Gunnar Bragi fundaði með utanríkisráðherra Japans Sunna Kristín Hilmarsdóttir skrifar 10. nóvember 2014 17:30 Gunnar Bragi Sveinsson, utanríkisráðherra, og utanríkisráðherra Japans, Fumio Kishida.
Gunnar Bragi Sveinsson, utanríkisráðherra, fundaði í dag með Fumio Kishida, utanríkisráðherra Japans, í Tókýó. Gunnar Bragi heimsækir Japan dagana 10.-13. nóvember. Fram kemur í tilkynningu frá utanríkisráðuneytinu að ráðherrarnir hafi meðal annars rætt aukið samstarf Íslands og Japans vegna norðurslóða, svæðisbundin alþjóðamál og viðskiptamál. „Utanríkisráðherra lagði áherslu á samstarf ríkjanna á sem breiðustum grunni, þjóðirnar eigi margt sameiginlegt. Bæði löndin liggi á flekaskilum þar sem jarðhræringar hafa áhrif á líf íbúanna, þau búi yfir auðlindum svo sem jarðhita og sjávarfangi og bæði leggi áherslu á sjálfbærni náttúruauðlinda. Fagnaði utanríkisráðherra þeim skrefum sem Japan hefði stigið að undanförnu í gerð fríverslunarsamninga og taldi mikilvægt að Japan horfði einnig til þess að semja við þau EFTA ríki sem ekki væri þegar samningur við. Þá væri mikilvægt að ríkin gerðu sem fyrst með sér loftferðasamning til að styðja við vöxt í ferðaþjónustu.“ Í lok fundarins gáfu utanríkisráðherrarnir út sameiginlega yfirlýsingu þar sem farið er yfir hvernig efla má samstarf ríkjanna á hinu ýmsum sviðum. Er þar meðal annars lögð áhersla á að ríkin efli samstarf sitt á sviði orkumála og vinni nánar saman innan alþjóðastofnana. Hér að neðan má sjá tilkynningu utanríkisráðuneytisins í heild sinni:Gunnar Bragi Sveinsson utanríkisráðherra átti í dag fund með japönskum starfsbróður sínum, Fumio Kishida, í Tókýó en ráðherra heimsækir Japan dagana 10.-13. nóvember.Ræddu ráðherrarnir áratugalöng farsæl samskipti ríkjanna, viðskiptamál, aukið samstarf Íslands og Japans um málefni norðurslóða og svæðisbundin alþjóðamál, m.a. í Asíu.Utanríkisráðherra lagði áherslu á samstarf ríkjanna á sem breiðustum grunni, þjóðirnar eigi margt sameiginlegt. Bæði löndin liggi á flekaskilum þar sem jarðhræringar hafa áhrif á líf íbúanna, þau búi yfir auðlindum svo sem jarðhita og sjávarfangi og bæði leggi áherslu á sjálfbærni náttúruauðlinda. Fagnaði utanríkisráðherra þeim skrefum sem Japan hefði stigið að undanförnu í gerð fríverslunarsamninga og taldi mikilvægt að Japan horfði einnig til þess að semja við þau EFTA ríki sem ekki væri þegar samningur við. Þá væri mikilvægt að ríkin gerðu sem fyrst með sér loftferðasamning til að styðja við vöxt í ferðaþjónustu.Utanríkisráðherra Japan var jákvæður í garð samstarfs á fleiri sviðum og sagði Ísland beita friðarsinnaðri utanríkisstefnu. Minntist hann sérstaklega á ræðu ráðherra á allsherjarþingi þar sem Gunnar Bragi fór yfir málefni öryggisráðsins í Sameinuðu þjóðunum.Ísland og Japan munu fagna 60 ára afmæli stjórnmálasambands 2016 og að því tilefni bauð utanríkisráðherra starfsbróður sínum í heimsókn til Íslands.Að loknum fundi ráðherranna gáfu þeir út sameiginlega yfirlýsingu þar sem fjallað er um eflingu á samstarfi ríkjanna á ýmsum sviðum. Lögð er áhersla á að ríkin vinni nánar saman innan alþjóðlegra stofnana, efli samstarf sitt í málefnum norðurslóða, styrki menningarsamstarf auk þess sem ríkin skoði leiðir til frekari samvinnu á sviði orkumála með sérstakri áherslu á jarðhita. Einnig verði leitað leiða til að efla enn frekar viðskipti ríkjanna auk þess sem ákveðið er að skoða fýsileika þess að ganga til samninga til að greiða fyrir heimildum ungs fólks til ferða og atvinnu á milli ríkjanna.Fyrr um daginn heimsótti utanríkisráðherra einnig japanska þingið og átti fund með Shinako Tsuchiya formanni vináttufélags Íslands og Japans á þinginu og nokkrum þingmönnum en Shinako er einnig formaður utanríkismálanefndar neðri deildar þingsins. Á fundi sínum ræddu þau m.a. áherslur Íslands um að efla viðskipti og fjárfestingar milli ríkjanna, stuðning við menningar- og menntasamstarf og um málefni norðurslóða.
Mest lesið Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Innlent Sláandi hugmyndir íslenskra karla um ofbeldi Innlent Laug að Morgunblaðinu um nýjan KFC-stað Innlent Heiða í veikindaleyfi Innlent „Vissi að ég var ekki að haga mér eins og venjulegt fólk“ Innlent Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Innlent Starfsmaður Reykjavíkurborgar smitaðist af nóróveiru Innlent Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Innlent Syrgði Sovétríkin og hótaði notkun kjarnorkuvopna Erlent Stefna á þrjú þúsund hektara en endurheimtu þrettán Innlent Fleiri fréttir Lýsa eftir Halldóri Inga „Of margar sögur af vondri meðferð“ Halda hækkunum innan við 2,5 prósent og hætta við lækkun systkinaafsláttar Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Aurskriða féll á veginn og honum lokað Starfsmaður Reykjavíkurborgar smitaðist af nóróveiru Heiða í veikindaleyfi Fagfélögin kalla eftir heimild til að slíta kjarasamningum Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Fara fram á 16 ár yfir meintum morðingja Allir sautján frjálsir ferða sinna „Við erum óþolinmóð“ Minni gjaldahækkanir kosti ríkissjóð 2,5 milljarða Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Segir ágreininginn í Landsvirkjun ekki snúast um arðgreiðslur Geri málið tortryggilegt að neita að svara „Við höfum séð mikla aukningu á því á Íslandi“ Íslensk skólastúlka varð fyrir táragasi í París Laug að Morgunblaðinu um nýjan KFC-stað Stefna á þrjú þúsund hektara en endurheimtu þrettán Ein matskeið og þá er dauðinn vís Beint: Opið málþing um heimilisleysi „Vissi að ég var ekki að haga mér eins og venjulegt fólk“ Lægð suðvestan úr hafi væntanleg til landsins Hvað þýðir sjö í nýju námsmati? Fundu mikið magn vímuefna og peninga við leit Sláandi hugmyndir íslenskra karla um ofbeldi Bjóða út sorphirðu í Breiðholti til sex ára Reglur um dvalarleyfi hertar og filippseyskar au pair úr sögunni Leggur til að þingmenn verði 85 í stað 63 Sjá meira