliðnum. Þátttakendur voru 1.449 manns af öllu landinu, 18 ára og eldri, og var þátttökuhlutfallið 58,9 prósent. Um 65 prósent segjast bera mjög mikið traust til slökkviliðs- og sjúkraflutningamanna en rúmlega 33 prósent frekar mikið. Samkvæmt þjóðarpúlsi Gallup í febrúar 2014 komast Landhelgisgæslan (89 prósent) og lögreglan (83 prósent) næst þessum niðurstöðum en aðrar stofnanir njóta mun minna trausts. Sverrir Björn Björnsson, formaður LSS, segist fagna niðurstöðunum enda sé afar brýnt að gagnkvæmt traust ríki í þeim erfiðu og viðkvæmu verkefnum sem slökkviliðs- og sjúkraflutningamenn vinni fyrir almenning í landinu. „Við tökum þessum niðurstöðum af mikilli auðmýkt og þakklæti og gerum okkur grein fyrir að við þurfum að halda áfram að vanda okkur til að halda þessu góða sambandi við þjóðina,“ segir Sverrir. Honum þykir jafnframt afar ánægjulegt að yfirgnæfandi fjöldi þátttakenda skuli telja Eldvarnaátakið mikilvægt. „Við lítum á það sem afar mikilvægt verkefni að fræða fólk um eldvarnir til að fyrirbyggja eldsvoða og mann- og eignatjón vegna þeirra. Þetta á ekki síst brýnt erindi við fólk nú fyrir hátíðirnar,“ segir Sverrir.
Mest lesið Fólki ráðlagt að fylgjast vel með veðurspám Veður „Svona eldur kviknar ekkert af sjálfu sér“ Innlent Gleði á flöskuborði endaði með ásökun um nauðgun Innlent Níutíu milljóna tjón á nokkrum vikum Innlent Hafni hundruðum þúsunda fyrir frídaga í fyrsta sinn frá 2014 Innlent Trump vill ekki flýta sér Erlent Kvarta til ESA og Umboðsmanns Alþingis vegna milliverðlagningar útgerðarfyrirtækja Innlent Arftaki 757 aftur á teikniborði Boeing Erlent Nauðgaði konu sem hann hitti í körfubolta skömmu áður Innlent „Ekki í lífshættu“ Innlent Fleiri fréttir Nauðgaði konu sem hann hitti í körfubolta skömmu áður Jarðskjálfti við Bárðarbungu í nótt „Svona eldur kviknar ekkert af sjálfu sér“ Kvarta til ESA og Umboðsmanns Alþingis vegna milliverðlagningar útgerðarfyrirtækja Gleði á flöskuborði endaði með ásökun um nauðgun Hafni hundruðum þúsunda fyrir frídaga í fyrsta sinn frá 2014 Níutíu milljóna tjón á nokkrum vikum „Ekki í lífshættu“ Flugáætlun Icelandair hafi fallið á álagsprófi Myndskeið: Leiddur út í járnum eftir sérsveitaraðgerð á Kársnesi Gekk blóðugur í bakarí og sagðist hafa verið skotinn Sérsveitin bregst við „alvarlegu atviki“ á Kársnesi „Hamast í því að koma í veg fyrir að Miðflokkurinn komist að“ „Hvað hafa þau að fela?“ Enn öðru flugi aflýst Lögregluaðgerð á Laugavegi Sprengisandur: Páll stýrir þéttpökkuðum þætti Skjálftahrina úti af Reykjanesi Maðurinn er fundinn „Aulalegasti bófinn í bænum“ Hefja formlegar viðræður og senda væna pillu í leiðinni D og B endurnýja heitin í Fjarðabyggð Tómas tjáir sig um dóminn Á sýklalyfjum í 120 daga: „Þetta er enginn brandari“ Gæti dregið til tíðinda á næstu dögum eða stundum Sérsveitarmenn flugu til Ísafjarðar vegna vopnaðs manns „Einhvers konar toppur á ísjakanum“ Tvö mál ráði úrslitum Icelandair aflýsir fimm brottförum í dag Almennur borgari veitti bílnum eftirför Sjá meira