Einboðið að Lára sæi um málaferli Más Heimir Már Pétursson skrifar 3. júlí 2014 19:00
Ríkisendurskoðun segir einboðið að bankaráð Seðlabankans og einkum formaður þess væru í forsvari fyrir bankann í málarekstri bankans og seðlabankastjóra vegna launakjara hans. Verklagsreglur varðandi fjárhagslegar ákvarðanir bankaráðsins skorti hins vegar. Núverandi Bankaráð Seðlabankans bað Ríkisendurskoðun að skoða aðkomu þáverandi formanns bankaráðs að greiðslum bankans á lögmannskostnaði Más Guðmundssonar í málaferlum gegn bankanum vegna launakjara hans. Ríkisendurskoðun tekur undir þau sjónarmið að Már hefði mátt búast við að launakjör hans tækju ekki breytingum miðað við ráðningarkjör hans en eftir að kjararáð lækkaði engu að síður laun hans hafi ríkt réttaróvissa í málinu sem taka þurfti á. Í lögfræðiáliti sem Lára V. Júlíusdóttir formaður bankaráðs óskaði eftir á vormánuðum 2010 kemur fram að ekki sé hægt að breyta launakjörum bankastjórans á uppsagnarfresti sem var skipunartími Más Guðmundssonar, eða fimm ár. Stjórnendur Seðlabankans töldu því rétt að fá skorið úr um málið fyrir dómi. Lára tók þá ákvörðun að Seðlabankinn greiddi málskostnað Más Guðmundssonar, enda var það álit þáverandi bankaráðs að það væri ekki einungis mikilvægt fyrir Má að niðurstaða fengist, heldur einnig fyrir Seðlabankann sjálfan. Allir starfsmenn bankans urðu vanhæfir í málinu þar sem kjör flestra yfirmanna miðast við laun seðlabankastjóra. Í niðurlagi skýrslu Ríkisendurskoðunar segir: „Því var einboðið að bankaráðið og þá einkum, formaður þess hlyti að vera í forsvari fyrir bankann að því er málareksturinn varðaði." Og síðar segir: „Formaðurinn hafði haldið á málum er lutu að starfskjörum forvera Más auk þess sem hann er hæstaréttarlögmaður að atvinnu. Því lá beinast við að verkefnið væri á höndum hans." Lára segist ekki líta á svör Ríkisendurskoðunar sem ávirðingu á hana. „Nei, ég vil alls ekki líta svo á. Það var þarna ákveðið tómarúm. Það var óljóst hvernig ætti að bregðast við, það var brugðist við,“ segir Lára. Vissulega hefði mátt kynna ákvörðun hennar um að greiða málskostnaðinn í bankaráðinu. Verklagsreglur hafi verið í smíðum en ekki tekist að klára þær áður en nýtt bankaráð tók við. Það hafi hins vegar ekki verið fyrr en sex mánuðum eftir að hún hætti í bankaráði sem núverandi bankaráð hafi sett fram efasemdir um að rétt hafi verið brugðist við. „Og niðurstaðan varð sú að leita með þær spurningar til Ríkisendurskoðunar og nú liggur skýrsla Ríkisendurskoðunar fyrir. Það er ekkert í þessu máli sem er óupplýst, óljóst eða eitthvað á þá leið að þarna hafi verið einhver óheiðarleiki einhvers staðar framkvæmdur. Bara alls ekki,“ segir Lára. Hins vegar kemst Ríkisendurskoðun að þeirri niðurstöðu að verklagsreglur skorti í bankaráðinu þegar kemur að ákvörðunum um fjárútlát bankans.
Mest lesið Tveir létust í fjögurra bíla árekstri á Austurlandi Innlent Höfuðborgarsvæðið skalf Innlent Gerðu árás skömmu eftir að Þýskalandskanslari mætti Erlent „Auðvitað alltaf erfitt að koma að svona vettvangi“ Innlent Mennirnir sem létust voru feðgar Erlent Fundið brak úr flugvélinni sem týndist á leið frá Bermúda Erlent Katla skelfur Innlent Fólk láti reyna á húsráð áður en það leiti á yfirfulla Læknavakt Innlent „Þeir eru að borða gras úr garðinum og snigla“ Innlent Rektor Cornell-háskóla rýfur þögnina Erlent Fleiri fréttir Ekki eina leiðin til að uppfylla skuldbindingar Íslands „Veit ekki hvort maður á að hlæja eða gráta eða brosa“ Fólk láti reyna á húsráð áður en það leiti á yfirfulla Læknavakt Sveitarstjórnin flytur sig um set vegna myglu Röð skjálfta ekki áhyggjuefni út af fyrir sig Gera þurfi breytingar á þingsköpum til að efla virðingu og traust Arnarnesvegur opnar loks á morgun „Þeir eru að borða gras úr garðinum og snigla“ Skjálfti upp á 3,4 „Auðvitað alltaf erfitt að koma að svona vettvangi“ Banaslys á Austurlandi og barátta upp á líf og dauða Hafði lítil afskipti af veisluhöldum Vítisenglanna Sprengisandur: Pólitíkin, fíknimeðferð og neistinn kveiktur Tveir létust í fjögurra bíla árekstri á Austurlandi Ók bílnum yfir kant og upp á gras en hafnaði að lokum á ljósastaur Höfuðborgarsvæðið skalf Viðbúnaður á slóðum Vítisengla Katla skelfur Salma nýr formaður ungra Miðflokksmanna „Okkur finnst við vera undanskilin“ Viðvörunarmerki fyrir íslenskt samfélag Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Smella af sér bílbeltunum á ógnarhraða og breytingar í Kerlingarfjöllum Gul viðvörun eftir stóra skriðu Illa brugðið en heill á húfi Handtekinn grunaður um að beita piparúða Lýsa eftir Halldóri Inga „Of margar sögur af vondri meðferð“ Halda hækkunum innan við 2,5 prósent og hætta við lækkun systkinaafsláttar Sjá meira