Færri ökumenn og farþegar slasast í umferðinni en fleiri hjólreiðamenn Stefán Árni Pálsson skrifar 11. desember 2014 11:09 Aukin áhersla hafi verið lögð á vistvænar samgöngur sem hafi skilað sér í fleiri gangandi og hjólandi vegfarendum. Vísir/Pjetur
Banaslysum og alvarlegum slysum ökumanna og farþega bifreiða fækkaði árin 2011-2013 en á sama tíma fjölgaði alvarlegum slysum meðal hjólreiðamanna. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Innanríkisráðuneytinu. Árið 2011 slösuðust 24 hjólreiðamenn, 36 árið eftir og 77 á síðasta ári en enginn hjólreiðamaður lést. Auknar hjólreiðar eru meðal skýringa á fjölgun slasaðra hjólreiðamanna en skráning þessara slysa hefur einnig verið bætt. Þetta er meðal þess sem fram kemur í samantektum Vegagerðarinnar í þremur skýrslum sem fjalla um greiningu á banaslysum og slysum með alvarlegum meiðslum, greiningu á alvarlegum slysum og banaslysum annars vegar á gangandi vegfarendum og hins vegar hjólreiðamönnum.Í skýrslunum er byggt á grunngögnum sem Vegagerðin hefur fengið frá Samgöngustofu sem byggir sína slysaskráningu á lögregluskýrslum. Fram kemur í greiningu Vegagerðarinnar á banaslysum og alvarlegum slysum að áhyggjuefni sé að fleiri óvarðir vegfarendur slasist, þ.e. gangandi og hjólandi. Aukin áhersla hafi verið lögð á vistvænar samgöngur sem hafi skilað sér í fleiri gangandi og hjólandi vegfarendum. Í skýrslunni segir meðal annars: ,,Krafan um aukinn hlut vistvænna ferðamáta í samfélaginu á líklega eftir að verða til þess að fleiri óvarðir vegfarendur verða í umferðinni og því er mikilvægt að fylgjast sérstaklega með þróun slysa þessa vegfarendahóps og leita leiða til þess að tryggja öryggi þeirra.“ Alls slösuðust 52 gangandi vegfarendur árin 2011-2013 og sjö létust. Í greiningunni á slysunum kemur meðal annars fram að algengast væri að gangandi fólk slasaðist þegar ekið væri á það á götu og næst algengast á bílastæði. Í fjórum tilfellum var hjólað á gangandi vegfaranda.
Mest lesið Slasaðist alvarlega við heyskap Innlent Drykkurinn komi úr flösku ráðherra Innlent Brotist inn í þrjá gáma og dýr verkfæri tekin ófrjálsri hendi Innlent Nálægt því að útrýma moskítóflugu á Suðurlandi Innlent Mótorhjól og bíll skullu saman Innlent Ferðamaðurinn fundinn heill á húfi á Suðurlandi Innlent Sjötugur maður tapað hundrað og átta milljónum til fjárkúgara Innlent Einbreiðar brýr við Berufjörð og Reyðarfjörð líklega næstar Innlent Stórbruni í Drammen og dularfull staða moskítóflugunnar Innlent Jákvætt ef stjórnvöld séu loksins farin að horfast í augu við stöðuna Innlent Fleiri fréttir Eigi ekki að kosta milljónir króna að klæðast landsliðsbúningnum Skynet langt undan en íslensk stjórnvöld þurfa að vera undirbúin „Klappað eins og það væri stórstjarna að koma inn“ Óttast að „bottar“ muni ýta undir ágreining í aðdraganda atkvæðagreiðslu Íslensk hjón þurft að flýja undan gróðureldum á Spáni Báti var siglt yfir kajakræðara Kvöldfréttir í heild sinni „Ég hef aldrei lent í öðru eins“ Fimm fluttir til aðhlynningar eftir árekstur Skipverjarnir áttu að fá 2,5 milljónir króna á haus Endurkoma Herjólfs vekur upp ýmsar spurningar Standa með félagsmanni sem var sviptur frelsi Íslendingur á Benidorm stöðvaður eftir tíu daga svikahrinu Halda samráðsfund vegna innbrotahrinu Auka nákvæmni rauntímaupplýsinga Vara við hviðum á landinu suðaustanverðu Sólmyrkvinn ógnar fjarskiptum og Mærudagar ganga í garð Úttekt landlæknis á Hraunbúðum: Fagmenntað starfsfólk langt undir lágmarksviðmiðum „Ef við fáum enga ferðamenn, verðum við að skjóta hundana“ Ekið á dreng á hjóli og aðrir fluttir á slysadeild eftir hjólaslys Á sjúkrahús eftir að hafa flogið af mótorhjólinu Eldur kviknaði á Fiskislóð Reið en þakklát fyrir lífsbjörgina Kominn til Akureyrar eftir alvarlegt slys á skemmtiferðaskipi „Það er verið að dreifa athyglinni, það er verið að auka óvissu“ „Gott og vel við skulum trúa ráðherranum“ Utanríkisráðherra svarar og kona stórslasaðist á hlaupahjóli Ekki um „týndar skýrslur“ að ræða Hart tekist á um ESB Burðardýr Stúarts litla dæmd í sex ára fangelsi Sjá meira