Innlent

Jónas biðst vægðar í eina viku

Ólöf Skaftadóttir skrifar
Ríkisstjórninni er ekki sjálfrátt. Daglega eru ný hneyksli í boði. Aldrei höfum við séð annað eins á lýðveldistímanum," segir fyrrverandi ritstjórinn Jónas Kristjánsson, sem sparar ekki stóru orðin í nýrri bloggfærslu á heimasíðunni sinni.

Jónas heldur áfram. „Landspítalinn kominn að fótum fram og læknar farnir að flýja land. Frestað er kaupum á nöfnum 500 Íslendinga með skattsvikið fé í skattaparadísum. Yfirhilmingarmál Hönnu Birnu ætlar aldrei að taka enda, nýjasti anginn er þjónustulund lögreglustjórans í Reykjavík. Þá er Jón Gunnarsson að reyna að rústa rammaáætlun um virkjanakosti. Sjálfvirkar hríðskotabyssur framhjá kerfinu koma líka við sögu. Náttúrupassi Ragnhildar Elínar er margfalt vitlausari en hækkun ferðavasks eða gistináttagjald. Og nú hefur Borgun verið einkavinavædd," segir hann að lokum.


Tengdar fréttir

Lögreglustjórar furða sig á verklagi Sigríðar

Lögreglustjórar víða um land sem Fréttablaðið ræddi við í gær kannast ekki við það verklag sem Sigríður Björk Guðjónsdóttir, fyrrverandi lögreglustjóri á Suðurnesjum, viðhafði í samskiptum sínum við Gísla Frey Valdórsson í lekamálinu.

5 góð rök gegn náttúrupassa!

Nú er svo komið að nokkur sátt ríkir um það innan ferðaþjónustunnar á Íslandi að skapa þurfi sérstakan tekjustofn til þess að fjármagna viðhald og uppbyggingu á og við ferðamannastaði á landinu.

Enn pattstaða eftir 42 fundi á 5 mánuðum

Annarri verkfallslotu lækna er að ljúka án áþreifanlegs árangurs. Læknar lýsa yfir þungum áhyggjum af skjólstæðingum sínum og biðlistum sem lengjast. Uppsagnir eru sífellt oftar nefndar. Hvíslað er um lög á verkfallið.

Ríkislögreglustjóri bíður svars frá Noregi

Þörf lögreglunnar fyrir vopn er sögð óbreytt þótt Landhelgisgæslan endursendi hríðskotabyssur til Noregs. Lögreglan biður nú Norðmenn milliliðalaust um að útvega sér vopn. Vopnakaup eru ekki brýnasta verkefnið hjá Landhelgisgæslunni.

Allt veltur á innihaldi greinargerðar Sigríðar

Innihald greinargerðar sem lögreglustjórinn á Suðurnesjum sendi aðstoðarmanni innanríkisráðherra í fyrra ræður hvort lögreglustjórinn hafi mátt senda skjalið segir lektor við Háskóla Íslands.

Nýr náttúrupassi

Nýtt frumvarp um Náttúrupassa verður kynnt í ríkisstjórn á næstu dögum. Innheimta á eitt gjald og Íslendingar og erlendir ferðamenn greiða það sama.

Aðstoðarmaður leyndi illa fengnu skjali í ráðuneytinu

Ráðuneytisstjóri innanríkisráðuneytisins segir aðstoðarmann ráðherra ekki hafa mátt fá greinargerð sem lögreglustjórinn á Suðurnesjum afhenti. Aðstoðarmaðurinn leyndi skjalinu sem ekki er skráð hjá ráðuneytinu.

Efast um lögmæti tillögu um virkjanakosti

Ekki var hægt að skipa faghópa í haust til að hefja matsvinnu á fimm virkjunarkostum í biðflokki rammaáætlunar. Atvinnuveganefnd vill færa þessa sömu kosti úr bið- í nýtingarflokk án aðkomu verkefnisstjórnar rammaáætlunar. Formaður efast um lögmæti þeirrar aðgerðar.

Landsbankinn selur hlut sinn í Borgun

Landsbankinn undirritaði í dag samning um sölu á 31,2% eignarhlut sínum í Borgun hf. Söluverðið er 2.184 milljónir króna.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×