Innlent

Vilja aukin framlög til Háskólans á Akureyri

Samúel Karl Ólason skrifar
Háskólinn á Akureyri.
Háskólinn á Akureyri. Vísir/Pjetur
Samtök atvinnurekenda á Akureyri skora á stjórnvöld og fjárlaganefnd Alþingis að leiðrétta framlög til Háskólans á Akureyri. Benda samtökin á að í stjórnarsáttmála ríkisstjórnarinnar segir: „Að ríkisstjórnin leggi ríka áherslu á að efla menntakerfið með hagsmuni nemenda og þjóðarinnar allrar að leiðarljósi. Fjölbreytileiki í skólastarfi er lykill að kraftmiklu samfélagi.“

Þá benda samtökin á að einnig standi í sáttmálanum að áhersla verði lögð á samráð við hagsmunaaðila þegar ákvarðanir verði teknar á vettvangi um skipulag náms og kennslu.

Í tilkynningu frá SATA benda samtökin á að Háskólinn á Akureyri sé mikilvægur. „Ekki bara vegna beinna tengsla við atvinnulífið heldur einnig vegna mikilvægra byggðarsjónarmiða sem stjórnvöld hafa sjálf bent á.“

„Þess vegna skorar SATA á fjárlaganefnd að taka þessi áform til endurskoðunar og hækka framlagið til Háskólans á Akureyri.“




Fleiri fréttir

Sjá meira


×