Innlent

Björgunarsveit kölluð út vegna torkennilegra ljósa

Vísir
Hátt í fjörutíu björgunarsveitarmenn af Vesturlandi voru kallaðir út undir kvöld í gær til leitar á Holtavörðuheiði, eftir að einhverskonar ljós sást þar, sem gæti hafa verið neyðarblys.

Ljósið sást á lofti norðaustur af háheiðinni og sást nokkuð víða að. Strax í upphafi leitar var ekki útilokað að um einhverskonar náttúrufyrirbrigði hafi verið að ræða og var leit hætt á tíunda tímanum, enda var einskis saknað.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×