Hafnar túlkun ráðuneytis og skorar á leiguliða að krefjist endurgreiðslu Garðar Örn Úlfarsson skrifar 12. júní 2014 07:00 Fréttablaðið sagði í gær í niðurstöðu í máli ábúanda á ríkisjörð sem rikið hækkaði leiguna hjá án þess að hafa til þess lagaheimdl að áliti umboðsmanns Alþingis.
Aagot Vigdís Óskarsdóttir, lögfræðingur og lektor við Háskólann á Bifröst, segir það ekki rétt hjá Jarðadeild fjármálaráðuneytisins að niðurstaða umboðsmanns Alþingis varðandi leigu ábúanda á ríkisjörð hafi ekki áhrif á leigugjald á öðrum ríkisjörðum og -lóðum. „Ég stóð í bréfaskriftum við ráðuneyti – fyrst ráðuneyti landbúnaðarmála og síðar fjármála- og efnahagsráðuneyti – í rúmlega tvö ár vegna hækkunar leigugjalds fyrir litla lóð á Fljótsdalshéraði sem við, hópur frændsystkina, höfum á leigu. Á lóðinni stendur lítið steinhús sem afi okkar byggði á fjórða áratug síðustu aldar og er nú í okkar eigu. Hækkunin sem ráðuneytið ákvað einhliða og tilkynnti okkur um árið 2011 nam rúmlega 300 prósentum,“ segir Aagot.Aagot Vigdís Óskarsdóttir, lögfræðingur og lektor við Háskólann á Bifröst, segist hafa reynt að rökræða við ríkisvaldið í meira en tvö ár án þess að það hafi borið árangur.Tveggja ára rökræða endar hjá umboðsmanni Að sögn Aagotar reyndi hún í tvö ár að leiða embættismönnum ráðuneytisins fyrir sjónir að ráðuneytið hefði ekki lagaheimild til að taka einhliða ákvörðun um hækkunina. Engin rök hafi dugað á ráðuneytismenn. „Að lokum brugðum við á það ráð að leggja málið fyrir umboðsmann Alþingis. Hann hefur nú lokið athugun sinni á máli okkar, samhliða, og með vísan til, álitsins sem sagt var frá í Fréttablaðinu [í gær] og endurspeglar niðurstaða hans það sem ég hef reynt að segja ráðuneytinu síðan 2011,“ segir Aagot. Í málinu sem Fréttablaðið sagði frá í gær og er frá Skaftárhreppi sagði umboðsmaður Alþingis enga lagaheimild fyrir reglunum sem ríkið setti um leiguhækkun í júlí 2011.Viðbrögð ráðuneytis veruleg vonbrigði „Með hliðsjón af tilmælum umboðsmanns Alþingis um að ráðuneytið endurskoði almennt þá framkvæmd sem þarna er um að ræða, átti ég von á að þar á bæ gengju menn í að vinda ofan af lögleysunni. Ég bjóst satt að segja við því að ráðuneytið hefði samband við alla þá sem sættu ólögmætri hækkun og gerði þeim grein fyrir málinu, bæðist afsökunar og endurgreiddi síðan ofgreidda leigu,“ segir Aagot sem reyndist ekki sannspá um þetta atriði. „Ég varð því fyrir verulegum vonbrigðum þegar ég sá það sem haft var eftir talsmanni fjármála- og efnahagsráðuneytisins í Fréttablaðinu í gær. Þar var fullyrt að mál það sem sagt var frá í frétt blaðsins væri einstakt og að álit umboðsmanns hefði ekki áhrif á leigu annarra ríkisjarða. Þetta er ekki rétt,“ fullyrðir Aagot.Segir stjórnsýsluna eiga að leiðrétta mistök Mistök geta alltaf orðið í stjórnsýslunni að sögn Aagotar. Þá eigi viðkomandi stjórnvald og starfsmenn þess að leita allra leiða til að leiðrétta það sem miður hefur farið og læra af mistökunum. Ráðuneytið hljóti