Kambar verða tvöfaldir í ágúst Kristján Már Unnarsson skrifar 2. júlí 2014 20:00
Suðurlandsvegur um Hellisheiði og Kamba er að taka stakkaskiptum og síðar í sumar verða akreinar í Kömbunum orðnar fjórar. Um 20 starfsmenn Ístaks hafa unnið að verkinu frá því í desember. Breikka á Suðurlandsveg á fjórtán kílómetra kafla, frá Hveradalabrekku og niður fyrir Kamba. Eftir breytingu verða þrjár akreinar yfir Hellisheiði og fjórar í Kömbum og aksturstefnur aðskildar með vegriði. Helsta markmiðið er að auka umferðaröryggi og krappa beygjan neðst í Kömbunum verður gerð mýkri. Jafnframt verða gerð fern undirgöng fyrir hestamenn og göngufólk og í Hveradalabrekkunni kemur nýr vegur í gamla vegstæðinu. Hann verður tenging við Skíðaskálann til að fækka hættulegum gatnamótum. Kambarnir eru þó stærsti verkhlutinn og þar er ekki vandalaust að vinna ofan í fjölförnum þjóðvegi. Ístaksmenn nota þó mest vinnuveg í vegkantinum til að trufla umferð sem minnst, að sögn Þrastar Sívertsen, staðarstjóra Ístaks á Hellisheiði.Vegurinn verður 2+2 og akreinar aðskildar með vegriði. Krappa beygjan neðst í Kömbum verður gerð mýkri.Stöð 2/Baldur Hrafnkell Jónsson.Starfsmönnunum finnst þó að ökumenn mættu draga meira úr hraðanum og segir Ármann Garðarsson, verkstjóri Ístaks, að margir virði ekki 70 kílómetra hámarkshraða og aki allt of hratt. Lögreglan sé þó reglulega með eftirlit með umferðinni. Þótt verklok séu ekki áætluð fyrr en á síðari hluta næsta árs verða einstaka verkþættir tilbúnir fyrr. Þannig er stefnt að því að opna nýjan Kambaveg með fjórum akreinum eftir tvo mánuði, í lok ágústmánaðar, að sögn Þrastar Sívertsen.
Mest lesið Tveir létust í fjögurra bíla árekstri á Austurlandi Innlent Gerðu árás skömmu eftir að Þýskalandskanslari mætti Erlent Höfuðborgarsvæðið skalf Innlent „Auðvitað alltaf erfitt að koma að svona vettvangi“ Innlent Mennirnir sem létust voru feðgar Erlent „Veit ekki hvort maður á að hlæja eða gráta eða brosa“ Innlent Fólk láti reyna á húsráð áður en það leiti á yfirfulla Læknavakt Innlent Fundið brak úr flugvélinni sem týndist á leið frá Bermúda Erlent Katla skelfur Innlent „Þeir eru að borða gras úr garðinum og snigla“ Innlent Fleiri fréttir Meirihlutinn sprakk eftir fjóra mánuði Ekki eina leiðin til að uppfylla skuldbindingar Íslands „Veit ekki hvort maður á að hlæja eða gráta eða brosa“ Fólk láti reyna á húsráð áður en það leiti á yfirfulla Læknavakt Sveitarstjórnin flytur sig um set vegna myglu Röð skjálfta ekki áhyggjuefni út af fyrir sig Gera þurfi breytingar á þingsköpum til að efla virðingu og traust Arnarnesvegur opnar loks á morgun „Þeir eru að borða gras úr garðinum og snigla“ Skjálfti upp á 3,4 „Auðvitað alltaf erfitt að koma að svona vettvangi“ Banaslys á Austurlandi og barátta upp á líf og dauða Hafði lítil afskipti af veisluhöldum Vítisenglanna Sprengisandur: Pólitíkin, fíknimeðferð og neistinn kveiktur Tveir létust í fjögurra bíla árekstri á Austurlandi Ók bílnum yfir kant og upp á gras en hafnaði að lokum á ljósastaur Höfuðborgarsvæðið skalf Viðbúnaður á slóðum Vítisengla Katla skelfur Salma nýr formaður ungra Miðflokksmanna „Okkur finnst við vera undanskilin“ Viðvörunarmerki fyrir íslenskt samfélag Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Smella af sér bílbeltunum á ógnarhraða og breytingar í Kerlingarfjöllum Gul viðvörun eftir stóra skriðu Illa brugðið en heill á húfi Handtekinn grunaður um að beita piparúða Lýsa eftir Halldóri Inga „Of margar sögur af vondri meðferð“ Sjá meira