Háskólabókun kom í veg fyrir verkfall Sunna Karen Sigurþórsdóttir skrifar 10. nóvember 2014 11:28 vísir/pjetur
Nýtt ákvæði um háskólamenntaða kom í veg fyrir að verkfall skylli á í Kópavogi í dag. Ákvæðið var skilyrði af hálfu starfsmannafélagsins til að verkfalli yrði aflýst, en bærinn féllst á það undir klukkan fimm í morgun, einungis um klukkutíma áður en verkfall átti að hefjast. Skrifað var undir samninginn formlega um klukkan hálf sjö í morgun. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Kópavogsbæ. Samið var um að svokölluð háskólabókun félli út í lok samningstímans í tengslum við heildarendurskoðun á starfsmati hjá bænum sem tryggi sömu launabætur og bókunin kvað á um. Þá féllst bærinn á kröfu starfsmannafélagsins um að hækkanir í samningnum gildi frá 1. maí síðastliðnum en ekki 1. október eins og bærinn hafði tiltekið í sáttatilboði sínu. Félagsmenn munu því fá leiðréttingu á launum sínum hálft ár aftur í tímann. Þá felst í samkomulaginu að starfsmenn fái 35 þúsund króna eingreiðslu í samræmi við starfshlutfall en félagið hafði krafist 50 þúsund króna eingreiðslu. Samningurinn tryggir því hag um 200 sumarstarfsmanna og þeirra sem látið hafa af störfum frá 1. maí. Greidd verða atkvæði um nýjan kjarasamning í atkvæðagreiðslu meðal rúmlega 800 félagsmanna Starfsmannafélagsins innan 10 daga.
Tengdar fréttir Hænuskref áfram í Kópavogi ""Þetta hefur þokast lítið hænuskref áfram en ég get ekki upplýst í hverju það felst,“ sagði Jófríður Hanna Sigmundsdóttir, formaður Starfsmannafélags Kópavogs, í kvöld. 9. nóvember 2014 22:15 Samningar í höfn í Kópavogi Nýr kjarasamningur var undirritaður milli samninganefndar Sambands íslenskra sveitarfélaga, fyrir hönd Kópavogsbæjar, og Starfsmannafélags Kópavogs á sjöunda tímanum í morgun. Verkfalli sem hefjast átti í dag hefur því verið aflýst. 10. nóvember 2014 06:46 Mest lesið „Svolítið súrt þegar við erum búin að vera að byggja upp þarna flotta aðstöðu“ Innlent Sárkvalin og þurfti að borga eina og hálfa milljón fyrir aðgerð Innlent „Er löggjafarvaldið sofandi á verðinum?“ Innlent Einn í gæsluvarðhaldi vegna tengsla sinna við innbrotahrinu Innlent Blöskrar áfengisauglýsingar RÚV Innlent Galið kerfi, hatur á samfélagsmiðlum og boltastemning í beinni Innlent Slasaðist alvarlega við heyskap Innlent Brotist inn í þrjá gáma og dýr verkfæri tekin ófrjálsri hendi Innlent Nálægt því að útrýma moskítóflugu á Suðurlandi Innlent Stórbruni í Drammen og dularfull staða moskítóflugunnar Innlent Fleiri fréttir Hvassviðri hefur sett strik í reikninginn á Bræðslunni Flúðu heimili sitt vegna gróðurelda: „Þetta verður ekki fallegt, fjallið er allt brunnið“ Þúsund sjúkraflug á árinu: „Fyrsta skipti sem við brjótum þann múr“ Bráð veikindi og alelda bíll við Kambana Komst undan ásamt fjölskyldunni „Við ákváðum að snúa bara vörn í sókn“ Fæðingardeildin hafi gleymst í hita leiksins Eldur í sumarbústað við Suðurlandsveg Þúsund ára gömul mynt fannst í gamalli verbúð Íslendingur í grennd við Madríd og met í sjúkraflugferðum Fleiri en þeir sem tókust á lentu í átökum ungmenna Áttu eitthvað vantalað við manninn sem endaði fram af svölunum Ari úrskurðaður í gæsluvarðhald á Kýpur Fleygt fram af svölum á fyrstu hæð fjölbýlishúss Eigi ekki að kosta milljónir króna að klæðast landsliðsbúningnum Skynet langt undan en íslensk stjórnvöld þurfa að vera undirbúin „Klappað eins og það væri stórstjarna að koma inn“ Óttast að „bottar“ muni ýta undir ágreining í aðdraganda atkvæðagreiðslu Íslensk hjón þurft að flýja undan gróðureldum á Spáni Báti var siglt yfir kajakræðara Kvöldfréttir í heild sinni „Ég hef aldrei lent í öðru eins“ Fimm fluttir til aðhlynningar eftir árekstur Skipverjarnir áttu að fá 2,5 milljónir króna á haus Endurkoma Herjólfs vekur upp ýmsar spurningar Standa með félagsmanni sem var sviptur frelsi Íslendingur á Benidorm stöðvaður eftir tíu daga svikahrinu Halda samráðsfund vegna innbrotahrinu Auka nákvæmni rauntímaupplýsinga Vara við hviðum á landinu suðaustanverðu Sjá meira
Hænuskref áfram í Kópavogi ""Þetta hefur þokast lítið hænuskref áfram en ég get ekki upplýst í hverju það felst,“ sagði Jófríður Hanna Sigmundsdóttir, formaður Starfsmannafélags Kópavogs, í kvöld. 9. nóvember 2014 22:15
Samningar í höfn í Kópavogi Nýr kjarasamningur var undirritaður milli samninganefndar Sambands íslenskra sveitarfélaga, fyrir hönd Kópavogsbæjar, og Starfsmannafélags Kópavogs á sjöunda tímanum í morgun. Verkfalli sem hefjast átti í dag hefur því verið aflýst. 10. nóvember 2014 06:46