Væri gott fyrir Framsókn að eiga sitt Fréttablað Kolbeinn Tumi Daðason skrifar 2. júlí 2014 14:02 Sigrún Magnúsdóttir. Vísir/Pjetur
Fylgi Framsóknarflokksins á landvísu er 12,7 prósent samkvæmt nýjum Þjóðapúlsi Gallup. Minnkar fylgi flokksins um tvö prósentustig á milli mánaða. Fylgi Pírata minnkar sömuleiðis um tæplega tvö prósentustig og er nú 8,1 prósent. Sigrún Magnúsdóttir, formaður þingflokks Framsóknarflokksins, segir í samtali við RÚV að sér fróðari menn verði að útskýra þann mun sem oft vill verða á fylgi flokksins í könnunum og kosningum. Hún hafi átt von á að fylgið myndi aukast í kjölfar þess að skuldaniðurfellingarnar væru komnar til framkvæmda. Sannfærð sé hún um að árangurinn muni sjást í lok kjörtímabilsins. Þá bætir Sigrún við að hún sakni fjölmiðils sem skilji flokkinn sinn og stefnu hans. „Mér finnst alltaf vera mjög tortryggt allt sem Framsóknarmenn leggja til og tala um og snúið út úr því á alla enda og kanta. Við vitum náttúrlega að Fréttablaðið er mest fyrir Samfylkinguna og Bjarta framtíð. Það væri gott fyrir okkur Framsóknarmenn að eiga okkar Fréttablað. Ég bara svona nefni þetta,“ sagði Sigrún í samtali við RÚV. Sjálfstæðisflokkurinn er stærsti flokkur landsins með 25,3 prósenta fylgi, Samfylkingin hefur 18,2 prósent, Björt framtíð 15,7 prósent, Vinstri hreyfingin grænt framboð 12,8 prósent og aðrir flokkar minna. Stuðningur við ríkisstjórnina mælist 40 prósent.Könnunin var framkvæmd 28. og 29. júní. Heildarúrtaksstærð var 6.985 og þátttökuhlutfall var 58,8 prósent. Vikmörk við fylgni flokka eru 0,9-1,5 prósent.
Mest lesið Evrópuvaktin: Úrslitin ráðast Innlent Bein útsending: Kosningavaka Sýnar Innlent „Skammist sín og bíti aðeins í sápu“ Innlent „Ég sé fram á að senda dúndurteymi, dúndurlandslið út“ Innlent Dró saman á milli fylkinga í lokatölum Reykjavíkur norður Innlent Margra ára vegferð í vændum sigri já-ið Innlent „Hefði viljað meira afgerandi stuðning við Nei-ið í fyrstu tölum“ Innlent Allt hnífjafnt í Kraganum samkvæmt fyrstu tölum Innlent Lítil breyting í lokatölum Reykjavíkurkjördæmis suður Innlent Sextíu prósent segja já í Reykjavík norður Innlent Fleiri fréttir Lítil breyting í lokatölum Reykjavíkurkjördæmis suður Dró saman á milli fylkinga í lokatölum Reykjavíkur norður Margra ára vegferð í vændum sigri já-ið „Ég sé fram á að senda dúndurteymi, dúndurlandslið út“ „Skammist sín og bíti aðeins í sápu“ „Alveg skýrt að unga fólkið segir nei“ „Hefði viljað meira afgerandi stuðning við Nei-ið í fyrstu tölum“ Allt hnífjafnt í Kraganum samkvæmt fyrstu tölum Sextíu prósent segja já í Reykjavík norður 56 prósent segja nei í Norðausturkjördæmi Meirihluti segir já í Reykjavík suður „Ég er mjög kátur“ Nei-liðar umtalsvert fleiri samkvæmt fyrstu tölum í Norðvesturkjördæmi Sextíu prósent segja nei samkvæmt fyrstu tölum í Suðurkjördæmi Hvenær birtast tölurnar í kvöld og nótt? Bjargað úr sjálfheldu í Reynisfjöru Bein útsending: Kosningavaka Sýnar Evrópuvaktin: Úrslitin ráðast Hvað segja veðbankarnir? Valkyrjurnar halda blaðamannafund Tíu dósir ratað í ruslafötuna en rest á jörðina Geri lítið úr fyrirmyndarstarfi Átröskun vangreind hjá strákum og sífellt yngri börn þurfa aðstoð Vísbendingar um aukna kjörsókn Kjörsókn meiri en á sama tíma í síðustu þingkosningum „Þetta gæti ekki verið meira spennandi“ Allt bendi til lítils jökulshlaups Bjart og þurrt þegar þjóðin gengur að kjörborðinu Hafði afskipti af ellefu ára stúlku í miðbænum eftir miðnætti Möguleiki á stórum flóðbylgjum úr íslenskum jökullónum Sjá meira