Kvaðst hafa drukkið kókakóla og neytt amfetamíns óvart Sunna Kristín Hilmarsdóttir skrifar 13. nóvember 2014 18:13 Maðurinn sagðist aðeins hafa drukkið kók í partýinu og ekki hafa fundið fyrir neinum áhrifum örvandi efna þegar hann settist undir stýri. Vísir/Getty
Héraðsdómur Reykjaness hefur svipt mann ökuréttindum í eitt ár auk þess sem hann skal greiða 140.000 krónur í sekt fyrir akstur undir áhrifum fíkniefna. Maðurinn neitaði sök fyrir dómi og kvaðst aðeins hafa drukkið gos, kókakóla, í partýi sem hann hafði verið í áður en hann settist undir stýri. Hann kvaðst því ekki hafa fundið fyrir neinum áhrifum örvandi efna. Í ákæru kemur hins vegar fram að amfetamín hafi fundist í blóði hans. Ákærði gaf þá skýringu fyrir dómi að amfetamínið hafi kannski komist í blóðið hans þar sem hann gæti hafa víxlað á glösum í partýinu sem hann hafði verið í. Aðrir hafi verið að neyta fíkniefna þar. Vitni sem komu fyrir dóminn höfðu verið í umræddu partýi. Annað vitnið bar að hafa neytt amfetamíns og drukkið Breezer eða eplasafa. Aðrir í partýinu hafi gert það líka. Hitt vitnið kvaðst hafa drukkið vodka í kók. Í ljósi þessa var framburður ákærða fyrir dómi talinn ótrúverðugur. Ef hann hefði víxlað á glösum hefði hann átt að taka eftir því þar sem bjór, Breezer eða eplasafi hafi allt annan lit en kókakóla. Þá hafi ýmislegt annað í framburði mannsins verið ótrúverðugt. Magn amfetamíns í blóði var til að mynda það mikið að útilokað er að hann hafi ekki fundið fyrir áhrifum efnisins. Dómurinn telur því sannað að hann hafi ekki neytt amfetamíns óvart heldur þvert á móti. Því er hann dæmdur til sektargreiðslu sem hann skal innan fjögurra vikna frá dómsuppkvaðningu en annars sæta fangelsi í 10 daga. Þá er hann sviptur ökuréttindum í eitt ár. Dóm Héraðsdóms má sjá í heild sinni hér.
Mest lesið Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Innlent Sláandi hugmyndir íslenskra karla um ofbeldi Innlent Laug að Morgunblaðinu um nýjan KFC-stað Innlent Heiða í veikindaleyfi Innlent „Vissi að ég var ekki að haga mér eins og venjulegt fólk“ Innlent Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Innlent Starfsmaður Reykjavíkurborgar smitaðist af nóróveiru Innlent Syrgði Sovétríkin og hótaði notkun kjarnorkuvopna Erlent Stefna á þrjú þúsund hektara en endurheimtu þrettán Innlent Segir ágreininginn í Landsvirkjun ekki snúast um arðgreiðslur Innlent Fleiri fréttir „Of margar sögur af vondri meðferð“ Halda hækkunum innan við 2,5 prósent og hætta við lækkun systkinaafsláttar Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Aurskriða féll á veginn og honum lokað Starfsmaður Reykjavíkurborgar smitaðist af nóróveiru Heiða í veikindaleyfi Fagfélögin kalla eftir heimild til að slíta kjarasamningum Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Fara fram á 16 ár yfir meintum morðingja Allir sautján frjálsir ferða sinna „Við erum óþolinmóð“ Minni gjaldahækkanir kosti ríkissjóð 2,5 milljarða Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Segir ágreininginn í Landsvirkjun ekki snúast um arðgreiðslur Geri málið tortryggilegt að neita að svara „Við höfum séð mikla aukningu á því á Íslandi“ Íslensk skólastúlka varð fyrir táragasi í París Laug að Morgunblaðinu um nýjan KFC-stað Stefna á þrjú þúsund hektara en endurheimtu þrettán Ein matskeið og þá er dauðinn vís Beint: Opið málþing um heimilisleysi „Vissi að ég var ekki að haga mér eins og venjulegt fólk“ Lægð suðvestan úr hafi væntanleg til landsins Hvað þýðir sjö í nýju námsmati? Fundu mikið magn vímuefna og peninga við leit Sláandi hugmyndir íslenskra karla um ofbeldi Bjóða út sorphirðu í Breiðholti til sex ára Reglur um dvalarleyfi hertar og filippseyskar au pair úr sögunni Leggur til að þingmenn verði 85 í stað 63 Skipti engu hvort ummælin hafi verið sett fram í kaldhæðni Sjá meira