Framkvæmdastjóri SA kallar eftir nýrri þjóðarsátt Heimir Már Pétursson skrifar 18. nóvember 2014 13:12
Framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins segir flókið að gera samkomulag um að læknar hækki í launum umfram aðra án þess að það hafi áhrif á allan vinnumarkaðinn. Nauðsynlegt sé að ná nýrri þjóðarsátt sem tryggi áframhaldandi árangur í baráttúnni við verðbólguna sem tryggi hæga en örugga aukningu kaupmáttar. Sigmundur Davíð Gunnlaugsson forsætisráðherra sagði á Alþingi í gær að horfa þyrfti á heildarmyndina varðandi launakröfur lækna og varpaði fram þeirri hugmynd að samkomulag yrði gert við aðila vinnumarkaðrins um að laun lækna hækkuðu umfram aðra án þess að það hleypti öllu í uppnám á almennum vinnumarkaði. Þorsteinn Víglundsson framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins segir stöðuna snúna. „Það er alltaf erfitt að ná einhvers konar sátt um það að einn hópur sérstaklega og mögulega langt umfram aðra hópa í samfélaginu. Ég hygg að það yrði mjög erfitt núna talandi líka um þá ólgu sem er á vinnumarkaðnum í kjölfar einmitt hækkana einstakra hópa eins og kennara umfram það sem gerst hefur á almennum vinnumarkaði,“ segir Þorsteinn. Hins vegar sé ljóst að nýgerðir kjarasamningar hins opinbera við framhaldsskólakennara um allt að 30 prósenta launahækkun hafi aukið væntingar annarra opinberra starfsmanna og jafnvel vinnumarkaðrins í heild. Seðlabankinn metur það hins vegar þannig að efnahagslífið þoli ekki meira en 3,5 prósenta launahækkun á ári án þess að hleypa verðbólgunni aftur af stað. „Ég held að það sé algerlega nauðsynlegt fyrir okkur ef við ætlum að halda áfram að byggja á þeim árangri sem náðst hefur, þ.e.a.s. þessari lágu verðbólgu og miklu kaupmáttaraukningu sem við höfum náð, taki allir aðilar á vinnumarkaði höndum saman um kjarasamninga sem verði þá áfram á sömu braut,“ segir Þorsteinn. Með hóflegum kauphækkunum þannig að kaupmáttur byggist upp jafnt og þétt á grundvelli lágrar verðbólgu. „Það er ansi hætt við því ef einn hópur ætlar að rífa sig út úr því og sækja jafnvel tuga prósenta hækkanir þá geri það verkefnið mun erfiðara en ella og meira ómögulegt,“ segir Þorsteinn. Þjóðarsáttin á sínum tíma byggði á því að nánast allir komu að samningaborðinu, aðilar bæði almenna og opinbera vinnumarkaðrins, ríki, sveitarfélög og samtök bænda. Þorsteinn segir tvímælalaust þess virði að reyna þessa leið aftur. „Ekki nokkur vafi og raunar alveg nauðsynleg forsenda þess að við getum unnið áfram á sömu braut. Ég trúi ekki fyrr en á reynir að verkalýðshreyfingin vilji snúa til baka í fyrra horf. Þar sem við missum þá verðbólgu úr böndunum og fáum hefðbundið ójafnvægisástand í íslensku efnahagslífi. Árangurinn er það mikill sem við höfum náð að ég trúi því og treysti að þegar á hólminn er komið muni menn verða tilbúnir til að halda áfram á þeirri vegferð,“ segir Þorsteinn Víglundsson.
Mest lesið Eldur í sumarbústað við Suðurlandsveg Innlent Áfram geisar innbrotahrinan Innlent Björgólfur Thor flýr breska skatta til Ítalíu Innlent Enginn alvarlega slasaður eftir bílveltuna Innlent Breikkun á Kjalarnesi boðin út eftir margra ára seinkun Innlent Vegir og gatnamót í Hvalfirði komnir að þolmörkum Innlent Miklar bikblæðingar við Jökulsárlón Innlent Hryðjuverkamálið frá upphafi til enda Innlent Veðrið haggist ekki að neinu ráði Innlent Ferðaþjónustan, fullveldið og fullt af forsætisráðherrum Innlent Fleiri fréttir Flúðu heimili sitt vegna gróðurelda: „Þetta verður ekki fallegt, fjallið er allt brunnið“ Þúsund sjúkraflug á árinu: „Fyrsta skipti sem við brjótum þann múr“ Bráð veikindi og alelda bíll við Kambana Komst undan ásamt fjölskyldunni „Við ákváðum að snúa bara vörn í sókn“ Fæðingardeildin hafi gleymst í hita leiksins Eldur í sumarbústað við Suðurlandsveg Þúsund ára gömul mynt fannst í gamalli verbúð Íslendingur í grennd við Madríd og met í sjúkraflugferðum Fleiri en þeir sem tókust á lentu í átökum ungmenna Áttu eitthvað vantalað við manninn sem endaði fram af svölunum Ari úrskurðaður í gæsluvarðhald á Kýpur Fleygt fram af svölum á fyrstu hæð fjölbýlishúss Eigi ekki að kosta milljónir króna að klæðast landsliðsbúningnum Skynet langt undan en íslensk stjórnvöld þurfa að vera undirbúin „Klappað eins og það væri stórstjarna að koma inn“ Óttast að „bottar“ muni ýta undir ágreining í aðdraganda atkvæðagreiðslu Íslensk hjón þurft að flýja undan gróðureldum á Spáni Báti var siglt yfir kajakræðara Kvöldfréttir í heild sinni „Ég hef aldrei lent í öðru eins“ Fimm fluttir til aðhlynningar eftir árekstur Skipverjarnir áttu að fá 2,5 milljónir króna á haus Endurkoma Herjólfs vekur upp ýmsar spurningar Standa með félagsmanni sem var sviptur frelsi Íslendingur á Benidorm stöðvaður eftir tíu daga svikahrinu Halda samráðsfund vegna innbrotahrinu Auka nákvæmni rauntímaupplýsinga Vara við hviðum á landinu suðaustanverðu Sólmyrkvinn ógnar fjarskiptum og Mærudagar ganga í garð Sjá meira