Starfsfólk RSK vinnur fram á kvöld við að svara fyrirspurnum Heimir Már Pétursson skrifar 11. nóvember 2014 12:23 Skúli Eggert Þórðarson ríkisskattstjóri. Vísir/Anton Brink
Miklar annir eru hjá Ríkisskattstjóra við að svara fyrirspurnum frá fólki vegna útreikninga á niðurfærslu húsnæðislána. Starfsfólk embættisins mun vinna fram á kvöld við að svara tölvupóstum eftir að símaveri lokar klukkan fjögur. Niðurstöður í útreikningum um 90 þúsund umsókna um leiðréttingu á höfuðstól húsnæðislána voru birtar á vef leiðréttingarinnar á miðnætti. Skúli Eggert Þórðarson ríkisskattstjóri segir aukin viðbúnað hjá embættinu vegna fyrirspurna frá almenningi. „Það eru núna 37 á bið í símanum þannig að það er dálítið mikið hringt hingað. Við erum búin að vrkja þjónustuver Ríkisskattstjóra inn í þetta verkefni ásamt þeim hópi sem vinnur við þetta frá degi til dags. Þannig að núna eru þetta á bilinu 25 til 30 manns sem eru að svara símanum,“ segir Skúli Eggert. Aðalþjónustuverið á Akureyri og Siglufirði svari einnig fyrirspurnum. Þegar við ræddum við Skúla Eggert fyrir hádegi voru 1.400 manns inni á vef leiðréttingarinnar en það sem af er morgi hafi mest verið 3.000 manns samtímis á vefnum. „Það er nú kosturinn við þetta að menn staldra stutt við, þ.e.a.s. þetta eru tiltölulega einfaldar upplýsingar og aðgengilegar að því leitinu til að menn eru fljótir að sjá niðurstöðuna og eru því fljótir að fara út. Það hjálpar til við að halda vefnum gangandi,“ segir Skúli Eggert. Erfitt sé að meta á þessari stundu hverjar séu algengustu spurningar frá fólki. En fyrirspurnum í síma verði svarað til klukkan fjögur í dag. „Við erum ekki farin að líta á þá tölvupósta sem koma. Það verður ekki hægt að gera það fyrr en eftir klukkan fjögur. Þá verður byrjað að vinna úr þeim tölvupóstum sem komu í nótt og það sem af er degi og síðan auðvitað áfram. En ég geri ráð fyrir að það sé þá helst um það að það vant tiltekin lán inn eða eitthvað þess háttar. Einhverjar slíkar athugasemdir,“ segir Skúli Eggert. Starfsfólki verði að svara tölvupóstum langt fram á kvöld og þannig verði það væntanlega næstu daga og jafnvel vikur. Enn sem komið er gangi þetta allt vel miðað við hvað þetta sé flókin aðgerð. „Það er töluvert mikið hringt. Meira en kannski en við áttum von á og það er einnig komið töluvert af athugasemdum en það er lítil gangandi umferð,“ segir Skúli Eggert Þórðarson ríkisskattstjóri.
Mest lesið Íranir ráðast á herstöð Bandaríkjamanna í Katar Erlent Flaug í einkaflugi með Støre Innlent Sextán ár fyrir að bana dóttur sinni Innlent „Annars værum við ekki að leggja í þessar miklu aðgerðir“ Innlent Lætur reyna á hvort samræði við þrettán ára sé nauðgun Innlent Kona féll í Svöðufoss Innlent Fleiri handteknir í Borgarnesi Innlent Tuttugu og tveir látnir eftir sjálfsmorðsárás í kirkju Erlent Lúsmý um allt land en bitmýið einnig árásargjarnt Innlent Biðla til foreldra: Barn einungis þrjátíu sekúndur að drukkna Innlent Fleiri fréttir „Við erum auðvitað ekki komin þangað“ Telja einhvern hér á landi búa yfir vitneskju um hvað kom fyrir Jón Þröst Fleiri handteknir í Borgarnesi Átök breiðast út í Mið-Austurlöndum, virkjanaáform og brúðkaup Bezos Gert að greiða fyrrverandi manni sínum bætur vegna dreifingar á nektarmynd Sextán ár fyrir að bana dóttur sinni Leita fulltingis forseta til að fá upplýsingar um veiðigjöld Lúsmý um allt land en bitmýið einnig árásargjarnt Kona féll í Svöðufoss „Það gengur ekki að þingið sé tekið í gíslingu“ „Landslið barna“ tekið til starfa á Suðurnesjum Grunar að fjárheimildir ætlaðar þjónustu hafi farið í launakostnað „Annars værum við ekki að leggja í þessar miklu aðgerðir“ Flaug í einkaflugi með Støre Réðst á einstakling á sjötugsaldri með hníf Lætur reyna á hvort samræði við þrettán ára sé nauðgun Biðla til foreldra: Barn einungis þrjátíu sekúndur að drukkna Árásum á Íran haldið áfram og enn þráttað um veiðigjöld Neita öll sök í Gufunessmálinu Váleg þróun að ríki telji sig ekki þurfa að færa rök fyrir því að beita hervaldi Hyggst setja RÚV „talsverðar skorður“ í þágu einkarekinna fjölmiðla Handtekinn fyrir að sveifla hamri Sjálfboðaliðar að bugast: Mikil örvænting meðal gæludýraeigenda Kjarnavopnvædd klerkastjórn sé ógn við Norðurlönd Álftapar með fjóra unga við Hótel Rangá vekur athygli Sagt að hann gæti ekki klárað námið en gerði það samt Bíll við bíl frá Ártúnsbrekku upp í Mosfellsbæ Enn annað innbrot í Laugardalnum Ráðherra um árásir, lögblindur sjúkraþjálfari og álftarungar á hóteli Hvalfjarðargöng eru lokuð Sjá meira