Fjallabaksleið syðri í dag, Sprengisandur á morgun Kristján Már Unnarsson skrifar 3. júlí 2014 17:45
Fjallabaksleið syðri var opnuð í dag og stefnt er að því að opna veginn um Sprengisand annaðkvöld. Þá er verið að hefla og lagfæra vöðin á leiðinni í Þórsmörk. Það þykja jafnan tímamót þegar vegurinn um Sprengisand opnast enda liggur hann um miðhálendið og er hæsti hálendisvegur Íslands. Veghefill hefur frá því í gær verið að lagfæra veginn. Þar er lítill snjór en mikil bleyta, að sögn Gunnars Bogasonar, yfirverkstjóra hjá Vegagerðinni á Húsavík, sem skoðaði Sprengisand í dag. Hann segir mikinn snjó hafa tekið upp síðustu daga, þannig hafi metershár skafl á veginum horfið á einni viku. Þá taki bleytuna hratt úr norðan jökla og kvaðst Gunnar í dag bjartsýnn um að hægt verði að opna Sprengisand annaðkvöld, föstudagskvöld. Þar með verða allir helstu hálendisvegir orðnir færir, Fjallabaksleið syðri opnaðist í dag, en áður var búið að opna Kjalveg, Kaldadal, Öskjuveg og Fjallabaksleið nyrðri. Gæsavatnaleið og Dyngjufjallaleið eru hins vegar ófærar og óvíst hvort þær opnast í sumar en þar er sagt mikið fannfergi. Sjá má ástand fjallvega á hálendiskorti Vegagerðarinnar.
Mest lesið Tveir létust í fjögurra bíla árekstri á Austurlandi Innlent Höfuðborgarsvæðið skalf Innlent Gerðu árás skömmu eftir að Þýskalandskanslari mætti Erlent „Auðvitað alltaf erfitt að koma að svona vettvangi“ Innlent Mennirnir sem létust voru feðgar Erlent Fundið brak úr flugvélinni sem týndist á leið frá Bermúda Erlent Katla skelfur Innlent Fólk láti reyna á húsráð áður en það leiti á yfirfulla Læknavakt Innlent „Þeir eru að borða gras úr garðinum og snigla“ Innlent Rektor Cornell-háskóla rýfur þögnina Erlent Fleiri fréttir Ekki eina leiðin til að uppfylla skuldbindingar Íslands „Veit ekki hvort maður á að hlæja eða gráta eða brosa“ Fólk láti reyna á húsráð áður en það leiti á yfirfulla Læknavakt Sveitarstjórnin flytur sig um set vegna myglu Röð skjálfta ekki áhyggjuefni út af fyrir sig Gera þurfi breytingar á þingsköpum til að efla virðingu og traust Arnarnesvegur opnar loks á morgun „Þeir eru að borða gras úr garðinum og snigla“ Skjálfti upp á 3,4 „Auðvitað alltaf erfitt að koma að svona vettvangi“ Banaslys á Austurlandi og barátta upp á líf og dauða Hafði lítil afskipti af veisluhöldum Vítisenglanna Sprengisandur: Pólitíkin, fíknimeðferð og neistinn kveiktur Tveir létust í fjögurra bíla árekstri á Austurlandi Ók bílnum yfir kant og upp á gras en hafnaði að lokum á ljósastaur Höfuðborgarsvæðið skalf Viðbúnaður á slóðum Vítisengla Katla skelfur Salma nýr formaður ungra Miðflokksmanna „Okkur finnst við vera undanskilin“ Viðvörunarmerki fyrir íslenskt samfélag Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Smella af sér bílbeltunum á ógnarhraða og breytingar í Kerlingarfjöllum Gul viðvörun eftir stóra skriðu Illa brugðið en heill á húfi Handtekinn grunaður um að beita piparúða Lýsa eftir Halldóri Inga „Of margar sögur af vondri meðferð“ Halda hækkunum innan við 2,5 prósent og hætta við lækkun systkinaafsláttar Sjá meira