Meira matvælaöryggi í Evrópu en Ameríku Heimir Már Pétursson skrifar 7. júlí 2014 21:56
Formaður Neytendasamtakanna segir tvískinnung ef leyfa eigi innflutning á hráu kjöti frá Bandaríkjunum en ekki Evrópu þar sem matvælaöryggi sé meira. Í fyrra voru flutt inn rúm 400 tonnn af svínakjöti, aðallega til beikongerðar, en töluvert skortir á að fólk geti áttað sig á hvort um innlenda eða útlenda vöru er að ræða. Mikil umræða hefur verið um innfluting á kjöti að undanförnu og hafa sumir fullyrt, þeirra á meðal þingflokksformaður Framsóknarflokksins, að innflutt kjöt gæti beinlínis reynst Íslendingum hættulegt heilsufarslega. En nú hefur verið upplýst að um 400 tonn af svínakjöti hafi verið flutt inn til landsins á síðasta ári, mest megnis til beikonframleiðslu en það er ekki alltaf hægt að sjá uppruna þess lands sem kjötið kemur frá.En hvaða kröfur gera Neytendasamtökin í þessum efnum?„Það er mjög einfalt; upprunaland á allar matvörur,“ segir Jóhannes Gunnarsson formaður Neytendasamtakanna. „Það er það sem neytendur vilja fá. Við viljum tryggja að neytendur geti valið á upplýstan hátt. Þá þurfa þeir ákveðnar upplýsingar. Eitt af því sem skiptir neytendur verulegu máli er hvaðan varan kemur,“ segir Jóhannes. En því miður séu kjötiðnaðarstöðvar stundum að pakka í innfluttu kjöti í eigin umbúðir án þess að geta upprunans og neytendur taki slíkri vöru sem innlendri. „Þannig að það er mjög mikilvægt að þarna komi alveg greinilega fram: Er þetta íslensk vara eða er þetta frá einhverju öðru landi og þá hverju? Vegna þess að það skiptir okkur neytendur líka máli, ef um er að ræða innflutta vöru, frá hvaða landi hún kemur. Neytendum er ekki sama um það heldur,“ segir Jóhannes. Fyrir því geti bæði verið heilsufarslegar og jafnvel pólitískar ástæður sem skipta neytandann máli. Af því beikoni sem við á fréttastofunni skoðuðum í dag var upprunans stundum getið með smáu letri; að varan væri frá Íslandi eða t.d. Þýskalandi. En sumar pakkningarnar voru með engar slíkar merkingar. Nú er rætt um mögulegan innflutning á hráu kjöti frá Bandaríkjunum í tengslum við þreifingar Costco hér á landi, en í dag er innflutningur á hráu kjöti bannaður. „En það verður að sjálfsögðu verulegur tvískinnungur ef við heimilum innflutning frá Bandaríkjunum á fersku kjöti en bönnum hann áfram frá Evrópu. Þá er ég nú hræddur um að það færi að hrikta í EES samningnum. Og plús það, að það er talið vera meira matvælaöryggi í Evrópu en í Ameríku,“ segir Jóhannes Gunnarsson formaður Neytendasamtakanna.
Mest lesið Tveir létust í fjögurra bíla árekstri á Austurlandi Innlent Gerðu árás skömmu eftir að Þýskalandskanslari mætti Erlent Höfuðborgarsvæðið skalf Innlent „Auðvitað alltaf erfitt að koma að svona vettvangi“ Innlent Mennirnir sem létust voru feðgar Erlent „Veit ekki hvort maður á að hlæja eða gráta eða brosa“ Innlent Fólk láti reyna á húsráð áður en það leiti á yfirfulla Læknavakt Innlent Fundið brak úr flugvélinni sem týndist á leið frá Bermúda Erlent Katla skelfur Innlent „Þeir eru að borða gras úr garðinum og snigla“ Innlent Fleiri fréttir Meirihlutinn sprakk eftir fjóra mánuði Ekki eina leiðin til að uppfylla skuldbindingar Íslands „Veit ekki hvort maður á að hlæja eða gráta eða brosa“ Fólk láti reyna á húsráð áður en það leiti á yfirfulla Læknavakt Sveitarstjórnin flytur sig um set vegna myglu Röð skjálfta ekki áhyggjuefni út af fyrir sig Gera þurfi breytingar á þingsköpum til að efla virðingu og traust Arnarnesvegur opnar loks á morgun „Þeir eru að borða gras úr garðinum og snigla“ Skjálfti upp á 3,4 „Auðvitað alltaf erfitt að koma að svona vettvangi“ Banaslys á Austurlandi og barátta upp á líf og dauða Hafði lítil afskipti af veisluhöldum Vítisenglanna Sprengisandur: Pólitíkin, fíknimeðferð og neistinn kveiktur Tveir létust í fjögurra bíla árekstri á Austurlandi Ók bílnum yfir kant og upp á gras en hafnaði að lokum á ljósastaur Höfuðborgarsvæðið skalf Viðbúnaður á slóðum Vítisengla Katla skelfur Salma nýr formaður ungra Miðflokksmanna „Okkur finnst við vera undanskilin“ Viðvörunarmerki fyrir íslenskt samfélag Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Smella af sér bílbeltunum á ógnarhraða og breytingar í Kerlingarfjöllum Gul viðvörun eftir stóra skriðu Illa brugðið en heill á húfi Handtekinn grunaður um að beita piparúða Lýsa eftir Halldóri Inga „Of margar sögur af vondri meðferð“ Sjá meira