Óvissa í sjúkraflugi fyrir Sauðkrækinga Garðar Örn Úlfarsson skrifar 13. nóvember 2014 09:30 Flugstjóri hjá Mýflugi segir að óbreyttu ekki hægt að treysta á flugbrautina á Alexandersflugvelli við Sauðárkrók á ögurstundu. Mynd/Loftmyndir ehf.
Þorkell Ásgeir Jóhannsson, flugstjóri hjá Mýflugi, segir að vegna skorts á viðhaldi og hreinsun á flugvellinum við Sauðárkrók hafi alvarlega slasaður maður fyrst verið fluttur með bíl til Akureyrar í stað þess að vera sendur beint til Reykjavíkur með sjúkraflugi. Þetta kemur fram í tölvupósti Þorkels til sveitarstjórnarinnar í Skagafirði þar sem hann ræðir um bílslys sem varð 23. október nærri Varmahlíð. Eins og kunnugt er annast Mýflug sjúkraflug fyrir ríkið. „Slösuðust þrír í árekstrinum og þurfti að flytja einn með sjúkraflugi til Reykjavíkur til aðhlynningar. Alexandersflugvöllur við Sauðárkrók var ekki kostur í stöðunni, þar sem ryðja hefði þurft flugbrautina og hálkuverja og aukin heldur var bifreið sú sem notuð er til þessa verks rafmagnslaus þegar til átti að taka,“ segir um málavexti í fundargerð byggðaráðs Skagafjarðar þar sem tölvupóstur Þorkels var lagður fram. „Allt leiddi þetta til þess að fagaðilar á slysstað afréðu að senda þennan sjúkling með bíl til sjúkrahússins á Akureyri til fyrstu aðhlynningar, þrátt fyrir snjóalög og ísingu á þjóðveginum um Öxnadalsheiði,“ er vitnað beint til bréfs Þorkels. „Ljóst er að fyrirbyggjandi eftirlit með ástandi flugbrautarinnar og hreinsun eftir þörfum ásamt með viðhaldi tækjabúnaðar, hefði í þessu tilfelli flýtt verulega fyrir nauðsynlegri læknisaðstoð fyrir hinn alvarlega slasaða sjúkling.“ Þorkell segir að á meðan ekki sé um fyrirbyggjandi viðhald og hreinsun flugbrautar héraðsins að ræða kunni fleiri bráðatilfelli vegna slysa eða veikinda að verða fyrir „alvarlegum viðbragðstöfum“ og það „hugsanlega með hörmulegum afleiðingum“. Byggðaráð fól sveitarstjóranum að afla frekari upplýsinga um málið. „Ljóst er að núverandi ástand er með öllu ólíðandi fyrir íbúa Skagafjarðar og nærliggjandi byggða,“ bókaði byggðaráðið.
Mest lesið Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Innlent Sláandi hugmyndir íslenskra karla um ofbeldi Innlent Laug að Morgunblaðinu um nýjan KFC-stað Innlent Heiða í veikindaleyfi Innlent „Vissi að ég var ekki að haga mér eins og venjulegt fólk“ Innlent Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Innlent Starfsmaður Reykjavíkurborgar smitaðist af nóróveiru Innlent Syrgði Sovétríkin og hótaði notkun kjarnorkuvopna Erlent Stefna á þrjú þúsund hektara en endurheimtu þrettán Innlent Segir ágreininginn í Landsvirkjun ekki snúast um arðgreiðslur Innlent Fleiri fréttir Halda hækkunum innan við 2,5 prósent og hætta við lækkun systkinaafsláttar Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Aurskriða féll á veginn og honum lokað Starfsmaður Reykjavíkurborgar smitaðist af nóróveiru Heiða í veikindaleyfi Fagfélögin kalla eftir heimild til að slíta kjarasamningum Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Fara fram á 16 ár yfir meintum morðingja Allir sautján frjálsir ferða sinna „Við erum óþolinmóð“ Minni gjaldahækkanir kosti ríkissjóð 2,5 milljarða Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Segir ágreininginn í Landsvirkjun ekki snúast um arðgreiðslur Geri málið tortryggilegt að neita að svara „Við höfum séð mikla aukningu á því á Íslandi“ Íslensk skólastúlka varð fyrir táragasi í París Laug að Morgunblaðinu um nýjan KFC-stað Stefna á þrjú þúsund hektara en endurheimtu þrettán Ein matskeið og þá er dauðinn vís Beint: Opið málþing um heimilisleysi „Vissi að ég var ekki að haga mér eins og venjulegt fólk“ Lægð suðvestan úr hafi væntanleg til landsins Hvað þýðir sjö í nýju námsmati? Fundu mikið magn vímuefna og peninga við leit Sláandi hugmyndir íslenskra karla um ofbeldi Bjóða út sorphirðu í Breiðholti til sex ára Reglur um dvalarleyfi hertar og filippseyskar au pair úr sögunni Leggur til að þingmenn verði 85 í stað 63 Skipti engu hvort ummælin hafi verið sett fram í kaldhæðni Marco Rubio á leið til Íslands Sjá meira