að verða, með vísan til jafnræðissjónarmiða, að endurskoða málið í heild en ekki láta við það sitja að leiðrétta það eingöngu gagnvart þeim einstaklingum sem komnir séu með álit umboðsmanns Alþingis í hendur. „Ég skora á alla þá sem sætt hafa ólögmætri hækkun leiguverðs fyrir ríkisjarðir á grundvelli nefndra reglna að þrýsta á ráðuneytið um leiðréttingu,“ segir Aagot.Ráðuneytið á von á kröfum um endurgreiðslu Óskar Páll Óskarsson, starfsmaður Jarðadeildar fjármálaráðuneytisins, segir málið sem Fréttablaðið sagði frá í gær það eina sinnar tegundar sem umboðsmaður hafi sent til ráðuneytisins. Það sé einstakt vegna þess að í samningi um jörðina frá 1985 sé ekki almennt endurskoðunarákvæði eins og tíðkist. „Ég á alveg von á að við fáum einhver bréf þar sem menn eru að óska eftir að þeirra hækkun verði afturkölluð á grundvelli þessa álits og það er þá okkar að skoða það,“ segir Óskar. „Ég þykist vita að menn bendi á að þetta sé fordæmi og það er þá okkur að sýna fram á að þetta sé ekki fordæmi.“
Mest lesið Athafnamaður sagður handtekinn í Leifsstöð Innlent Meirihlutinn sprakk eftir fjóra mánuði Innlent Skólabörn sáu nakinn hótelgest úr skólastofunni Innlent Sýknaður eftir að hafa skotið mann til bana í dyragættinni Erlent Lægðin ætlar ekki að láta okkur í friði alveg strax Veður Tveir létust í fjögurra bíla árekstri á Austurlandi Innlent Fólk láti reyna á húsráð áður en það leiti á yfirfulla Læknavakt Innlent „Auðvitað alltaf erfitt að koma að svona vettvangi“ Innlent Ekki eina leiðin til að uppfylla skuldbindingar Íslands Innlent „Þeir eru að borða gras úr garðinum og snigla“ Innlent Fleiri fréttir Athafnamaður sagður handtekinn í Leifsstöð Skólabörn sáu nakinn hótelgest úr skólastofunni Meirihlutinn sprakk eftir fjóra mánuði Ekki eina leiðin til að uppfylla skuldbindingar Íslands „Veit ekki hvort maður á að hlæja eða gráta eða brosa“ Fólk láti reyna á húsráð áður en það leiti á yfirfulla Læknavakt Sveitarstjórnin flytur sig um set vegna myglu Röð skjálfta ekki áhyggjuefni út af fyrir sig Gera þurfi breytingar á þingsköpum til að efla virðingu og traust Arnarnesvegur opnar loks á morgun „Þeir eru að borða gras úr garðinum og snigla“ Skjálfti upp á 3,4 „Auðvitað alltaf erfitt að koma að svona vettvangi“ Banaslys á Austurlandi og barátta upp á líf og dauða Hafði lítil afskipti af veisluhöldum Vítisenglanna Sprengisandur: Pólitíkin, fíknimeðferð og neistinn kveiktur Tveir létust í fjögurra bíla árekstri á Austurlandi Ók bílnum yfir kant og upp á gras en hafnaði að lokum á ljósastaur Höfuðborgarsvæðið skalf Viðbúnaður á slóðum Vítisengla Katla skelfur Salma nýr formaður ungra Miðflokksmanna „Okkur finnst við vera undanskilin“ Viðvörunarmerki fyrir íslenskt samfélag Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Smella af sér bílbeltunum á ógnarhraða og breytingar í Kerlingarfjöllum Gul viðvörun eftir stóra skriðu Illa brugðið en heill á húfi Handtekinn grunaður um að beita piparúða Sjá meira