Hjörtur Bragi skipaður formaður kærunefndar útlendingamála Atli Ísleifsson skrifar 12. nóvember 2014 15:48 Hjörtur Bragi Sverrisson mun leiða starf nefndarinnar sem verður skipuð þremur fulltrúum auk starfsmanna. Mynd/Innanríkisráðuneytið.
Hanna Birna Kristjánsdóttir innanríkisráðherra hefur skipað Hjört Braga Sverrisson, framkvæmdastjóra mannréttindadeildar Öryggis- og samvinnustofnunar Evrópu (ÖSE) í Kosovo, formann kærunefndar útlendingamála. Alls bárust sextán umsóknir um embættið en sérstök valnefnd mat Hjört Braga hæfastan umsækjenda. Í frétt á vef innanríkisráðuneytisins segir að í samræmi við breytingar sem gerðar voru á lögum um útlendinga síðastliðið vor verði frá og með 1. janúar næstkomandi unnt að kæra ákvarðanir Útlendingastofnunar til óháðrar úrskurðarnefndar. Hjörtur Bragi mun leiða starf nefndarinnar sem verður skipuð þremur fulltrúum auk starfsmanna. „Hjörtur Bragi útskrifaðist með embættispróf í lögfræði frá Háskóla Íslands árið 1993. Hann lauk meistaraprófi í alþjóðalögum við University of Miami School of Law árið 1998, doktorsprófi í alþjóðalögum og stjórnmálum árið 2003 frá University of Miami School of International Studies og diplómaprófi í þróunarmálum og átökum árið 2011 frá The Open University, Milton Keynes í Bretlandi. Hjörtur Bragi starfaði frá febrúar 1993 til september sama ár hjá ríkisskattstjóra. Hann starfaði sem lögmaður frá 1993-1997. Hann hóf störf hjá Öryggis- og samvinnustofnun Evrópu í júní 2001 og starfaði þar til ágúst 2004, fyrst sem lögfræði- og mannréttindaráðgjafi á lögfræði- og upplýsingasviði Mannréttindadeildar ÖSE og frá júní 2002 sem yfirmaður þess sviðs. Hann var yfirlögfræðingur þróunarsjóðs EFTA frá september 2004 til desember 2011. Hann hefur starfað sem framkvæmdastjóri mannréttindadeildar ÖSE í Kosovo frá maí 2012. Kærunefnd útlendingamála hefur störf 1. janúar 2015 en Mannréttindaskrifstofa Íslands og Mannréttindastofnun Háskóla Íslands tilnefna sitt hvorn fulltrúann í nefndina. Nefndin verður til húsa í Skuggasundi 3,“ segir í frétt ráðuneytisins.
Mest lesið Eldur kviknaði á Völlunum Innlent Ísraelsher viðurkennir að hafa skotið fimm ára stúlku Erlent Vaxtahækkunin geti gert illt verra Innlent Þessi voru tekjuhæsta sveitarstjórnarfólkið í fyrra Innlent „Við höfum ekki náð þeim árangri sem við hefðum viljað“ Innlent Með nefið í flugbrautinni eftir harkalega lendingu Innlent Skýrslutökunni lauk skyndilega: „Ég get ekki meira“ Innlent Meintur Kársnesmorðingi handtekinn í Barcelona Innlent Aðstoða grunnskólabörn Reykjavíkur við heimanám Innlent Betur fór en á horfðist þegar flutningabíll valt Innlent Fleiri fréttir Eldur kviknaði á Völlunum Vaxtahækkunin geti gert illt verra Þessi voru tekjuhæsta sveitarstjórnarfólkið í fyrra Settu saman fyrsta íslenska fjölerfðamengið Sammála því að erfitt haust sé í vændum Aðstoða grunnskólabörn Reykjavíkur við heimanám Betur fór en á horfðist þegar flutningabíll valt „Við höfum ekki náð þeim árangri sem við hefðum viljað“ Samþykkti samninginn: „Lágmark að láta fjármagn fylgja“ Með nefið í flugbrautinni eftir harkalega lendingu Fjármálaráðherra og vinnumarkaðurinn bregðast við vaxtahækkun SVÞ og netáfengisverslanir skora á Alþingi Lýsir áfalli vegna vinnubragða gamla meirihlutans Gæsluvarðhald framlengt yfir meintum Kársnesmorðingjum Ránfugl gæddi sér á smáfugli í Vesturbænum Gæti séð fyrir sér að kjarasamningar haldi Hafi byrlað tólf ára fósturdóttur og nauðgað ítrekað Vilja banna frjáls ferðalög ísraelskra ferðamanna á Íslandi Meintur Kársnesmorðingi handtekinn í Barcelona Brotin úr jakanum geti valdið flóðbylgju Skýrslutökunni lauk skyndilega: „Ég get ekki meira“ „Jón Sigurðsson nefndi aldrei sjálfstæði“ Stýrivextir hækka og borgarísjaki í Djúpinu Stefán Einar og Diljá Mist mættu Helgu Völu og Baldri Maríjon aðstoðar þingmenn Sjálfstæðisflokksins Lítið jökulhlaup hafið í Múlakvísl Loka Hagaborg í það minnsta í tvö ár Ingunn játar að hluta í Reykholtsmálinu Flutningabíll á hliðinni í Ártúnsbrekku Áætlaður kostnaður vegna símafrísins 75 milljónir króna Sjá meira