Húsnæðiskostnaður næstlægstur hér á landi Gunnar Atli Gunnarsson skrifar 2. júlí 2014 20:15
Hagfræðideild Landsbankans birti í morgun Hagsjá þar sem fjallað er um íslenskan húsnæðismarkað en hún hefst á þessum orðum: „Sé tekið mið af umræðu síðustu ára hér á landi mætti ætla að byrði íslenskra heimila vegna húsnæðiskostnaðar hefði bæði aukist verulega á síðustu árum og væri þar að auki mun meiri en í nálægum löndum. Hvorugt er hins vegar rétt, sé tekið mið af opinberum tölum um stöðu þessara mála.“ Í skýrslunni kemur fram að hlutfall húsnæðiskostnaðar af ráðstöfunartekjum árið 2013 var hæst í Danmörku af norðurlöndunum, en fjórðungur ráðstöfunartekna Dana fer í húsnæðiskostnað. Ísland er næstneðst á listanum, með 16,5%. „Sumar þjóðir eins og Danir, eru langt fyrir ofan okkur. Eru að nota miklu meira af sínum tekjum til húsnæðis,“ segir Ari Skúlason, hagfræðingur hjá Landsbankanum.Það hefur nú verið rætt hér á landi að taka upp danska húsnæðiskerfið. Það hlýtur þá að skjóta skökku við eða hvað?„Já, að einhverju leyti gerir það það. Vegna þess að það lítur út fyrir að Danir noti meira af sínum tekjum til að greiða fyrir húsnæði og svo eru líka til stærðir sem sýna okkur það að dönsk heimili, þau skulda miklu meira heldur en heimili á Íslandi,“ segir Ari. Fyrir rúmu ári gengu Íslendingar til alþingiskosninga en fátt var rætt meira í kosningabaráttunni en skuldavandi íslenskra heimila. En er þessi skuldavandi ofmetinn? „Já, ég held að hann sé ofmetinn ef þú tekur meðalheimilið. Staðan er þannig að um það bil helmingur íslenskra heimila skuldar ekkert vegna húsnæðis. Þannig hvað varðar þann hluta þá er vandamálið örugglega ofmetið. En að segja að sem svo að vandi allra sé mjög mikill, það er mikið ofmat,“ segir Ari.
Mest lesið Evrópuvaktin: Úrslitin ráðast Innlent Bein útsending: Kosningavaka Sýnar Innlent „Skammist sín og bíti aðeins í sápu“ Innlent „Ég sé fram á að senda dúndurteymi, dúndurlandslið út“ Innlent Dró saman á milli fylkinga í lokatölum Reykjavíkur norður Innlent Margra ára vegferð í vændum sigri já-ið Innlent „Hefði viljað meira afgerandi stuðning við Nei-ið í fyrstu tölum“ Innlent Lítil breyting í lokatölum Reykjavíkurkjördæmis suður Innlent Allt hnífjafnt í Kraganum samkvæmt fyrstu tölum Innlent Sextíu prósent segja já í Reykjavík norður Innlent Fleiri fréttir Lítil breyting í lokatölum Reykjavíkurkjördæmis suður Dró saman á milli fylkinga í lokatölum Reykjavíkur norður Margra ára vegferð í vændum sigri já-ið „Ég sé fram á að senda dúndurteymi, dúndurlandslið út“ „Skammist sín og bíti aðeins í sápu“ „Alveg skýrt að unga fólkið segir nei“ „Hefði viljað meira afgerandi stuðning við Nei-ið í fyrstu tölum“ Allt hnífjafnt í Kraganum samkvæmt fyrstu tölum Sextíu prósent segja já í Reykjavík norður 56 prósent segja nei í Norðausturkjördæmi Meirihluti segir já í Reykjavík suður „Ég er mjög kátur“ Nei-liðar umtalsvert fleiri samkvæmt fyrstu tölum í Norðvesturkjördæmi Sextíu prósent segja nei samkvæmt fyrstu tölum í Suðurkjördæmi Hvenær birtast tölurnar í kvöld og nótt? Bjargað úr sjálfheldu í Reynisfjöru Bein útsending: Kosningavaka Sýnar Evrópuvaktin: Úrslitin ráðast Hvað segja veðbankarnir? Valkyrjurnar halda blaðamannafund Tíu dósir ratað í ruslafötuna en rest á jörðina Geri lítið úr fyrirmyndarstarfi Átröskun vangreind hjá strákum og sífellt yngri börn þurfa aðstoð Vísbendingar um aukna kjörsókn Kjörsókn meiri en á sama tíma í síðustu þingkosningum „Þetta gæti ekki verið meira spennandi“ Allt bendi til lítils jökulshlaups Bjart og þurrt þegar þjóðin gengur að kjörborðinu Hafði afskipti af ellefu ára stúlku í miðbænum eftir miðnætti Möguleiki á stórum flóðbylgjum úr íslenskum jökullónum Sjá meira